Forsíða Hafa samband Aðild að NS
fimmtudagur | 9. september
Verðkannanir
Neytendasamtökin
Félagsmenn
Fréttir
EFNISYFIRLIT
Finna

INNSKRÁNING FÉLAGSMANNA
lykilorð er á bls.2 í  nýja Neytendablaðinu
Lykilorð:

 

FRÉTTIR OG PISTLAR  ÁRIÐ 2005

25. nóvember 2005

DVD upptökutæki - ný gæða- og markaðskönnun

Ný gæðakönnun á vegum ICRT (International Consumer Research and Testing) á 39 DVD upptökutækjum og 10 DVD spilurum án upptökumöguleika mun birtast í næsta Neytendablaði og er nú aðgengileg á vef Neytendasamtakanna á lokuðu vefsvæði félagsmanna undir liðnum Gæða- og markaðskannanir. 

Markaðskönnun á DVD spilurum var framkvæmd hér á landi nú í nóvember hjá 12 söluaðilum. 
Af þessum 12 söluaðilum voru 6  með 30 mismunandi DVD upptökutæki til sölu og af þeim voru 10 tæki einnig í gæðakönnun ICRT.  Þessir 12 söluaðilar voru hinsvegar með 63 mismunandi DVD spilara án upptökumöguleika til sölu en af þeim voru eingöngu 3 tæki einnig í gæðakönnun ICRT.
Markaðskönnunin sýnir að stærstum hluta vöruúrvalið hérlendis og getur því stuðlað að styttingu þess tíma sem annars færi í leit að tækjum og samanburð á milli söluaðila. 

Hægt er að skoða bæði gæðakönnun ICRT og íslensku markaðskönnunina á vef NS undir liðnum Gæða- og markaðskannanir. 
Á vefsvæðinu er einnig nýr tækniorðalisti með skýringum á íslensku.  Hann mun verða uppfærður reglulega og tekur til helstu tengja og tækniheita sem eru í sölulýsingum verslana á tæknivörum.

Einnig er rétt að benda á ítarlegar greinar um tæknina á bak við þau fjölmörgu tæki sem tekin eru fyrir í gæðakönnunum ICRT.  Tæki eins og sjónvörp, stafrænar myndavélar, DVD spilara, MP3 spilara, kaffivélar, stafrænar tökuvélar o.fl..
Slíkar greinar eru gjarnan ítarlegri en sú umfjöllun sem birtast um gæðakannanirnar í Neytendablaðinu.
Þessar upplýsingar saman þ.e. tækniorðalistinn og greinarnar á vefnum geta mögulega aðstoðað við það erfiða hlutskipti að velja úr miklum fjölda svipaðra tækja þegar kaupa á nýtt tæki.  Gæða- og markaðskannanirnar, ásamt greinum og tækniorðalista eru aðgengileg á lokuðu vefsvæði félagsmanna Neytendasamtakanna en lykilorð má finna á bls. 2 í Neytendablaðinu.

 Kíkið endilega í heimsókn á vefsvæðið.

Senda grein

Óheimilt er að vitna í heimasíðu NS án þess að geta heimilda

Neytendasamtökin   |  Hverfisgötu 105  |  101 Reykjavík  |  sími 545 1200  |  fax 545 1212  |  netfang: ns @ns.is  |  Opið virka daga kl. 9-15
Allur réttur áskilinn Neytendasamtökunum. Tæknileg vandamál og ábendingar, hafið samband við vefstjórn: th @ns.is