Forsíða Hafa samband Aðild að NS
fimmtudagur | 29. júlí
Verðkannanir
Neytendasamtökin
Félagsmenn
Fréttir
EFNISYFIRLIT
Finna

INNSKRÁNING FÉLAGSMANNA
lykilorð er á bls.2 í  nýja Neytendablaðinu
Lykilorð:

 


Spurningar og svör sem framhaldskólar landsins fengu tækifæri til að svara og til er vitnað í Neytendablaðinu 4. tbl. 2003
Sjá grein > Sjálfráða-fjárráða


1. Hefur skólinn markað sér stefnu varðandi sölumennsku innan veggja skólans?
Borgarholtsskóli:

Já , en ekki mikið.  Öll sölumennska fer í gegnum síu.

Fjölbrautarskóli Norðurlands vestra:

Almennt er það bannað. Þó eru veittar undanþágur frá þessari meginreglu í þeim tilvikum sem auglýsingin felur í sér ávinning nemenda umfram það sem almennt býðst annars staðar en í skólanum.

Fjölbrautarskóli Suðurlands:

Ekki er til formleg skráð stefna varðandi sölumennsku en það eru til reglur um auglýsingar í skólanum. Einstaka fyrirtæki, aðallega bankar hafa fengið leyfi til að kynna vöru sína á þann hátt að fulltrúar frá þeim mega vera staðsettir í miðrými skólans án þess að þeir séu að tala yfir nemendum og kynna vöru sína þannig.

Fjölbrautarskólinn Breiðholti:

Öll sölumennska er bönnuð.

Fjölbrautarskólinn í Garðarbæ:

Skólinn hefur ekki markað sér stefnu varðandi sölumennsku í skólanum

Flensborgarskóli:

Já skólinn hefur stefnu.

Framhaldsskóli A-Skaftafellssýslu:

Nei.

Framhaldskólinn í Vestmannaeyjum:

Skólinn hefur markað sér stefnu varðandi sölumennsku utanaðkomandi aðila, innan skólans, þó slík stefna hafi ekki verið gefin út opinberlega. Slík sölumennska er ekki leyfð. Í örfáum undantekningartilfellum (1 ? 2 á ári), þar sem skólinn eða nemendafélagið hafa gert sérstaka samstarfssamninga við aðila utan skólans, þá hafa þeir fengið að hafa eina stutta kynningu í frímínútum eða eftir skóla.

Hússtjórnarskólinn á Hallormsstað:

Nei.

Kvennaskólinn í Reykjavík:

Það er engin sölumennska leyfð innan veggja skólans.

Menntaskólinn á Akureyri:

Skólinn hefur markað sér stefnu varðandi sölumennsku.

Menntaskólinn á Ísafirði:

Skólinn hefur ekki markað sér formlega stefnu varðandi sölumennsku innan skólans. Hinsvegar er það afstaða skólameistara að leyfa ekki slíkt á skólatíma.  Nemendafélag skólans er hinsvegar sjálfrátt um það hvort aðilar fá að setja upp auglýsingar inni á skrifstofu nemendafélagsins.

Menntaskólinn Hraðbraut:

Nei.

Menntaskólinn við Hamrahlíð:

Já en er ekki til á blaði.

Menntaskólinn við Sund:

Verkmenntaskólinn á Akureyri:

Skólinn hefur markað sér þá stefnu að innan hans sé ekkert það auglýst sem lýtur að t.d. skemmtunum þar sem áfengi er haft um hönd o.s.frv.Við leyfum þær auglýsingar sem við teljum að séu innan eðlilegra siðferðismarka og um sé að ræða hluti sem nemendur geta verið til góðs eða hollrar skemmtunar. Við leyfum t.d. kvikmyndahúsum að auglýsa í skólanum, bönkum og tölvufyrirtækjum - enda sé verið að bjóða nemendum tilboð sem augljóslega eru þeim til hagsbóta. Ekkert fyrirtæki á greiðari aðgang að skólanum en önnur.


