24. janúar 2012

Eftirlit gert opinbert


Neytendasamtökin fara fram á að eftirlit með seljendum matvæla og framleiðendum verði gert opinbert. Háum upphæðum er eytt í eftirlit af hálfu hins opinbera en neytendur hafa þó ekki hugmynd um hverju það skilar eða hversu skilvirkt eftirlitið er. Besta leiðin til að auka trúverðugleika eftirlitsstofnana og fyrirtækja er að eftirlitsskýrslur og úttektir verði gerðar opinberar.

 

Erindi sent 2011
Neytendasamtökin sendu erindi á sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra í febrúar 2011 og hvöttu til þess að tekið yrði upp svokallað broskarlakerfi að danskri fyrirmynd. Kerfið gengur í stuttu máli út á að opinbera eftirlitsskýrslur heilbrigðisfulltrúa þannig að neytendur séu upplýstir um ástand veitingastaða, matvöruverslana, ísbúða, bakaría og annarra staða sem selja matvæli.

 

Einfalt kerfi fyrir neytendur
Eftir hverja úttekt eru skýrslurnar hengdar upp á áberandi stað svo sem í glugga eða við inngang og einnig eru þær settar á netið. Þannig sjá neytendur hvenær síðasta úttekt fór fram og hver niðurstaðan var. Áhersla er lögð á að kerfið sé skiljanlegt og því eru birt tákn (broskarl), sem gefur til kynna hvernig fyrirtækið stendur sig.

 

Að danskri fyrirmynd
Danir hafa nú notað kerfið í áratug með góðum árangri en fyrirtæki og heilbrigðisfulltrúar höfðu þó nokkrar efasemdir í fyrstu. Þekking danskra neytenda á kerfinu er nú mjög mikil enda hafa þarlend stjórnvöld kynnt það vel meðal neytenda. Sambærilegt kerfi má reyndar finna víðar svo sem í nokkrum fylkjum Bandaríkjanna og Kanada auk þess sem nokkrar borgir í Bretlandi hafa sambærilegt kerfi.

 

Erindið ítrekað
Neytendasamtökin hafa nú sent ítrekun á stjórnvöld en fyrra erindinu var aldrei svarað. Samtökin telja einsýnt að opinbert og gagnsætt eftirlit, eins og broskarlakerfið, auki traust og tiltrú neytenda á eftirlitskerfinu auk þess sem það veitir fyrirtækjunum mikilvægt aðhald.

 

Framleiðendur ekki undanskildir
Í ljósi þess sem á undan er gengið telja Neytendasamtökin einnig mjög mikilvægt að úttektir eftirlitsaðila á fyrirtækjum sem framleiða matvæli verði gerðar opinberar. Skýrslurnar yrðu þá settar á vefinn aðgengilegar öllum. Neytendasamtökin hafa nú ítrekað erindi sitt til stjórnvalda og kalla eftir afstöðu þeirra.

 

Sjá grein um Smiley-kerfið í Neytendablaðinu
Sjá upplýsingar um Smiley á vef dönsku matvælastofnunarinnar
Sjá ítrekun NS til ráðherra 2012

elite_smiley_a_pizzastad
Hér má sjá eftirlitsskýrslu sýnilega við inngang á pizzastað.

Hægt er að stækka myndina með því að klikka á hana.



Deila
Prentvæn útgáfa

felagsmadur1