BPA loksins bannað í pelum
Neytendasamtökin lengi barist fyrir því að efnið BPA (Bisphenol-A) verði bannað í pelum. Efnið hefur hormónaraskandi áhrif og er mikið notað í plastiðnaði. Það hefur verið mikið notað í matarílát úr plasti svo sem pela, vatnflöskur og í húð innan í niðursuðudósum. Efnið hefur einnig mælst í miklu magni í kassakvittunum. Danir voru meðal fyrstu þjóða til að banna efnið í pelum og matarílátum fyrir ung börn.
Barátta frá 2009
Alls hafa Neytendasamtökin sent fjögur erindi til ráðherra vegna þessa máls á tveimur árum. Fyrst var erindi sent á umhverfisráðherra árið 2009 en síðar kom í ljós að málið heyrði undir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Honum var þá sent erindi í janúar 2010 og aftur ítrekun í júní 2010.
Beðið eftir Evrópu
Í svari frá ráðuneytinu, sem barst skömmu síðar, kom fram að Matvælaöryggisstofnun Evrópu væri að meta efnið og ef ákveðið yrði að banna það myndi Ísland taka slíkar reglur upp í gegnum EES-samninginn. Síðar kom reyndar í ljós að Evrópusambandið ákvað að banna BPA í pelum líkt og Danir höfðu þá þegar gert.
Eftir engu að bíða
Í mars á þessu ári sendu Neytendasamtökin aftur erindi til ráðherra og hvöttu til þess reglur um bann við BPA yrðu settar hið fyrsta. Engin ástæða væri til að bíða eftir tilskipun frá Evrópusambandinu. Þá tæki oft langan tíma að innleiða löggjöf hér á landi í gegnum EES-samninginn. Hér væru hagsmunir yngstu neytendanna í húfi og því ekki eftir neinu að bíða.
Ráðherra setur reglugerð
Neytendasamtökin fengu aldrei svar við síðasta erindinu en ráðherra hefur nú sett reglur sem banna BPA í pelum. Vinna Neytendasamtakanna í þessu máli hefur því borið árangur og ráðherra hefur tekið mikilvægt skref sem samtökin fagna. Frakkar hafa nú ákveðið að banna BPA í öllum matarílátum og hvetja Neytendasamtökin stjórnvöld til að fylgjast vel með þróuninni og vera ávallt í fararbroddi þegar kemur að neytendavernd.
