Heimilisreksturinn gerður upp

Gott heimilisbókhald sýnir hvert peningarnir fara og hvort vænta megi afgangs. Stundum þarf að skera niður og þá er gott að sjá hvar er svigrúm til þess.

Skilaréttur

Það er ekkert talað um skilarétt í lögum og strangt til tekið þurfa verslanir ekki að taka aftur við vörum nema þær séu gallaðar.

Skýrar merkingar á matvæli

Neytendur þurfa skiljanlegar merkingar á matvæli. Magn sykurs, salts og fitu í matvælum á ekki að vera leyndarmál.

Neyslusköttum mótmælt

Neytendasamtökin hafa sent umsagnir um ráðstafanir í ríkisfjármálum og frumvarp um breytingar á lögum um vörugjald (sykurskattur).

Gjöfin sem gleður kaupmanninn?

Ekki er vitað hversu mörg gjafabréf gleymast, týnast eða úreldast en um verulega upphæðir getur verið að ræða.

Þessi reykskynjari er ekki öruggur

Reykskynjari af tegundinni KD-107 hefur ítrekað fallið á gæðaprófi. Þeir eru ekki lengur seldir hér svo vitað sé en gætu verið uppsettir á heimilum.

Hvernig endurreiknar Arion banki lánin?

Arion banki á að endurgreiða ólöglegt vaxtaálag á myntkörfulánum við endurútreikning. Hver ætlar að tryggja að það verði gert?

Um hækkun á dreifingu rafmagns

Landsnet, sem annast flutning rafmagns, hefur tilkynnt um hækkun á gjaldskrá sinni. Hækkunin er 9% til almennra notenda og 20% til stórnotenda.

Vanræksla á dýrum látin viðgangast

Um árabil hafa ábúendur á Stórhóli verið undir eftirliti yfirvalda vegna slæmrar meðferðar á sauðfé. Ekki virðist þó hægt að meina ábúendum að stunda búskap.

Verum viss um að gjöfin gleðji

Skilaréttur, skilamiðar, útsölur og gjafabréf. Áður en jólagjafirnar eru keyptar er gott að kynna sér málin.

Kauptu ekkert dagurinn

Í dag 24. nóvember er „kauptu ekkert dagurinn“. Þetta er alþjóðlegur dagur sem hefur þann tilgang að spyrna fótum gegn ofneyslu í heiminum.

Neytendasamtökin brutu ekki trúnað

Á Alþingi í dag voru Neytendasamtökin sökuð um að brjóta trúnað en þau birtu í gær frétt um að fulltrúar bænda hefðu gengið út af fundi starfshóps sem er að móta samningsafstöðu Íslands í aðildarviðræðum við ESB um landbúnaðarmál.

Má ekki lækka verð á landbúnaðarvörum?

Bændasamtökin verða að gera sér grein fyrir því að þau eru ekki einráð þegar kemur að samningsafstöðu Íslands í landbúnaðarmálum.

Seljendur á Tyrklandsferð taka ekki kreditkort

Auglýsingapési um ferðir til Tyrklands hefur eflaust borist til meirihluta íslenskra heimila nú síðustu daga. Það sem vekur athygli er fyrirkomulagið á sölu í þessar ferðir.

Við þurfum ekki að eiga allt ...og aðeins meira

Hagsæld þjóða mælist í neyslu og okkur er sagt að sparsemi auki atvinnuleysi. Allt snýst um að þjónusta hvert annað og strauja greiðslukortið hægri, vinstri.

Nýtnivikan er að hefjast

Dagana 17.-25 nóvember stendur svokölluð nýtnivika yfir. „Nýtum og njótum“ er yfirskrift vikunnar og markmiðið er að draga úr myndun úrgangs og hvetja fólk til að nýta hluti betur.

Kosið um merkingar á erfðabreyttu

Íbúar Kaliforníu kusu nýlega um það hvort merkja ætti erfðabreytt matvæli eins og gert er í Evrópu.  Tillagan var felld með naumum mun.

