MATVÆLI
Arsen í matvælum
Arsen hefur fundist í hrísgrjónum og víða er foreldrum ráðlagt að gefa börnum ekki hrísgrjónadrykkiBroskarlakerfið

Broskarlakerfið gengur út á að eftirlitsskýrslur heilbrigðisfulltrúa vegna matvælafyrirtækis eru gerðar opinberar. Skýrslurnar eru hengdar upp á áberandi stað svo að neytendur geti kynnt sér niðurstöðuna.
Erfðabreytt framleiðsla

Tækni sú sem notuð er til að erfðabreyta lífverum með flutningi á genum úr einni lífveru yfir í aðra er nefnd erfðatækni. Með erfðatækni er unnt að búa til lífverur sem aldrei gætu orðið til í náttúrunni.
Koffíndrykkir

Sterkir koffíndrykkir flæddu inn á íslenska markaðinn eftir að reglum var breytt árið 2008. Áður mátti ekki vera meira en 150 mg af viðbættu koffíni í hverjum lítra en nú er ekkert hámark.
Litarefni í mat

Litarefni eru notuð í mat til að gera hann girnilegri. Asó-litarefni hafa lengi verið umdeild og voru bönnuð á Íslandi fyrir 1997. Efnin geta valdið ofnæmi og leikur grunur á að tengsl séu á milli neyslu þeirra og ofvirkni hjá börnum.
Matvælasóun

Stór hluti þeirra matvæla sem er ræktaður í heiminum endar með einum eða öðrum hætti sem sorp. Þessi sóun á sér stað á öllum stigum framleiðslunnar, ekki síst hjá neytendum.
Salt

Neytendur eiga að geta séð hvort matvara innihaldi mikið eða lítið salt. Vitað er að mikil saltneysla getur leitt til hærri blóðþrýsting sem er einn áhættuþáttur hjarta- og æðasjúkdóma.
Transfitusýrur

Mikil umræða hefur verið um óhollustu transfitusýra en slíkar fitusýrur myndast þegar olía (fiski- eða jurtaolía) er hert að hluta til. Með þessu fær olían eiginleika hertrar fitu og þránar síður.