2. Fá fyrirtæki að vera með kynningarbása eða sölustarfsemi á göngum eða í kennslustofum skólans?
Borgarholtsskóli:

Nei, en bankarnir.  Það er í athugun hjá skólanum hvort eigi ekki að loka fyrir.

Fjölbrautarskóli Norðurlands vestra:

Nei, en styrktaraðila að kynningardegi skólans eða þeir, sem veita verðlaun t.d. í stærðfræðikeppni, hafa fengið það á meðan dagskrá varir en ekki í stofum.


Fjölbrautarskóli Suðurlands:

Vísa í svar nr. 1 en vil þó taka fram að ekki er leyfð bein sölumennska í skólanum og alls ekki neitt í kennslustofum skólans.
(Nei, ekki án leyfis og yfirleitt ekki en undantekningar hafa verið, bankar hafa komið með kynningar.  Hófst með fartölfuvæðingunni, kynna lánamöguleika)

Fjölbrautarskólinn Breiðholti:

Kynningar hafa verið leyfðar á göngum.

Fjölbrautarskólinn í Garðarbæ:

Fyrirtæki fá ekki að vera með kynningarbása eða sölustarfsemi í skólanum. Bankar, sem um það biðja, hafa fengið leyfi til að vera með kynningu í anddyri skólans einu sinni á ári 1-2 klst. í senn.

Flensborgarskóli:

Samkvæmt sérstökum samningi fá 3 bankastofnanir að hafa kynningarbás hluta úr degi í anddyri í fyrstu viku kennslu. Nú í haust, í fyrsta skipti, tóku allir með sér fulltrúa frá tölvufyrirtækjum sem kallar á endurskoðun á þessum samskiptum.

Framhaldsskóli A-Skaftafellssýslu:

Hafa ekki beðið um það en það þyrfti að meta í hvert skiptið.

Framhaldskólinn í Vestmannaeyjum:

Nei.

Hússtjórnarskólinn á Hallormsstað:

Nei.

Kvennaskólinn Í Reykjavík:

Nei.

Menntaskólinn á Akureyri:

Fyrirtæki fá ekki að vera með kynningar eða sölustarfsemi á göngum eða í kennslustofum.

Menntaskólinn á Ísafirði:

Fyrirtæki fá ekki að vera með kynningarbása eða sölustarfsemi á göngum eða í kennslustofum skólans nema um sé að ræða umferðar- eða fíkniefnaforvarnir, eða annað sem færa má rök fyrir að hafi gildi fyrir velferð nemenda.

Menntaskólinn Hraðbraut:

Já, það hefur gerst.

Menntaskólinn við Sund:

Nei. Til er þó undantekning þar sem um er að ræða samstarfsaðila skólans á einhverju sviði. Þeir hafa fengið að vera með kynningar á göngum skólans, ekki í stofum. Ekki hefur verið um að ræða kynningarbása heldur 15-20 mín. kynningu. Þá erum við með hraðbanka frá tiltekinni bankastofnun hér í skólanum (auglýsing?)

Menntaskólinn við Hamrahlíð:

Yfirleitt ekki einstaka undanþágur,  bönkum var hleypt inn vegna þess að nemendur höfðu án leyfis fengið einn banka inn og því varð að leyfa fleirum.

Verkmenntaskólinn á Akureyri

Ef þess er óskað, þá höfum við leyft slíkt. Um er að ræða einkum banka og tölvufyrirtæki. Ef t.d. Íslandsbanki hringir og biður um að fá að kynna starfsemi sína þá leyfum við það. Ef Landsbankinn hringir svo daginn eftir þá leyfum við honum það einnig.Við höfum annars ekki þurft að kvarta undan ágangi í þessi tilliti.


3. Fær nemendafélagið að vera í samstarfi við fyrirtæki varðandi sölumennsku er beinist að nemendum? 
Borgarholtsskóli:

Nei, en nemendafélög eru með fjáröflun sem er annars eðlis

Fjölbrautarskóli Norðurlands vestra:

Já  , Nemendafélagið er hagsmunafélag nemenda og er í sjálfsvald sett  að semja við ýmis fyrirtæki um afsláttarkjör fyrir nemendur.

