Tillögur um markmið og innihald neytendafræðslu i framhaldsskólum
Neytendur geta endurgjaldslaust sótt sér eintak af útgáfunni á íslensku > smella hér
Á miðjum tíunda áratugnum var hafist handa við að móta tillögur um markmið og innihald neytendafræðslu í skólum, en það starf byggðist á reynslu og árangri af samvinnu á milli norrænna neytendasamtaka og neytendastofnana.
Mikið hefur verið stuðst við stefnuskrána "Neytendafræðsla á Norðurlöndum" (Forbrugerundervisning i skolen) síðan hún kom út árið 1995. Henni hefur verið dreift í mörg hundruðum eintökum innan álfunnar, ma. á vegum "European Network of Consumer Educators", en sá vinnuhópur var stofnaður að norrænu frumkvæði. Þá gefur vinnuhópurinn út tímaritið "Nice-Mail" fyrir norrænt fé.
Árið 2000 var gefin út þessi endurskoðaða útgáfa af stefnuskránni "Neytendafræðsla á Norðurlöndum", ekki síst hvað varðar þróun á notkun tölvugagna og Netsins. Þá hefur verið bætt við atriðum varðandi lífsstíl og siðfræði.