
NÝTT Á VEFNUM:
Nýtt kortatímabil?
Um miðbik hvers mánaðar er ekki óalgengt að verslanir auglýsi nýtt kortatímabil. Neytendur eiga að geta treyst því að þegar svona er auglýst komi kreditkortafærslur á nýtt kortatímabil. Neytendasamtökin hafa þó fengið kvörtun frá neytanda um að svo sé alls ekki raunin og sendu samtökin því kortafyrirtækjunum og bönkunum bréf og óskuðu eftir útskýringum. Svör þeirra eru eftirfarandi:
Kreditkort
Einstaklingskort sem gefin eru út af Kreditkortum eru öll með sama úttektartímabilið eða 27.-26. næsta mánaðar. Því eru kreditkort sem gefin eru út af Kreditkortum ekki með breytilegum tímabilum.
Valitor
Kort útgefin af Valitor eru með breytilegt tímabil sé slíkt auglýst. Þetta kemur þó ekki fram í heimabanka fyrr en í kringum 25. hvers mánaðar.
Landsbankinn
Valitor sér um þessa þjónustu fyrir Landsbankann og því gilda sömu reglur og hjá Valitor. Þeir sem ekki vilja nýta sér breytilegt kortatímabil geta beðist undan því.
Íslandsbanki
Íslandsbanki bendir einnig á reglur Valitor í sínu svari.
Arion banki
Arion banki vísar einnig til reglna Valitors varðandi Visa kort. Bankinn gefur einnig út MasterCard kort og gilda sömu reglur um þau kort og Visakortin en breytilegu tímabilin geta þó verið með mismunandi dagsetningum.
Það er því ljóst að þegar kemur að nýju kortatímabili gilda ekki alltaf sömu reglur og í sumum tilvikum er ekki um nýtt kortatímabil að ræða þrátt fyrir að verslanir auglýsi þannig. Neytendasamtökin setja spurningamerki við að seljendur auglýsi nýtt kortatímabil þegar það er ekki rétt í öllum tilfellum. Þyrfti því að gera fyrirvara þar sem það á við. Þá hvetja Neytendasamtökin neytendur sem vilja hafa sitt á hreinu að hafa samband við útgefanda kortsins (kortafyrirtæki eða banki) til að fá upplýsingar um hvaða reglur gilda.