Endurútreikningur á ólöglegum lánum Arion banka

Lánaskilmálar Arion banka á gengistryggðum lánum brutu í bága við lög um neytendalán. Taka þarf tillit til þess við endurútreikning lána.

Heilsufarsáhrif erfðabreyttra afurða

Fimm hagsmunasamtök, þar á meðal Neytendasamtökin, hafa sent opið bréf þar sem minnt er á rannsókn sem bendir til neikvæðra heilsuáhrifa erfðabreyttra afurða.

Auðveldara að versla á netinu

Þingsályktunartillaga um aðgerðir til að efla og auðvelda póstverslun hefur verið samþykkt á Alþingi. Neytendasamtökin hafa lengi barist fyrir því að póstverslun verði einfaldari og ódýrari.

Höfum náð langt - en þarf að gera betur

Skortur á matvælamerkingum varð Sveini Ásgeirssyni, formanni Neytendasamtakanna, að umtalsefni árið 1960. Það stóð þó ekki á íslenskum framleiðendum að veita upplýsingar væri þess krafist.

Áherslur Neytendasamtakanna 2012-2014

Á þingi Neytendasamtakanna þann 29. september voru áherslur í samtakanna fyrir tímabilið sept. 2012-2012 samþykktar.

Verðtrygging á neytendalánum

Á þingi Neytendasamtakanna sem haldið var 29. september sl. var samþykkt svohljóðandi um afnám verðtryggingar á neytendalánum.

Ný stjórn Neytendsamtakanna

Á þingi Neytendasamtakanna sem haldið var 29. september sl. var kosin ný stjórn Neytendasamtakanna.

Gjöld vegna gæludýra

Gjöld vegna katta- og hundahalds eru mjög mismunandi eftir sveitarfélögum. Neytendasamtökin könnuðu málið

Merkingar á erfðbreyttum matvælum

Ný rannsókn sýnir að all margar matvörur sem innihalda erfðabreytt efni eru seldar í verslunum hér á landi án þess að um það sé getið á vörumerkingum.

Gæðakönnun á sparperum

Ný gæðakönnun á sparperum er nú aðgengileg á læstum síðum félagsmanna. Sparperur geta verið mjög dýrar og því er um að gera að kaupa ekki köttinn í sekknum.

Tæplega þúsund leigumál það sem af er ári

Fyrstu átta mánuði ársins bárust leigjendaaðstoðinni 994 erindi. Símatími fyrir leigjendur er á mánudögum, þriðjudögum og fimmtudögum eftir hádegi.

Búbót fyrir hvern?

Neytendasamtökunum hafa borist margar kvartanir frá námsmönnum og aðstandendum þeirra vegna breytinga á fyrirkomulagi nemakorta í strætó.

Aðild Íslands að ESB

Ef skoðaðir eru þrír þættir sem skipta neytendur mestu máli; húsnæðislán, matarkostnaður og neytendavernd þá er ljóst að aðild að ESB hefur verulega þýðingu fyrir neytendur.

Nýtt kortatímabil?

Seljendur auglýsa gjarnan nýtt kortatímabil en það fær ekki alltaf staðist því reglur kortaútgefenda eru misjafnar. Neytendasamtökin könnuðu málið.

Reikisímtöl lækka í verði

Reikisímtöl lækka þrátt fyrir að ekki sé búið að innleiða nýjar reglur Evrópusambandsins um verðþak á slíkum símtölum.

Nýr samningur um leigjendaaðstoðina

Í dag var undirritaður samningur um að Neytendasamtökin haldi áfram að starfrækja aðstoð við leigjendur.

Björt framtíð fyrir íslenska neytendur?

Neytendasamtökin hvetja stjórnvöld til að fella niður tolla af innfluttum ostum sem ekki eru framleiddir hér á landi.

Búðargluggar í miðbæ Akureyrar illa merktir

Einungis 25% verslana í miðbæ Akureyrar er með góðar eða ásættanlegar verðmerkingar í gluggum. Engar eða mjög lélegar merkingar er að finna í 75% tilfella.