Fjölbrautarskóli Suðurlands:

Nemendafélagið hefur fengið leyfi til þess að vera í samskiptum við fyrirtæki, aðallega varðandi auglýsingar í skólablöð og varðandi styrki tengda ákveðnum atburðum í skólalífinu.  Nemendur fá einnig afslátt hjá sumum fyrirtækjum.

Fjölbrautarskólinn Breiðholti:

Já.

Fjölbrautarskólinn í Garðarbæ:

Að ákveðnu marki fær nemendafélagið að vera í samstarfi við fyrirtæki. Slík mál eru afgreidd í skólaráði.

Flensborgarskóli:

Sölumennska sem beinist að nemendum almennt er óheimil. Nemendafélagið getur gert auglýsinga og viðskiptingasamninga t.d. i tengslum við blaðaútgáfu og sérstakar uppákmur.. Slík heimild er veitt gegnum skólastjórn og samningar lagðir þar fyrir áður þeir eru samþykktir.

Framhaldsskóli A-Skaftafellssýslu:

Skólinn hefur ekki fulla lögsögu yfir nemendafélaginu og því gefur skólinn ekki leyfi né bannar slíkt samstarf.

Framhaldskólinn í Vestmannaeyjum:

Nei, ekki varðandi sölumennsku innan skólans.

Hússtjórnarskólinn á Hallormsstað:

Nei undir flestum tilfellum ekki. Þó er ég til í að skoða málið eftir gerð og eðli vöru eða þjónustu.

Kvennaskólinn í Reykjavík:

Já varðandi félagslíf, nemendur afla auglýsingatekna til að fjármagna dagbækur, skólablöð o.fl.

Menntaskólinn á Akureyri:

Nemendafélagið hefur verið í samstarfi við fyrirtæki varðandi einstaka viðburði í skólnum en ekki þannig að fyrirtæki hafi beinan aðgang að nemendum.

Menntaskólinn á Ísafirði:

Eins og fyrr segir er nemendafélagið sjálfráða um sína fjáröflun svo framarlega sem hún kemur ekki niður á skólastarfinu.

Menntaskólinn Hraðbraut:

Já.

Menntaskólinn við Sund:

Nemendafélagið er með sjálfstæðan rekstur og með eigin ábyrgðarmann á þeim rekstri. Nemendafélagið hefur gert samninga við einhverja aðila og telja sig njóta góðs af því.

Menntaskólinn við Hamrahlíð:

Já, lítum á nemendafélögin sem sjálfstæð en þau þurfa samþykki frá skólanum ef nota á rými þess.

Verkmenntaskólinn á Akureyri:

Nemendafélagið er ekki í föstu sambandi við neitt sérstakt fyrirtæki -en stundum er lögð áhersla á sérstaka vöru eða þjónustu á grundvelli auglýsinga sem nemendur fá í blöð sín og annað er þeir gefa út.


4. Hefur skólinn haft fjárhagslegan ávinning af samstarfi við fyrirtæki sem hafa markaðsett vörur sínar innan skólans?
Borgarholtsskóli:

Nei

Fjölbrautarskóli Norðurlands vestra:

Já í formi afsláttarkjara en ekki er gerður greinarmunur á að fyrirtæki markaðsetji vörur innan skólans og  utan.

Fjölbrautarskóli Suðurlands:

Í litlum mæli. Aðallega bankarnir sem hafa kynnt tilboð sín og hafa síðan auglýst á skóladagbók skólans.

Fjölbrautarskólinn Breiðholti:

Leyft að auglýsa gegn gjaldi.

Fjölbrautarskólinn í Garðarbæ:

Nei !

Flensborgarskóli:

Já. Á árinu 1999-2000 var í gangi sérstakur samningur við nokkur fyrirtæki og stofnanir sem tóku þátt í viðamiklu uppbyggingarverkefni innan skólans. Þetta var á tölvu - fjármála og fjarskiptasviði.

Framhaldsskóli A-Skaftafellssýslu:

Nei.

