20. október 2003

Skýrsla Neytendasamtakanna um vátryggingamarkaði


Mikil samþjöppun á markaði og stórfelldar hækkanir iðgjalda hafa skilað eigendum tryggingafélaganna miklum hagnaði á undanförnum árum. Góð afkoma félaganna birtist meðal annars í óeðlilegum vexti tjónasjóða sem gerir félögunum kleift að fresta skattgreiðslum af tekjum sínum. Þróunin gefur opinberum aðilum tilefni til þess að grípa til ýmissa ráðstafana í því skyni að verja hagsmuni neytenda. Opinberar eftirlitsstofnanir þurfa að veita tryggingafélögunum mun öflugra aðhald og grípa inní þegar hagsmunum almennings er ógnað, meðal annars vegna skorts á samkeppni.

 

Neytendasamtökin draga þessar ályktanir af niðurstöðum skýrslunnar Íslenskur tryggingamarkaður og tryggingar heimilanna.

 

Svigrúm til lækkana

Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, telur að niðurstöður skýrslunnar bendi eindregið til þess að tryggingafélögin hafi svigrúm til að lækka iðgjöld eftir stórfelldar hækkanir síðustu ára. „Fjármálaeftirlitið og Samkeppnisstofnun hafa að mínu mati alls ekki náð að veita félögunum það aðhald sem þarf. Samfara vaxandi samþjöppun og fákeppni hafa iðgjöld hækkað að meðaltali um 70 prósent á undanförnum sex árum. Tjónasjóðir félaganna hafa vaxið um 13 milljarða króna á undanförnum fimm árum, langt umfram það sem við teljum nauðsynlegt til að standa undir óuppgerðu tjóni“ segir Jóhannes.

 

Í skýrslunni er rakið hvernig aðstæður á vátryggingamarkaðinum hafa gjörbreyst á undanförnum áratug:

Mikil samþjöppun hefur orðið á markaðnum og hann ber nú greinileg einkenni fákeppni. Fyrirtækjum hefur fækkað verulega og nú ráða þrjár samsteypur, VÍS, Sjóvá Almennar og Tryggingamiðstöðin og dótturfélög þeirra, yfir 95 prósentum markaðarins.

Iðgjöld hafa hækkað að meðaltali um 70 af hundraði á undanförnum sex árum. Iðgjöld vegna lögbundinna bifreiðatrygginga hafa tvöfaldast í verði á sama tíma.

Afleiðingar þessarar þróunar birtast skýrt í afkomu félaganna þriggja:

Hagnaður sem hlutfall af eigin iðgjöldum hefur verið um tíu prósent að meðaltali á undanförnum árum og arðsemi eigin fjár hefur oftast verið á bilinu 10-20 prósent.

Eigið fé hefur þrefaldast á fimm árum. Eiginfjárhlutfallið hefur hækkað um átta prósentustig á sama tíma.

Tjónasjóðir félaganna hafa vaxið um 13 milljarða króna eða 54 prósent á síðustu fimm árum. Alls liggja nú 38,3 milljarðar króna í tjónasjóðum félaganna.

 

Skýrslan: Íslenskur tryggingarmarkaður (PDF)

 

Til baka

Deila