![]() |
![]() |
![]() |
||
|
|
|
|||
![]() |
![]() |
![]() |
Ekki boðið upp á tryggingu?
Týndur farangur
Til Evrópsku neytendaaðstoðarinnar leitaði maður sem hafði flogið með íslenskum flugrekanda frá Keflavík til Varsjár með millilendingu í Zurich í Sviss þann 8. september 2012. Maðurinn hafði innritað tösku sína í flugið en fékk hana ekki afhenta við komuna til Varsjár og tilkynnti því tapaðan farangur við komu sína þar.
Ógilt gjafabréf
Sænskur neytandi fékk frímiða/gjafabréf frá íslensku flugfélagi í júní 2011. Í tölvupósti til mannsins er innihélt kóðanúmer gjafabréfsins sagði að bréfið gilti til 29. apríl 2013. Annað félag keypti svo rekstur flugfélagsins í október 2012 og tók þá jafnframt við gjafabréfum sem gefin höfðu verið út af gamla félaginu.
Of gott til að vera satt? Ekkert er ókeypis!
Nýlega gáfu ECC-stöðvarnar í Svíþjóð, Danmörku, Noregi og Finnlandi út sameiginlega skýrslu undir yfirskriftinni „Too good to be true? Unsolicited goods“. Skýrslan fjallar um óumbeðnar vörusendingar til neytenda, en slík markaðssetning hefur færst mjög í vöxt á Norðurlöndunum.