Framhaldskólinn í Vestmannaeyjum:

Nei, með einni undantekningu sem fellur undir það sem átt er við í spurn. 1, en skólinn gerði samning við tiltekið fyrirtæki um kaup á tölvubúnaði og í tengslum við hann var skólanum gefinn búnaður til þráðlausra örbylgjusendinga í húsnæði skólans. Fyrirtækinu var leyft að kynna ákveðið tilboð til nemenda og starfsmanna, sem enginn var þó bundinn af.

Hússtjórnarskólinn á Hallormsstað:

Nei.

Kvennaskólinn í Reykjavík:

Nei.

Menntaskólinn á Akureyri:

Skólinn hefur ekki haft fjárhagslegan ávinning af samstarfi við fyrirtæki enda hefur þeim ekki verið heimilt að markaðsetja vörur sínar innan skólans.

Menntaskólinn á Ísafirði:

Nei, skólinn hefur ekki haft fjárhagslegan ávinning af samstarfi við fyrirtæki sem hafa markaðssett vörur sínar innan skólans.

Menntaskólinn Hraðbraut:

Nei.

Menntaskólinn við Sund:

Já, sbr. Það sem var sagt um samstarfsaðila skólans (sameiginlegir hagsmunir beggja aðila).

Menntaskólinn við Hamrahlíð:

Nei

Verkmenntaskólinn á Akureyri:

Skólinn hefur ekki haft fjárhagslegan ávinning af því að versla við fyrirtæki sem markaðssett hafa vöru sína inna skólans - ekki umfram þau tilboð sem nemendum hafa verið boðin.


5. Veitir skólinn nemendum sínum ráðgjöf eða kennslu í fjármálum?
Borgarholtsskóli:

á mörgum brautum fjármálastjórn kennd og almennt um fjármál


Fjölbrautarskóli Norðurlands vestra:

Fjölbrautarskóli Suðurlands:

Þessi ráðgjöf eða kennsla kemur inn í LKN áfanga.

Fjölbrautarskólinn Breiðholti:

Já í lífsleikni og einnig á viðskiptasviði.

Fjölbrautarskólinn í Garðarbæ:

Já! Í lífsleikniáföngum fá allir nemendur fræðslu um fjármál. Sérfræðingar frá bönkum hafa komið og aðstoðað við kennsluna

Flensborgarskóli:

Já en ekki tryggt að allir nemendur fari í gegnum þá fræðslu.

Framhaldsskóli A-Skaftafellssýslu:

Já í áfanganum lífsleikni 103.

Framhaldskólinn í Vestmannaeyjum:

Já, farið er í gegnum ákveðið námsefni um fjármál einstaklinga og heimilis, með öllum nemendum á fyrsta námsári.

Hússtjórnarskólinn á Hallormsstað:

Já.

Kvennaskólinn í Reykjavík:

Já, þó takmarkaða. Í lífsleikni í 1. bekk er nokkur fræðsla og gjaldkerar Keðjunnar (nemendafélags skólans), Fúríu (leikfélags skólans) og ritstjórn skólablaðsins fá einnig leiðsögn í fjármálum og áætlanagerð.

Menntaskólinn á Akureyri:

Þessir þættir koma inn í lífsleiknikennslu og félagsfræðikennslu.

Menntaskólinn á Ísafirði:

Skólinn starfrækir viðskipta- og verlunarbraut, en veitir ekki ráðgjöf eða kennslu í fjármálum umfram það sem námsskrá gerir ráð fyrir.

Menntaskólinn Hraðbraut:

Það mun væntanlega verða gert í áfanganum Lkn-103 eftir því sem áfangalýsing í námskrá gefur tilefni til.

Menntaskólinn við Hamrahlíð:

Í hagfræðiáfanga.

Menntaskólinn við Sund:

Já.

Verkmenntaskólinn á Akureyri:

Í lífsleikniáföngum er farið í þessa hluti með öllum nemendum.


6. Er neytendafræðsla hluti af einhverjum námsgreinum skólans og þá hvaða námsgreinum og hvaða námsefni er notað?
Borgarholtsskóli:

Á verslunarbraut.

