02. nóvember 2004

Þjóðin er reið


Reiðialda gengur nú yfir landið þegar ljóst er hvernig olíufélögin hafa með ólögmætu samráði haft milljarða af íslenskum neytendum. Nú gengur bréf á netinu þar sem fjallað er um um atlögu olíufélaganna gegn neytendum. Bréfið hefur borist í margar tölvur landsmanna og er sent af neytanda sem er ofboðið hvernig olíufélögin hafa þverbrotið ákvæði samkeppnislaga með samráði sínu til tjóns fyrir neytendur og hvetur til aðgerða gegn olíufélögunum. Kaupum bara eldsneyti hjá Esso, Olís og Shell segir bréfritari, sleppum öllum hinum vörunum sem við getum hvort eð er keypt annars staðar. Og þá getum við sleppt mörgu, enda flestar bensínstöðvar orðnar á við “kaupmanninn á horninu” með pakkavörur, kælivörur, heit vínarbrauð, pylsur og margt fleira.

 

Bréfið lýsir vel þeirri reiði sem er meðal neytenda, okkur er einfaldlega ofboðið. Við vissum svo sem hvernig olíufélögin hækkuðu alltaf samtímis um leið og minnsta ástæða var til en lækkuðu alltaf seint þegar betur áraði. Við vissum líka hvernig þau skiptu markaðnum á milli sín úti á landi í bróðerni og að þau reka sumar bensínstöðvar saman. Að samið skyldi líka um verð á smávörum, þar klikkuðum við og er vorkunn, við höfðum einfaldlega ekki ímyndunarafl til að gruna félögin um svo magnaða nákvæmni og samráð um jólagjöf til starfsmanna, fyrr má nú vera.  Við getum gerst sek um lítilsháttar skilningsleysi, en við hljótum að mótmæla því að við séum "fífl", minna má ekki vera.

 

Við hljótum að ætla að málið haldi áfram hjá lögreglunni, ekki síst með tilliti til fangelisdóma fyrir miklu minni auðgunarbrot. Ef ekki er um auðgunarbrot að ræða þegar það hljóðar upp á 6,5 milljarð króna og með samfélagslegu tjóni upp á 40 milljarða króna, þá hljótum við að spyrja hvers vegna verið er dæma menn fyrir að halda eftir sköttum upp á einhverja fáa tugi milljóna króna.

 

Í raun ættu samkeppnisyfirvöld að geta sett olíufélögin í gjörgæslu. Setja hámarksverð á eldsneyti og tryggja að það sem tekið hefur verið af neytendum sé skilað aftur. Það eru neytendur og skattgreiðendur sem hafa þurft að borga það sem tekið hefur verið ólöglega. Til vara geta stjórnvöld að hluta bætt tjónið með því að nota sektir sem olíufélögin þurfa að greiða með því að lækka bensíngjald og þungaskatt tímabundið. Neytendur eiga það að minnsta kosti inni.

 

Skilaboðin eru þessi:

Olíufélögin stálu af okkur peningum í mörg ár. Það liggur skýrt fyrir í niðurstöðum samkeppnisstofnunar. Þeir viðurkenna það – en segja að málið sé fyrnt. Þeir vilja ekki borga sektir eða skaðabætur- vegna þess að það er svo langt síðan þeir stálu frá okkur.

Við getum svarað fyrir okkur. Það þýðir ekkert að hafa bensínlausan dag. Það er bara rugl því þá verslum við bara meira á morgun. Við refsum þeim með buddunni og kaupum BARA BENSÍN!  Alveg þangað til þeir hætta að röfla og borga sínar sektir og skammast sín – þá kaupum við BARA BENSÍN. Ekki sígarettur, ekki pylsur, ekki hreinsiefni, leikföng, nammi, mat, hanska, grill né neitt annað, við kaupum allt slíkt annars staðar. Hjá olíufélögunum kaupum við BARA BENSÍN! EKKERT ANNAÐ! Þeir finna fyrir því.

Dreifðu þessu á þína vini – og stattu við það að kaupa BARA BENSÍN.
Næst þegar þú freistast til þess að kaupa eitthvað annað á bensínstöð en BARA BENSÍN þá sannar þú orð markaðsstjóra OLÍS sem sagði í samráðinu "Fólk er fífl".

Vilt þú láta hafa þig af fífli? Ef ekki þá kaupir þú BARA BENSÍN.

 

Almenningur

Félögin sem um ræðir eru:
Skeljungur, OLÍS og ESSO

Til baka
Senda grein

Tengdar greinar
2004: Bensínverð er hærra á landsbyggðinni en höfuðborgarsvæðinu
2004: Bensínverð á Akureyri
Ályktanir: Verðsamráð olíufélaganna