Forsíða Hafa samband Aðild að NS
fimmtudagur | 9. september
Verðkannanir
Neytendasamtökin
Félagsmenn
Fréttir
EFNISYFIRLIT
Finna

INNSKRÁNING FÉLAGSMANNA
lykilorð er á bls.2 í  nýja Neytendablaðinu
Lykilorð:

 

FRÉTTIR OG PISTLAR  ÁRIÐ 2008

29. desember 2008

Lækkun leiguverðs

Í fyrsta tölublaði Neytendablaðsins 2008 birtu Neytendasamtökin stutta könnun um verð á leiguhúsnæði. Þar sem efnahagsástandið og ástand á fasteignamarkaði hefur gerbreyst síðan þá lék samtökunum forvitni á að vita hvernig verð á leigumarkaði hefði þróast.

Var því ákveðið að gera litla könnun með svipuðu sniði og hina fyrri. Einungis var kannað verð á leiguíbúðum á höfuðborgarsvæðinu en gera má ráð fyrir að leiguíbúðir annars staðar séu heldur ódýrari. Þá er ekki um að ræða tæmandi könnun á markaðnum heldur voru einungis skoðaðar íbúðir sem eru auglýstar til leigu hjá leiga.is og Rentus. Þá er ekki tekinn með í reikninginn kostnaður sem kann að skapast vegna rafmagns eða hússjóðs, heldur einungis leiguverðið sjálft. Ekki var heldur tekið tillit til þess hvort einhver húsbúnaður fylgdi með í leigunni.

 

 

 

 

 

 

 

Lækkun meðalverðs

 

Meðalstærð

Meðalverð

Meðalverð
í apríl 2008

Hæsta
verð

Lægsta
verð

Fjöldi íbúða
í könnun

Í prósentum

Í krónum

Stúdíó

38 fm.

80.363

91.313

100.000

40.000

11

12%

10.950

2 herbergja

65 fm.

110.988

119.574

160.000

80.000

41

7,2%

8.586

3 herbergja

88 fm.

132.225

140.674

240.000

85.000

49

6,0%

8.449

4 herbergja

117 fm.

148.857

169.500

200.000

110.000

35

12,2%

20.643

5 herbergja

161 fm.

186.731

229.000

350.000

120.000

26

18,5%

42.269

Eins og sjá má af töflunni hefur leiguverð lækkað talsvert, eða um allt að 18,5% vegna leigu á stærri eignum. Þó má gera ráð fyrir að raunveruleg lækkun sé umtalsvert meiri, enda gera flestir leigusamningar ráð fyrir því að leiguverð breytist með tilliti til neysluvísitölu, en hún hefur hækkað um 18% á árinu 2008. Því má reikna með því að leiga vegna þeirra íbúða sem fóru í langtímaútleigu á uppsettu verði í apríl sl. sé allt að þriðjungi hærri en hægt er að leigja sams konar íbúð á í dag.

Að endingu er vert að taka fram að Neytendasamtökin, sem þó fá fjölda erinda og fyrirspurna vegna húsaleigumála, eru ekki leigjendasamtök enda sjaldnast um neytendaviðskipti að ræða. Engin leigjendasamtök eru starfandi eins og er. Neytendasamtökin hafa ítrekað farið fram á það við félags- og tryggingamálaráðuneyti að úr þessu verði bætt en hafa enn sem komið er ekki fengið viðbrögð sem skyldi.

Senda grein

Neytendasamtökin   |  Hverfisgötu 105  |  101 Reykjavík  |  sími 545 1200  |  fax 545 1212  |  netfang: ns @ns.is  |  Opið virka daga kl. 9-15
Allur réttur áskilinn Neytendasamtökunum. Tæknileg vandamál og ábendingar, hafið samband við vefstjórn: th @ns.is