Fjölbrautarskóli Norðurlands vestra:

Já, í VRR103, kennslubók Láru V. Júlíusdóttur  Verslunarréttur,  LKN 102, efni frá kennara og að lokum má geta þess að á hagfræðibraut eru ýmislegt  í einstökum  þáttum kennslunnar tengt neytendahagsmunum  án þess að fyrir liggi sértakt útgefið námsefni.

Fjölbrautarskóli Suðurlands:

Neytendafræðsla telst ekki vera hluti af kennslu í ákveðnum áföngum innan skólans, en víða er komið inn á neytendamál.

Fjölbrautarskólinn Breiðholti:

Í lífsleikni, bókin fjármálastjórinn þinn og efni í samráði við kennara.

Fjölbrautarskólinn í Garðarbæ:

Í lífsleikniáföngum er ráðgert að hefja neytendafræðslu á þessari önn.

Flensborgarskóli:

Já. Fyrst og fremst innan lífsleikni á fyrsta ári og þar er notað efni frá ýmsum stöðum, m.a. frá Neytendasamtökunum.

Framhaldsskóli A-Skaftafellssýslu:

Já í áfanganum lífsleikni 103.

Framhaldskólinn í Vestmannaeyjum:

Nei, því miður er ekki hægt að segja að skipuleg neytendafræðsla sé í boði hjá okkur, þó komið sé inná þessi mál í félagsfræði og næringarfræði áföngum.

Hússtjórnarskólinn á Hallormsstað:

Já, í mörgum greinum.... hreinlætisfræði, matreiðslu bæði bóklegri og verklegri, fatasaum ofl.

Kvennaskólinn í Reykjavík:

Nei ekki beint en þó er komið inn á vissa þætti í lífsleikni, náttúruvísindum, líffræði, stærðfræði og fleiri greinum. (Hér hefði mátt skilgreina betur hvað átt er við með neytendafræðslu).

Menntaskólinn á Akureyri:

Þessir þættir koma fyrir í lífsleikni og félagsfræðikennslu og þar eru notaðar kennslubækur í lífsleikni og félagsfræði.

Menntaskólinn á Ísafirði:

Neytendafræðsla er ekki hluti af neinum námsgreinum skólans en gæti hinsvegar átt vel heima í lífsleikni.

Menntaskólinn Hraðbraut:

Væntanlega verður einhver slík fræðsla í áfanganum Lkn-103, en sá áfangi verður væntanlega kenndur í fyrsta sinn vorið 2005.

Menntaskólinn við Hamrahlíð:

Nei

Menntaskólinn við Sund:

Já. Innan lífsleikninnar (allir nemendur fá þá kennslu). Mismunandi hvaða námsefni er þar notað en þessi fræðsla tengist m.a. samstarfi skólans og verkalýðsfélaga um réttindi og skyldur á vinnumarkaði.

Verkmenntaskólinn á Akureyri:

Neytendafræðsla fer fram í greinum er lúta að viðskiptasviði skólans - ekki þó í ríkum mæli.


Skólar sem ekki svöruðu:

Fjölbrautaskóli Suðurnesja  
Fjölbrautaskóli Vesturlands 
Fjölbrautaskólinn við Ármúla 
Framhaldsskólinn á Húsavík  
Framhaldsskólinn á Laugum  
Garðyrkjuskóli ríkisins  
Hússtjórnarskólinn í Reykjavík  
Iðnskólinn í Hafnarfirði  
Iðnskólinn í Reykjavík  
Menntaskólinn á Egilsstöðum  
Menntaskólinn á Laugarvatni  
Menntaskólinn í Kópavogi  
Menntaskólinn í Reykjavík  
Stýrimannaskólinn í Reykjavík,
Vélskóli Íslands  
Verkmenntaskóli Austurlands
Verzlunarskóli Íslands

Neytendasamtökin   |  Hverfisgötu 105  |  101 Reykjavík  |  sími 545 1200  |  fax 545 1212  |  netfang: ns @ns.is  |  Opið virka daga kl. 9-15
Allur réttur áskilinn Neytendasamtökunum. Tæknileg vandamál og ábendingar, hafið samband við vefstjórn: th @ns.is