Leiðarvísir um leigu á bíl erlendis

Greinargóðar leiðbeiningar um hvernig rétt er að bera sig að þegar bíll er leigður, þegar tekið er við honum, á meðan leigutíma stendur og við skil hans.

Furðulegt háttalag fjölskyldu

Er yfirhöfuð hægt að vera án einkabílsins á Íslandi? Hildur Hauksdóttir rekur hér reynslusögu fjögurra manna fjölskyldu sem lét á það reyna.

PIP skandall kallar á viðbrögð

Núverandi kerfi veitir neytendur litla vernd gegn skaðlegum vörum. Þörf er á gagngerum endurbótum á Evrópulöggjöf um ígræðanleg lækningatæki.

Einn mola fyrir hvert ár

Krónan, í samvinnu við Matís hefur brugðið á það ráð að birta upplýsingar um hóflegan skammt sælgætis með það að markmiði að minnka óhóflega neyslu sælgætis.

Meint áhætta á óverðtryggðum lánum

Ummæli framkvæmdastjóra ÍLS vekja vissa undrun því ekki verður séð að verðtryggðu lánin lúti öðrum lögmálum svo vægt sé til orða kveðið.

Erfðabreytt matvæli merkt

Ræktun erfðabreyttra matvæli hefur víða verið umdeild og mætt andstöðu meðal neytenda. Nú er loksins skylt að merkja erfðabreytt matvæli á Íslandi.

Sameinum Neytendastofu og talsmann neytenda

Hlutverki talsmanns neytenda verður ágætlega fyrir komið hjá Neytendasamtökunum og um leið hjá nýrri stofnun, umboðsmanni neytenda.

Framboð af þvottavélum og sláttuvélum

Fyrri hluta maímánaðar könnuðu Neytendasamtökin framboð og verð á þvottavélum og sláttuvélum hér á landi. Margar gerðir fundust og verð er mjög mismunandi.

Björt framtíð - Landbúnaður og lífstíll

Öfugt við væntingar hafa mörg okkar, sem sóttum málþing um framtíð landbúnaðar í breyttum heimi, farið af ráðstefnunni bjartsýnni á framtíðina en við vorum fyrir.

Markaðssetning á samskiptamiðlum

Fyrirtæki hafa gott lag á að ná til neytenda á Facebook. En hvaða reglur gilda um markaðssetningu þar?

Í þá gömlu góðu daga - NS síðan 1953

 Árið 1961 skrifaði þáverandi formaður NS grein um sóun og offjárfestingu íslenskra heimila. Taldi hann fólk jafnan kaupa meira en það hefði þörf fyrir.

Eftirlitið upp á borðið

Neytendasamtökin krefjast þess að eftirlit verði í auknum mæli gert opinbert. Broskarlakerfið hefur verið notað í Danmörku í meira en áratug með góðum árangri.

Ráðstefna um landbúnaðarmál

13. apríl 2012 var haldin ráðstefna um landbúnaðarmál  þar sem sérfræðingar á sviði landbúnaðar- neytenda- og matvælamála ræddu málin.

Brot úr sögu Neytendasamtakanna

Hér er greint frá örfáum af þeim málum sem Neytendasamtökin hafa haft afskipti af frá því að þau voru stofnuð árið 1953.

Annríki hjá leigjendaaðstoðinni

Mörg erindi berast frá leigjendum og nóg er að gera hjá Leigjenda-aðstoðinni. Á fyrstu þremur mánuðum ársins bárust 385 erindi til samtakanna.

Minnt á ólögmæti skilmála

 Lánaskilmálar Kaupþings, nú Arion banka, á gengistryggðum húnsæðislánum voru ólögmætir. Taka þarf tillit til þess við endurútreikning íbúðarlána.

Lán í óláni

 Neytendalánum fylgir áhætta og það er beinlínis tilviljunum háð hversu mikill kostnaðurinn er á endanum. Og við bara sættum okkur við þetta!

