21. desember 2006
Neytendasamtökin vilja af gefnu tilefni minna fjölmiðla á að skipuleggja dagskrá sína með tilliti til barna. Er hér sérstaklega átt við sjónvarpsstöðvar.
Allt of algengt er að þættir, auglýsingar og bíómyndir sem ekki eru við hæfi barna séu sýndar á þeim tíma þegar gera má ráð fyrir að börn geti verið fyrir framan sjónvarpsskjáinn. Þá er einnnig mikilvægt að hægt sé að treysta merkingum sem gefa til kynna hvort sjónvarpsefni er ætlað börnum (gulur litur: efni ekki við hæfi barna yngri en 12 ára og rauður litur: efni ekki við hæfi barna yngri en 16 ára).
Þátturinn Sporlaust, sem sýndur er á fimmtudagskvöldum í Ríkisstjónvarpinu, er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára. Samt sem áður eru þessi þættir ekki merktir með gulu merki.
Þátturinn Bráðavaktin er merktur með gulu og því ekki ætlaður börnum yngri en 12 ára. Hann er þó sýndur rétt eftir kl. 20:00 á miðvikudagskvöldum en eðlilegra væri að hann væri sýndur seinna.
Þá eru dæmi þess að myndir sem sýndar eru fyrri parts kvölds séu bannaðar börnum en undir miðnætti eru sýndar myndir sem ætlaðar eru allri fjölskyldunni.
Auglýsingar eru ekki alltaf við hæfi barna. T.d. má nefna auglýsingar sjónvarpsstöðvanna sjálfra þar sem verið er að auglýsa bannaða þætti eða myndir á þeim tíma þegar börn eru að horfa.
Í ljósi umræðu um aukið ofbeldi og skeytingarleysi í þjóðfélaginu er eðlilegt að horft sé til yngsta þjóðfélagshópsins og tryggt að hann verði ekki fyrir óþarfa áreiti. Enginn veit með vissu hvaða áhrif ofbeldisfullt, klámfengið eða hrollvekjandi sjónvarpsefni hefur á börn en eðlilegt er að þau njóti vafans. Neytendasamtökin hvetja sjónvarpsstöðvar til að merkja þá þætti sem ekki eru taldir við hæfi barna og að setja dagsskrá sína þannig upp að hagsmunir barna séu ávallt í fyrirrúmi.