Áherslur 2010-2012

Markaðssetning


 

Upplýsingar sem koma fram í auglýsingum eiga að vera skýrar. Auglýsingar mega ekki vera blekkjandi. Það er mikilvægt að hafa virkt eftirlit með auglýsingum og að viðurlögum sé beitt. 

Villandi auglýsingar um fæðubótarefni og snyrtivörur verði tilkynntar til eftirlitsstofnanna. 

Brýnt er að fylgjast með þróun á markaðssetningu sem beint er að börnum og unglingum og grípa til aðgerða þegar það á við. 

Að bjóða kaupauka eða happdrætti með vörum ætti að  banna. Vara og þjónusta á að vera seld á eigin forsendum.


Til baka

Deila