Forsíða Hafa samband Aðild að NS
fimmtudagur | 9. september
Verðkannanir
Neytendasamtökin
Félagsmenn
Fréttir
EFNISYFIRLIT
Finna

INNSKRÁNING FÉLAGSMANNA
lykilorð er á bls.2 í  nýja Neytendablaðinu
Lykilorð:

 

NEYTENDARÉTTUR

03. júní 2008

Kaupþing tekur upp vandaðri vinnubrögð

Neytendasamtökin hafa, í kjölfar kvartana frá neytendum, ítrekað gagnrýnt aðferðir Kaupþings við sölu á Vista viðbótarlífeyrissparnaði. Fjölmörg dæmi eru um að ungt fólk hafi gert bindandi samninga í verslunarmiðstöðvum, á vinnustöðum og jafnvel á kaffihúsum.  Sjá fréttir: Sölumenn í kirkjugarði og Sölumenn komnir á kreik

Fulltrúi Neytendasamtakanna átti fund með forvígismönnum Kaupþings þar sem þessi sölumennska var gagnrýnd. Neytendasamtökin lögðu til að Kaupþing setti í skilmála sína ákvæði um að rétthafi samnings gæti sagt upp samningnum innan 14 daga frá undirritun, enda myndi slíkt ákvæði í mörgum tilvikum koma í veg fyrir ágreining sem tengist samningsgerðinni. Fólk hefur þá einfaldlega ákveðið svigrúm til að hætta við.

Nú hefur Kaupþing fallist á þetta og bætt eftirfarandi við samningsskilmálana: „Undirritun rétthafa á samninginn skuldbindur hann ekki fyrr en fjórtán dögum frá gerð samningsins og er rétthafa heimilt að falla frá samningi innan þess frests.“

Neytendasamtökin lýsa yfir ánægju sinni með þessa breytingu sem Kaupþing hefur gert á umræddum skilmálum.  

Senda grein

Neytendasamtökin   |  Hverfisgötu 105  |  101 Reykjavík  |  sími 545 1200  |  fax 545 1212  |  netfang: ns @ns.is  |  Opið virka daga kl. 9-15
Allur réttur áskilinn Neytendasamtökunum. Tæknileg vandamál og ábendingar, hafið samband við vefstjórn: th @ns.is