Forsíða Hafa samband Aðild að NS
fimmtudagur | 9. september
Verðkannanir
Neytendasamtökin
Félagsmenn
Fréttir
EFNISYFIRLIT
Finna

INNSKRÁNING FÉLAGSMANNA
lykilorð er á bls.2 í  nýja Neytendablaðinu
Lykilorð:

 

FJÁRMÁL

22. júní 2010

Óbreytt vaxtakjör á gengistryggðum lánum

Það er skoðun Neytendasamtakanna að tilgreindir vextir í lánasamningum þar sem lánin eru tengd gengi erlendra gjaldmiðla skulu gilda.

Neytendasamtökunum barst til umsagnar erindi frá efnahgs- og viðskiptaráðuneytinnu þar sem óskað var eftir skoðunum samtakanna á því hvaða vextir skuli gilda á slíkum lánum. Stjórn Neytendasamtakanna fjallaði um málið í gær og komst að eftirfarandi niðurstöðu:

„Í ofangreindu erindi var óskað eftir viðbrögðum Neytendasamtakanna varðandi það hvernig vinna mætti úr þeirri stöðu sem upp væri komin í kjölfar Hæstaréttardóma í málum nr. 92/2010 og 153/2010 og við hvaða vaxtafót, eða eftir atvikum verðtryggingu, skuli miða við leiðréttingu á lánasamningum sem tengdir hafa verið á ólögmætan hátt við gengi erlendra gjaldmiðla.

Neytendasamtökin telja að horfa verði til þess að áðurnefndir Hæstaréttardómar séu í raun skýrir hvað þetta varðar, en í þeim eru ákveðin ákvæði slíkra samninga ógilt á grundvelli þess að þau brjóti gegn lögum. Hins vegar er ekki tekið á öðrum þáttum lánasamninganna. Er það því mat samtakanna að samningarnir eigi að öðru leyti að standa.

Neytendasamtökin telja því að samningarnir, þ.m.t. ákvæði þeirra um vaxtakjör, eigi að standa óbreyttir, nema að því er varðar tengingu við erlenda gjaldmiðla og að lántökum beri endurgreiðsla þess sem ofgreitt hefur verið með vísan til ólögmætrar tengingar við gengi erlendra gjaldmiðla.”

Senda grein

Neytendasamtökin   |  Hverfisgötu 105  |  101 Reykjavík  |  sími 545 1200  |  fax 545 1212  |  netfang: ns @ns.is  |  Opið virka daga kl. 9-15
Allur réttur áskilinn Neytendasamtökunum. Tæknileg vandamál og ábendingar, hafið samband við vefstjórn: th @ns.is