25. mars 2009

Ákvörðun Ríkisútvarpsins fagnað


 
Neytendasamtökin fagna ákvörðun útvarpsráðs að hætta birtingu auglýsinga í tengslum við barnaefni í sjónvarpi. Þetta er í samræmi við leiðbeinandi reglur um aukna neytendavernd barna sem umboðsmaður barna og talsmaður neytenda gáfu út í janúar 2009 og tóku gildi 15. mars sl. Að mati samtakanna þarf að bregðast við sífellt meira markaðsáriti gagnvart börnum og er þetta mikilvægt skref í þeim efnum. Jafnframt hvetja Neytendasamtökin seljendur til að kynna sér þessar reglur og að fara eftir þeim.
 
Hægt er að kynna sér reglurnar hér.
 
 


Deila
Prentvæn útgáfa

 felagsmadur1