Forsíða Hafa samband Aðild að NS
fimmtudagur | 11. mars
Verðkannanir
Neytendasamtökin
Félagsmenn
Fréttir
EFNISYFIRLIT
Finna

INNSKRÁNING FÉLAGSMANNA
lykilorð er á bls.2 í  nýja Neytendablaðinu
Lykilorð:

 

iNNRA STARF

Markmið og óskir
NS eru hagsmunasamtök íslenskra neytenda og vinna að því:


· að auka verð- og vöruþekkingu neytenda
· að styðja réttmætar kröfur neytenda og aðstoða þá við að ná fram rétti sínum
· að gefa út Neytendablaðið og margvíslegt fræðsluefni
· að halda námskeið og gangast fyrir annarri fræðslustarfsemi fyrir neytendur
· að stunda rannsóknir á neysluvörum og viðskiptaháttum
· að stuðla að auknu öryggi og hollustu neysluvöru
· að sjónarmið neytenda séu virt
· að auka skilning í þjóðfélaginu á sjónarmiðum neytenda
· að eðlilegar samkeppnisreglur séu virtar á markaðnum
· að umbætur séu gerðar á löggjöf til hagsbóta fyrir neytendur
· að unnið sé að gerð staðla með hagsmuni neytenda í huga
· að samráð sé haft við samtök neytenda um setningu laga og reglna sem varða neytendur

Óskir Neytendasamtakanna

Meiri þátttaka opinberra aðila
NS er eina slíka hreyfingin í norðvesturhluta Evrópu (og raunar víðar) sem þarf að sinna kvörtunar- og upplýsingaþjónustu. Í nágrannalöndum okkar sinna stjórnvöld henni sjálf enda er litið á hana sem samfélagsþjónustu.
Neytendasamtökin hafa fengið 15-20% rekstarkostnaðar síns í formi framlaga frá ríki og einstaka sveitarfélögum.Þetta er lítið miðað við neytendasamtök í nágrannalöndum. Þar hafa stjórnvöld styrkt neytendastarf myndarlega. Forsendan er m.a. sú að til þess að staða neytenda, framleiðenda og seljenda geti verið sem jöfnust verði að koma til framlag hins opinbera.
NS vinna að neytendavernd og fræðslu með hagkvæmari hætti en ætla má að opinberir aðilar gerðu ef þeir tækju að sér þjónustuna. NS fara því ekki fram á að skattgreiðendur greiði þeim peninga án þess að þeir fái fyllilega virði þess til baka í bættri þjónustu.
NS hafa aldrei beðið um ölmusu en vilja verja félagsgjöldum til innri málefna sinna. Þau telja eðlilegt að sú samfélagslega þjónusta sem samtökin veita verði kostuð af opinberum aðilum.
NS fara ekki fram á ríkisstyrki til innri starfsemi samtakanna. Þau vilja hinsvegar að stjórnvöld greiði kostnað af þeirri samfélagslegu þjónustu sem NS veita og þykir nauðsynleg í öllum þjóðfélögum í okkar heimshluta.

Meiri stuðningur stjórnmálamanna
NS hafa mikinn hljómgrunn með þjóðinni. Fjöldi félagsmanna sýnir það betur en nokkuð annað. NS hafa hinsvegar ekki notið sömu velvildar íslenskra stjórnmálamanna. Margir þeirra hafa komist í andstöðu við neytendamál og NS, þó að þeir láti það ekki uppi opinberlega, vegna sérhagsmunagæslu fyrir einstakar atvinnustéttir og hagsmunahópa. Þetta hefur krafist sérstakrar baráttu NS fyrir rétti neytenda og eðlilegu viðskiptaumhverfi.
Íslensk stjórnvöld hafa ekki haft frumkvæði í neytendamálum. NS hafa átt erfitt með að fá sjónarmið sín tekin upp á Alþingi. NS gera ráð fyrir að rofað geti til því að í röðum þingmanna eru nú ýmsir sem setið hafa í stjórn samtakanna og aðrir sem hafa beitt sér fyrir ákveðnum neytendamálum.
NS gera þá kröfu til íslenskra stjórnmálamanna að þeir sinni neytendamálum betur en þeir hafa gert hingað til. NS óska að það gerist ekki að íslenskir neytendur búi við versta lagalega umhverfi í neytendamálum í okkar heimshluta

 

 

Neytendasamtökin   |  Hverfisgötu 105  |  101 Reykjavík  |  sími 545 1200  |  fax 545 1212  |  netfang: ns @ns.is  |  Opið virka daga kl. 9-15
Allur réttur áskilinn Neytendasamtökunum. Tæknileg vandamál og ábendingar, hafið samband við vefstjórn: th @ns.is