Mál nr. 1/2009

Þriðjudaginn 5. maí 2009 var fundur haldinn í Kvörtunarnefnd Neytendasamtakanna og Félagi efnalaugaeigenda.

Fyrir var tekið mál nr. 1/2009

C
gegn
Efnalauginni D

Deilt um bætur vegna meints tjóns á karlmannsjakka við hreinsun hjá Efnalauginni D.

Kröfur kvartanda
Kvartandi gerir kröfur um að Efnalauginni D verði gert að greiða fullar bætur fyrir jakkann en hann kostaði u.þ.b. kr. 35.000.

Gögn: 

  1. Kvörtun C, til Kvörtunarnefndar Neytendasamtakanna og Félags efnalaugaeigenda, dags. 26. janúar 2009. 
  2. Endursögn símtals starfsmanns Neytendasamtakanna við starfsmann Efnalaugarinnar D 26. febrúar 2009. 
  3. Karlmannsjakki sem varð fyrir meintu tjóni.

Málavextir:
Í kvörtuninni kemur fram að kvartandi hafi sett nýjan karlmannsjakka í hreinsun hjá Efnalauginni D í lok desember 2008. Í jakkanum voru blóðblettir. Þegar jakkinn hafi verið sóttur skömmu síðar hafi komið í ljós að hann var ekki eins og hann átti að vera.

Jakkinn var mjög kipraður eftir hreinsunina en blóðblettir höfðu náðst úr jakkanum. Með samþykki málsaðila var jakkinn pressaður aftur hjá efnalauginni E. Eftir þá meðferð er jakkinn vel útlítandi en þó er kipringur á bak við boðunga. Eftir pressunina hjá efnalauginni E er jakkinn í ásættanlegu ásigkomulagi að mati kvörtunarnefndarinnar, einkum í ljósi þess að mjög erfitt er að ná blóðblettur úr fatnaði í hreinsun. Er því ekki ástæða til þess að Efnalaugin D greiði eiganda jakkans bætur.
 
Niðurstaða:
Kvörtunarnefnd Neytendasamtakanna og Félagi efnalaugaeigenda telur ekki ástæðu til að ákvarða bætur.


Sigurður Jónsson
Dröfn Farestveit
Sigurjón Heiðarsson



Deila
Prentvæn útgáfa

 felagsmadur1