Erfðabreytt matvæli eiga að vera merkt

Samkvæmt reglum eiga erfðabreytt matvæli að vera merkt sem slík. Það er Matvælastofnun og heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga sem á fylgjast með að svo sé.

Alþjóðlegur dagur neytendaréttar

Jafnvel þegar neytendur hafa fengið nóg af bankanum sínum eiga þeir erfitt með að flytja viðskipti sín eða þeir sjá sér ekki hag í  því. Þetta leiðir til þess að enginn hvati er fyrir banka að bæta þjónustu eða lækka verð.

Óheimilt að vigta umbúðir með

Það er óheimilt að vigta umbúðir með við sölu á matvælum. Þetta á við um allar matvörur, einnig þær sem vigtaðar eru í fisk- og kjötborðum.

Er dýnan orðin þreytt?

Neytendasamtökin könnuðu framboð á rúmdýnum og skoðuðu verð og úrval í 15 verslunum. Alls fundust 110 mismunandi gerðir rúmdýna og verðmunur er mikill.

Aðgerðir til að efla og auðvelda póstverslun

Tillaga um skipun starfshóps um aðgerðir til að efla og auðvelda póstverslun hefur verið lögð fram á Alþingi. Laga- og regluverk kringum póstverslun hefur hindrað eðlilega framþróun hér á landi.

Varúð! Vanrækslugjald

Er vanrækslugjald refsing slugsanna eða skattur á hina tekjuminni? Sérstakt vanrækslugjald, sé bifreið ekki færð til skoðunar á tilsettum tíma, var tekið upp fyrir þremur árum. Samt eru enn margir sem trassa að láta skoða bíla sína.

Um lánamál heimilanna

Heimili sem vilja breyta lánum úr verðtryggðum í óverðtryggð, eiga að fá að gera það með lágum tilkostnaði.  Sjá ályktun stjórnar Neytendasamtakanna.

Skráargatið í höfn

Skráargatið verður innleitt á Íslandi en Alþingi samþykkti í dag þingsályktunartillögu þess efnis. Fyrsti flutningsmaður var Siv Friðleifsdóttir.

Seinkun á flugi vegna veðurs

Snjóþungt hefur verið síðastliðna daga og seinkanir í innanlands-og millilandaflugi. Í slíkum tilfellum eiga farþegar ákveðinn rétt til þjónustu.

Eftirlit gert opinbert

Neytendasamtökin ítreka kröfu sína um að eftirlitsskýrslur heilbrigðisfulltrúa verði gerðar opin-berar. Danir hafa nú í áratug notað svokallað broskarlakerfi og árangurinn er góður.

Er matvælaframleiðsla traustsins verð?

Neytendasamtökin gera alvarlega athugasemd við að matvælafyrirtæki noti iðnaðarsalt í framleiðslu sína. Þá eiga eftirlitsaðilar að tryggja að framleiðslan sé í fullu samræmi við gildandi reglur.

Hagsmunasamtök en ekki opinber stofnun

Þótt Neytendasamtökin eigi allt sitt undir félagsmönnum vinna þau að öflugri hagsmunagæslu fyrir alla neytendur í landinu. 

Ársskýrslur 2011

Út er komin ársskýrsla Leiðbeininga- og kvörtunarþjónustu Neytendasamtakanna fyrir árið 2011. Einnig er komin út ársskýrsla Evrópsku neytendaaðstoðarinnar ECC-Ísland.

Ársskýrsla Leigjendaaðstoðarinnar

Ársskýrsla Leigjendaaðstoðar Neytendasamtakanna 2011 er komin út. Á árinu bárust leigjendaaðstoðinni alls 1048 erindi frá leigjendum.

Útsala - reglur um skilarétt og inneignanótur

Engin lög gilda um skilarétt þegar neytandi vill skila ógallaðri vöru en til eru verklagsreglur sem taka á skilarétti, inneignarnótum og gjafabréfum.  Hér má sjá um hvað verklagsreglunar snúast.

felagsmadur1