Neytendasamtokin

NÝTT Á VEFNUM:

Rauða hliðið - græna hliðið?

Það getur borgað sig að velja rauða hliðið í Leifsstöð, ef fólk hefur keypt varning erlendis sem því ber að greiða toll af. Hver einstaklingur má koma með til landsins tollfrjálsar verslunarvörur að verðmæti allt að 88.000 krónur.

Fjarskipti eru flókin og dýr

Með allri þessari nýju tækni í fjarskiptum eru skilmálar oft mjög flóknir og ógegnsæir. Íslenskir neytendur sem eru alltaf svo nýjungagjarnir þegar tækni er annars vega virðast engin tök hafa á heimilisbókhaldinu.

Styrking krónunnar á að skila sér til neytenda

Þrátt fyrir styrkingu krónunnar að undanförnu lækkar verð til neytenda mun minna. Það er ekki ásættanlegt.

Nóg að gera í leigumálum!

Tæplega 500 erindi hafa borist Leigjendaaðstoðinni það sem af er ári. Auk þess rekur Leigjendaaðstoðin sérstaka upplýsingasíðu um leigumál og einnig er áformað að halda  námskeið fyrir leigjendur.  

Ólögleg innheimta verðbóta

Nýlega var Lýsing dæmd til að endurgreiða lántaka verðbætur sem ekki hafði verið samið um. Skorað er á Lýsingu að endurreikna öll lán sem svona er ástatt um og endurgreiða viðskiptavinum sínum það sem var ofrukkað.

Námskeið um réttindi leigjenda

Tilgangur námskeiðsins er að kynna fyrir þátttakendum helstu atriði húsaleigulaga og gera þá betur í stakk búna til að leysa ágreining sem upp kann að koma.

Verðkannanir í matvöruverslunum

Það er skoðun samtakanna að með því að meina aðilum að skrá niður verð hafi viðkomandi verslun eitthvað að fela fyrir neytendum.

Ekki spornað gegn smálánum strax!

Ekki er annað að sjá en smálánafyrirtækin lifi góðu lífi, í það minnsta auglýsa þau öll lánveitingar á heimasíðum sínum.  Jafnvel þó ákvæði hafi verið bætt við núgildandi lög um neytendalán.

 

 

   felagsmadur1 


reynslusogur1


ecc-net_logo 
Evrópska neytenda-aðstoðin

Dæmi um mál
sem berast til:

ECC Ísland