ESB gagnrýnir bankana harðlega
Í gær gaf framkvæmdastjórn neytendamála hjá Evrópubandalaginu (SANCO) út skýrslu vegna könnunar á bankaþjónustu fyrir einstaklinga. Könnunin fór fram í öllum aðildarríkjum bandalagsins en ekki í Noregi og á Íslandi og tók til 224 banka. Tilgangur könnunarinnar var að skoða betur ýmis atriði sem talin voru valda neytendum vandkvæðum í fjármálaviðskiptum, svo sem ógagnsæi gjaldskráa, upphæðir þjónustugjalda, skortur á upplýsingum fyrir samningsgerð og örðugleikar samfara því að skipta um viðskiptabanka.
Helstu niðurstöður könnunarinnar eru eftirfarandi:
- Gjaldskrár hjá bönkunum eru oft ógagnsæjar. Nærri þriðjungur neytenda treystir sér ekki til að bera saman kostnað milli banka og tilboð frá bönkunum.
- Verðupplýsingar og gjaldskrár á heimasíðum bankanna eru ófullnægjandi. Í 66% tilvika þurftu sérfræðingarnir sem unnu við skýrsluna að leita nánari skýringa hjá bönkunum varðandi gjaldskrár þeirra. Um 10% banka veittu litlar eða engar verðupplýsingar á heimasíðum sínum.
- Mikill munur er á kostnaði við bankaviðskipti milli landa. Ítalskir neytendur greiða þannig 253 evrur í þjónustugjöld á ári vegna meðalnotkunar en neytendur sem skipta við búlgarska banka greiða einungis 27 evrur. Þegar skoðaðir voru „afar virkir“ neytendur var munurinn enn meiri, eða 831 evra á Ítalíu en 28 evrur í Búlgaríu.
- Mörgum neytendum finnst upplýsingar sem þeir fá frá bönkunum fyrir samningsgerð flóknar, illskiljanlegar og ónægar.
- Margt bendir til þess að neytendur fái ekki viðeigandi upplýsingar um fjármálagerninga. Þýsk gögn benda t.a.m. til þess að þýskir neytendur verði fyrir tjóni upp á 20-30 milljarða evra vegna ófullnægjandi fjármálaráðgjafar.
- Þeir sem selja fjármálaþjónustu hafa í sumum tilvikum ekki nægilega þekkingu á vörunni sem þeir eru að selja til að geta leiðbeint neytendum sem skyldi. Þá geta starfsmenn bankanna, sem jafnframt sinna fjármálaráðgjöf, lent í hagsmunaárekstrum, þar sem hagsmunir bankans og neytandans fara ekki alltaf saman.
Skýrsluna sjálfa er að finna á ensku hér og vinnuskjal vegna hennar hér.
