Forsíða Hafa samband Aðild að NS
fimmtudagur | 9. september
Verðkannanir
Neytendasamtökin
Félagsmenn
Fréttir
EFNISYFIRLIT
Finna

INNSKRÁNING FÉLAGSMANNA
lykilorð er á bls.2 í  nýja Neytendablaðinu
Lykilorð:

 

MATVÆLI

23. apríl 2010

Breyta þarf reglugerð um kjöt og kjötvörur

Í skýrslu vegna gæðakönnunar á nautahakki sem Matís vann fyrir Landssamband kúabænda og Neytendasamtökin kemur fram að nauðsynlegt sé að endurskoða reglugerð um kjöt og kjörvörur. Neytendasamtökin taka undir þetta og hafa nú sent Jóni Bjarnasyni sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra erindi þar sem óskað er eftir slíkri endurskoðun. Bréfið er svohljóðandi:

Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu
Skúlagötu 4
150 Reykjavík

Reykjavík 21. apríl 2010

Efni: Nauðsynlegar breytingar á reglugerð um kjöt og kjötvörur.

Þann 12. mars birtu Landssamband kúabænda og Neytendasamtökin gæðakönnun sem Matís vann fyrir þessi samtök á nautahakki. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið styrkti verkefnið að hluta.

Í niðurstöðum Matís kemur fram að endurskoða þurfi reglugerð um kjöt og kjötvörur. Matís bendir m.a. á að reglugerðin sé óljós varðandi viðbætt vatn. Einnig kemur fram í niðurstöðum að meirihluti sýnanna er með íbætt vatn og kartöflutrefjar til að binda vatnið. Það er sjónarmið Landssambands kúabænda og Neytendasamtakanna að ekki eigi að heimila að bæta öðrum efnum í nautahakk án þess að það komi skýrt fram í vöruheiti og innhaldslýsingu.

Með vísan til þessa óska Neytendasamtökin eftir að umrædd reglugerð verði endurskoðuð og verði þar m.a. tekið tillit til ofangreindra atriða. Neytendasamtökin lýsa sig reiðubúin til að taka þátt í þeirri endurskoðun verði þess óskað.

Virðingarfyllst
f.h. Neytendasamtakanna
Jóhannes Gunnarsson
formaður Neytendasamtakanna

Meðfylgjandi fylgigögn:
Skýrsla Matís: Gæðakönnun á nautahakki í janúar 2010 (sjá nánar hér).
Frétt af heimasíðu Neytendasamtakanna þar sem dregnar eru saman helstu niðurstöður könnunarinnar (sjá nánar hér).

Senda grein

Neytendasamtökin   |  Hverfisgötu 105  |  101 Reykjavík  |  sími 545 1200  |  fax 545 1212  |  netfang: ns @ns.is  |  Opið virka daga kl. 9-15
Allur réttur áskilinn Neytendasamtökunum. Tæknileg vandamál og ábendingar, hafið samband við vefstjórn: th @ns.is