Forsíða Hafa samband Aðild að NS
miðvikudagur | 8. september
Verðkannanir
Neytendasamtökin
Félagsmenn
Fréttir
EFNISYFIRLIT
Finna

INNSKRÁNING FÉLAGSMANNA
lykilorð er á bls.2 í  nýja Neytendablaðinu
Lykilorð:

 

Fleiri kannanir

 
 
 


Raforkusala


FÍB

VERÐKANNANIR 

30. september 2009

Hársnyrtistofur - Akureyri

Neytendasamtökin könnuðu verð á herra- dömu- og barnaklippingu hjá 11 hársnyrtistofum á Akureyri.

Klipping börn
Mesti verðmunur á milli stofa er á barnaklippingu þar sem getur munað allt að 70% ef miðað er við eldri börn. Sé miðað við yngri börn getur munað allt að 47%. Misjafnt er hvar aldursmörkin eru dregin við barnaklippingar. Design, Arte og Samson miða við 12 ára aldur. Passion og Amber miða við 11 ára aldur en aðrar stofur miða við 10 ára aldur. Flokkurinn „yngri börn“ miðast yfirleitt við 0-6 ára en við 0-5 ára hjá Zone, Hárkompunni og Amber sem er reyndar með sérverð fyrir ungabörn 1.855 kr. Á Medullu er sérstakt verð fyrir 11-13 ára stelpur 3.800 kr.

Klipping dömur
Ekki munar nema 15% á milli stofa þegar verð á dömuklippingu er skoðað.
Í einstaka tilfellum gefa stofur upp fleira en eitt verð. Zone og Hárkompan bjóða til dæmis upp á lægra verð ef einungis á að særa og kostar klippingin þá 3.800 kr. hjá Zone og 3.500 k. hjá Hárkompunni. Strúktúra gaf upp þrenns konar verð fyrir dömuklippingu þar sem 4.500 kr. er algengasta verð. Verð getur hækkað ef mikið er lagt í greiðsluna eftir klippingu. Hjá Design kostar ný lína 4.500 kr. og er þá miðað við að verið sé að klippa úr síðu hári í stutt.

Klipping herrar
Sumar stofur gefa upp tvennskonar verð fyrir herraklippingu. Er þá miðað við hefðbundna klippingu þar sem rakað er á hliðum og er ódýrari en svokölluð tískulína. Hjá Passion kostar dýrari klippingin 3.950 og hjá Zone kostar hún 3.800 kr. Á hinum stofunum er eitt verð fyrir herraklippingu.

Verðmerkingar skortir
Verðmerkingar skortir á langflestum hárgreiðslustofum en samkvæmt lögum eiga upplýsingar um verð að vera aðgengilegar viðskiptavinum. Neytendasamtökin hvetja hárgreiðslustofur til að bæta úr þessu hið fyrsta og stilla verðlistum upp á áberandi stað. Verðmerkingar á hárgreiðslustofunni Design eru til fyrirmyndar en þar er bæði verðlisti við afgreiðsluborð og við hvern stól.

 Klipping

Design

Hártískan

Passion

Strúktúra

Arte

Snyrti-
húsið

Medúlla

Zone

Amber

Hár-
kompan

Samson

Lægsta
verð

Hæsta
verð

Munur í
 %

 Konur

4.100

4.500

4.450

4.500

 

4.200

4.700

4.500

4.520

4.500

4.500

4.100

4.700

15%

 Karlar

3.200

3.600

3.700

4.030

3.500

3.200

3.800

3.200

3.980

3.400

3.200

3.200

4.030

26%

 Börn eldri

2.500

2.700

3.200

3.420

3.000

2.500

2.850

2.700

2.960

2.680

2.000

2.000

3.420

71%

 Börn yngri

2.000

2.200

2.800

2.870

2.500

2.500

2.200

2.200

2.460

1.950

2.000

1.950

2.870

47%

Senda grein

Óheimilt er að vitna í heimasíðu NS án þess að geta heimilda

Neytendasamtökin   |  Hverfisgötu 105  |  101 Reykjavík  |  sími 545 1200  |  fax 545 1212  |  netfang: ns @ns.is  |  Opið virka daga kl. 9-15
Allur réttur áskilinn Neytendasamtökunum. Tæknileg vandamál og ábendingar, hafið samband við vefstjórn: th @ns.is