11. desember 2009

Neytendasamtökin mótmæla auknum neyslusköttum

Í umsögnum um tvö lagafrumvörp, frumvarp til laga um ráðstafanir í skattamálum og frumvarp til laga um umhverfis- og auðlindaskatta, leggjast Neytendasamtökin gegn aukinni skattlagningu á neysluvörum. Ljóst er að slíkar skattahækkanir fara beint út í verðlagið og leiða því til meiri verðbólgu og þar með hækkunar á höfuðstóli og greiðslubyrði verðtryggðra lána.

Einnig kemur fram í umsögnum Neytendsamtakanna að álögur á bíla og bílavörur séu komnar langt úr hófi fram. Áfengi og tóbak hefur verið hækkað verulega á síðustu misserum og er enn einni hækkuninni ekki á bætandi. Það sama má segja um hækkun virðisaukaskatts með nýju 14% skattþrepi fyrir ákveðnar mat- og drykkjarvörur sem og hækkun á almenna skattþrepinu úr 24,5% í 25%. Loks benda Neytendasamtökin á að óásættanlegt sé að verð á raforku og heitu vatni hækki. Því er mótmælt að gripið sé nú til aðgerða sem koma með tvöföldum þunga á flest heimili. Heimilin hafa einfaldlega ekki efni á slíkum álögum í ljósi efnahagsástandsins.

Til baka
Senda grein