14. mars 2008
Á morgun 15. mars er Alþjóðadagur neytendaréttar og hafa Alþjóðasamtök neytenda ákveðið að helga daginn baráttunni fyrir því að settar verði alþjóðlegar reglur um að stöðva markaðssetningu á óhollum matvælum fyrir börn. Vegna þessa hafa Neytendasamtökin sent heilbrigðisráðherra svohljóðandi bréf:
Hr. heilbrigðisráðherra
Guðlaugur Þór Þórðarson
Heilbrigðisráðuneytinu
Vegmúla 3
150 Reykjavík
Reykjavík 14. mars 2008
Efni: Alþjóðlegar reglur um að stöðva markaðssetningu á óhollum matvælum fyrir börn.
Í tilefni af alþjóðlegum degi neytendaréttar, 15. mars, skrifa ég þér fyrir hönd Neytendasamtakanna til að óska eftir stuðningi þínum við setningu á alþjóðlegum reglum um markaðssetningu á óhollum matvælum fyrir börn.
Óhollt mataræði er nú viðurkennt sem helsta orsök offitu sem tengist sjúkdómum eins og sykursýki, hjartasjúkdómum og sumum tegundum krabbameins. Vísbendingar frá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni sýna að auglýsingar á matvælum og drykkjarvörum sem innihalda mikla fitu, sykur eða salt, hafa áhrif á hvað börn borða og er mikilvægur þáttur í að auka vandamál vegna offitu barna.
Alþjóðlegar reglur um markaðssetningu á óhollum matvælum gagnvart börnum munu:
-
Vernda viðkvæmasta hóp neytenda.
-
Koma í veg fyrir að börn í mismunandi löndum séu meðhöndluð á mismunandi hátt vegna mismunandi reglna.
-
Hjálpa til við að tryggja að ekki sé grafið undan með auglýsingum jákvæð skilaboð um mikilvægi holls mataræðis.
Sem hluti af herferðinni „ruslfæðiskynslóðin” hafa Alþjóðasamtök neytenda (Consumer International) unnið með Alþjóðlega offituráðinu (The International Obesity Task Force) við að þróa drög að alþjóðlegum reglum (sjá meðfylgjandi). Neytendasamtökin taka undir með Alþjóðasamtökum neytenda að Alþjóðaheilbrigðisstofnunin og stjórnvöld í hverju landi setji slíkar reglur.
Það er því einlæg von Neytendasamtakanna að íslensk stjórnvöld:
-
Styðji áskorun um alþjóðlegar reglur um markaðssetningu sem beinist að börnum á óhollum matvælum á þingi Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar í Genf 19.-24. maí nk.
-
Styðji að reglurnar verði grunnur að lagasetningu í einstökum löndum er varðar markaðssetningu á óhollum matvælum fyrir börn.
Með von um jákvæð viðbrögð.
Virðingarfyllst
f.h. Neytendasamtakanna
Jóhannes Gunnarsson formaður
Sjá frekari upplýsingar: www.junkfoodgeneration.org.