Forsíða Hafa samband Aðild að NS
fimmtudagur | 9. september
Verðkannanir
Neytendasamtökin
Félagsmenn
Fréttir
EFNISYFIRLIT
Finna

INNSKRÁNING FÉLAGSMANNA
lykilorð er á bls.2 í  nýja Neytendablaðinu
Lykilorð:

 

FRÉTTIR OG PISTLAR  ÁRIÐ 2006

11. desember 2006

Væntanlegum strandflutningum fagnað
Stjórn Neytendasamtakanna fagnar því að nú sé skipafélag að hefja strandflutninga á vörum á nýjan leik. Þó svo að vöruflutningar til og frá landsbyggðinni verði áfram að hluta til með flutningabílum, er ljóst að strandflutningar munu létta á umferðarþunga stórra flutningabíla og mun það auka öryggi á þjóðvegunum. Minnt er á að nú eru vöruflutningar með skipum innanlands skattlagðir mun meira en vöruflutningar með flutningabílum. Því fagna Neytendasamtökin að fram kemur í drögum að samgönguáætlun fyrir árin 2007-2018 að jafnræðis skuli gætt við gjaldtöku ólíkra samgöngugreina. Neytendasamtökin leggja áherslu á að þessu verði meðal annars náð með lækkun á gjaldtöku vegna vöruflutninga með skipum.
Senda grein

Óheimilt er að vitna í heimasíðu NS án þess að geta heimilda

Neytendasamtökin   |  Hverfisgötu 105  |  101 Reykjavík  |  sími 545 1200  |  fax 545 1212  |  netfang: ns @ns.is  |  Opið virka daga kl. 9-15
Allur réttur áskilinn Neytendasamtökunum. Tæknileg vandamál og ábendingar, hafið samband við vefstjórn: th @ns.is