Leigjendaaðstoðin
Neytendasamtökin reka sérstaka leigjendaaðstoð fyrir leigjendur íbúðarhúsnæðis samkvæmt samningi við velferðarráðuneytið.
Símatími er frá 12:30-14:00 á mánudögum, þriðjudögum og fimmtudögum. Einnig er hægt að koma á skrifstofu Neytendasamtakanna eða erindi í tölvupósti.
Hjá leigjendaaðstoðinni er hægt að fá upplýsingar og ráðleggingar og milligöngu ef þörf krefur. Einnig eru leigjendur hvattir til að kynna sér þær upplýsingar sem aðgengilegar eru á www.leigjendur.is.
Ef leigusali og leigutaki ná svo ekki samkomulagi um ágreiningsefni sín er hægt að leita til kærunefndar húsamála, sjá nánari upplýsingar hér.
