Forsíða Hafa samband Aðild að NS
fimmtudagur | 11. mars
Verðkannanir
Neytendasamtökin
Félagsmenn
Fréttir
EFNISYFIRLIT
Finna

INNSKRÁNING FÉLAGSMANNA
lykilorð er á bls.2 í  nýja Neytendablaðinu
Lykilorð:

 

ÞJÓNUSTA NEYTENDASAMTAKANNA

Kvörtunarþjónusta

Ef þú þarft aðstoð vegna kaupa á vöru eða þjónustu getur þú snúið þér til kvörtunarþjónustu NS.

Úrskurðarnefndir

Á vegum NS og margra samstarfsaðila þeirra eru úrskurðarnefndir um ágreiningsmál milli kaupenda og seljenda á ýmsum sviðum:

  • Verslanir
  • Ferðalög
  • Vátryggingar 
  • Efnalaugar og þvottahús
  • Fjármálamarkaður
  • Iðnaðarmenn og iðnfyrirtæki 
  • Tannlæknar
Erlent samstarf 

NS eru fulltrúar neytenda í viðskiptum við erlend neytendasamtök og taka þátt í Norrænu samstarfi neytenda (NKU), Evrópusamtökum neytenda (BEUC), Alþjóðasamtökum neytenda (CI) og Alþjóðlegu rannsóknarráði neytenda (ICRT).

Verð- og gæðakannanir

Neytendasamtökin gera verðkannanir - ein eða í samvinnu við aðra. Neytendablaðið birtir markaðs- og gæðakannanir og einnig eru ítarlegri kannanir birta á vef NS fyrir félagsmenn Neytendasamtakanna.
Upplýsingaþjónusta NS hefur þessar upplýsingar á reiðum höndum. Hægt er að fá útskriftir af niðurstöðum verðkannanna.

Bækur, blöð og upplýsingar á vefnum.
  • NS gefa út Neytendablaðið (prentað og á vef NS)  og ýmis leiðbeiningarit fyrir neytendur.
  • NS selja félagsmönnum erlendar bækur á hagstæðu verði.
  • Á bókasafni NS á skrifstofunni í Reykjavík er að finna bækur og tímarit frá fjölmörgum erlendum samtökum og stofnunum neytenda, meðal annars með gæðakönnunum.
  • Félagsmenn geta fengið heimilisbókhald í rafrænu formi á vef NS.
  • Handbók Neytenda er aðgengileg fyrir alla á vef NS.
  • Lagasafn neytenda er aðgengilegt fyrirr alla á vef NS.
  • Skýrslur og rannsóknir um tryggingar og fjármál er aðgengileg á fjármálavef NS.
  • Matvælavefurinn er tengla- og upplýsingasafn um matvæli, aðgengilegt fyrir alla á vef NS.
  • Á vefnum er samantekt tengla og námsefnis í neytendafræðslu
  • Mjög ítarlegt tenglasafn um allt er viðkemur málefnum neytenda er að finna á vef NS.
Lögfræðilegar upplýsingar 

Upplýsingaþjónusta NS veitir lögfræðilegar upplýsingar um neytendamál almennt og líka einstaklingsbundið.

Annað:
  • NS skipa fulltrúa í fjölmargar nefndir þar sem fjallað er um málefni neytenda til að sjónarmiða þeirra sé gætt.
  • NS gefa umsagnir um lagafrumvörp og reglur sem varða neytendur.
  • NS halda námskeið og fyrirlestra um margvísleg neytendamál.
  • Neytendasamtökin senda reglulega erindi og kærur til viðkomandi eftirlitsstofnanna eða fyrirtækja og fylgja þeim eftir.

Hvernig gerist ég félagsmaður ?   >  Aðildarform

Hvað kostar þjónustan?  > Verðskrá  



Neytendasamtökin   |  Hverfisgötu 105  |  101 Reykjavík  |  sími 545 1200  |  fax 545 1212  |  netfang: ns @ns.is  |  Opið virka daga kl. 9-15
Allur réttur áskilinn Neytendasamtökunum. Tæknileg vandamál og ábendingar, hafið samband við vefstjórn: th @ns.is