Forsíða Hafa samband Aðild að NS
miðvikudagur | 8. september
Verðkannanir
Neytendasamtökin
Félagsmenn
Fréttir
EFNISYFIRLIT
Finna

INNSKRÁNING FÉLAGSMANNA
lykilorð er á bls.2 í  nýja Neytendablaðinu
Lykilorð:

 

FRÉTTIR OG PISTLAR  ÁRIÐ 2009

07. desember 2009

Grænþvottur fyrirtækja

Alþjóðasamtök neytenda1 tilnefna sigurvegara Bad Company Awards 20092

 

Fyrirtækin fjögur Audi, BP, easyJet og Microsoft hljóta Bad Company Awards 2009, fyrir grænþvottastarfsemi3.

 

·      Alþjóðleg vörumerki eru staðin að því að ýkja fullyrðingar um lága kolefnislosun (low-carbon)

·      Verðlaunin varpa ljósi á vafasamar umhverfisfullyrðingar fyrirtækja á sama tíma og loftlagsráðstefnan í Kaupmannahöfn gengur í garð

 

Réttur neytenda til að fá réttar upplýsingar um umhverfisáhrif neysluvöru og þjónustu er hafður í fyrirrúmi við tilnefningu um verstu fyrirtækin 2009.

 

Við útnefningu þetta árið er sjónum sérstaklega beint að svokölluðum grænþvotti, sem sum alþjóðafyrirtæki stunda. Alþjóðasamtök neytenda vilja varpa ljósi á það vandamál að fyrirtæki gera of mikið úr umhverfisfullyrðingum á framleiðslu sinni.

 

Það er mikilvægt að beina athyglinni að grænþvotti á sama tíma og þjóðir heims koma saman í Kaupmannahöfn til að ræða mikilvægar aðgerðir í loftslagsmálum. Grænþvottur grefur undan trausti neytenda á markaðnum og dregur úr raunverulegum umbótum í umhverfismálum.

 

Í ár eru sigurvegarar í keppninni um verstu fyrirtæki ársins, eftirfarandi:

Audi: Fyrir að gefa í skyn í glansauglýsingaherferð sinni að hinn nýi dísel A3 sé hreinn og skaði ekki umhverfið auk þess sem gefið er í skyn að akstur á bifreiðinni sé eins grænn og að hjóla á reiðhjóli.

 

BP: Fyrir að fullyrða að fyrirtækið hafi áhyggjur af kolefnislosun og það talar iðulega um verkefni sín á sviði umhverfisvænni orkugjafa á sama tíma og hætt hefur verið við fjárfestingar í grænni orku.

 

 

easyJet: Fyrir að halda áfram fullyrðingum sínum um að flugferð með easyJet-vél sé betri fyrir umhverfið en akstur á blendningsbifreið (hybrid).

 

Microsoft: Fyrir staðhæfingar um að nýi hugbúnaðurinn Windows 7 sé grænn vegna þess að í honum er viðbótarforrit, til þess gert að spara orku, en um leið eru neytendur hvattir  til að kaupa nýjar tölvur til að geta notað þennan hugbúnað.

Sérstök verðlaun fær átakið Co2 is Green sem er stutt af olíuiðnaðinum. Þar er gerð tilraun til að koma inn þeirri ranghugmynd að kolefnislosun sé góð fyrir umhverfið.

Luke Upchurch hjá Alþjóðasamtökum neytenda segir:

Þau áhrif sem neytendur geta haft á umhverfið skipta sköpun. Nú þegar semja þarf um loftslagsaðgerðir á alþjóðavísu í Kaupmannahöfn viljum við að verðlaunin veki athygli á mikilvægi trúverðugleika þegar fyrirtæki staðhæfa eitthvað um umhverfisáhrif á þeim vörum og þjónustu sem neytendur kaupa.

 

Verðlaun þessa árs sýna að sum af stærstu vörumerkjum heimsins taka þátt í grænþvotti. Við viljum stöðva vafasamar og ýktar fullyrðingar um umhverfisáhrif neysluvarnings, svo neytendur geti tekið upplýsta og rökstudda ákvörðun við kaup.

 

Sjá nánari úttekt um verðlaunahafa, Greenwash special  (PDF)


[1] Alþjóðasamtök neytenda eða Consumer International (CI) er eina óháða barátturödd neytenda í heiminum á alþjóðavísu. Aðilar að samtökunum eru yfir 220 félagasamtök í 115 löndum, m.a. Neytendasamtökin.

[2] Þetta er þriðja árið sem Alþjóðasamtök neytenda tilnefna vöru ársins, eða fyrirtæki ársins er hafa staðið sig illa á markaði, Bad company Awards / Bad product Awards. Tilnefningar koma frá aðildarsamtökum, starfsfólki og útvöldum þriðja aðila. Dómnefnd velur sigurvegara.

[3] Grænþvottur eða greenwash kallast það þegar fyrirtæki fullyrða að vörur eða þjónusta séu umhverfisvænar eða reyna skapa sér ímynd sem umhverfisvænt fyrirtæki, án þess að vera það í raun. Viðurkennd umhverfisvottun er mjög mikilvæg fyrir neytendur til að tryggja þeim réttar upplýsingar umhverfisáhrif vöru eða þjónustu.

Senda grein

Neytendasamtökin   |  Hverfisgötu 105  |  101 Reykjavík  |  sími 545 1200  |  fax 545 1212  |  netfang: ns @ns.is  |  Opið virka daga kl. 9-15
Allur réttur áskilinn Neytendasamtökunum. Tæknileg vandamál og ábendingar, hafið samband við vefstjórn: th @ns.is