Forsíða Hafa samband Aðild að NS
miðvikudagur | 8. september
Verðkannanir
Neytendasamtökin
Félagsmenn
Fréttir
EFNISYFIRLIT
Finna

INNSKRÁNING FÉLAGSMANNA
lykilorð er á bls.2 í  nýja Neytendablaðinu
Lykilorð:

 

Handbók neytenda - útgáfa 3.0                              Tekin saman af Jóni Magnússyni

1. Almennar leiðbeiningar

1.1 Leitaðu alltaf upplýsinga

Mundu alltaf:

Að leita fullnægjandi upplýsinga áður en þú kaupir eitthvað.

Þetta á ekki einungis við þegar þú kaupir dýra hluti. Vörurnar sem þú kaupir daglega eru ekki síður mikilvægar. Leitaðu að hagstæðum tilboðum og ódýrum verslunum. Vörur sem bera flott og fín vörumerki þurfa ekki að vera betri en aðrar ódýrari vörur.

Aðalatriðið er fyrst og fremst að þú fáir sem mest fyrir peningana þína. Markmiðið er að kaupa vöruna eða þjónustuna á besta fáanlegu verði. En besta verðið er ekki það eina sem hafa verður í huga. Varan eða þjónustan verður að vera í samræmi við það þínar þarfir. Ódýr vara eða þjónusta þarf ekki að vera hagstæðari en dýrari vara og þjónusta. Þessvegna þarf að skoða alla hluti nákvæmlega áður en þú kaupir vöru eða velur mann til að vinna fyrir þig.

Það er nauðsynlegt að bera saman vöru og þá þjónustu sem í boði er. Skoðaðu allar aðgengilegar upplýsingar og berðu saman gæði, verð og þjónustu. Viðgerðarþjónusta og verð varahluta skipta miklu máli í mörgum tilvikum t.d. þegar þú kaupir bíl, þvottavél eða önnur heimilistæki.

Það getur borgað sig að bíða með að kaupa.

Spurningin getur líka verið um það að bíða með að kaupa það sem þig vantar ekki og ávaxta peningana þangað til þig vantar hlutinn. Það getur verið betra að bíða með að kaupa nema þig sárvanti vöruna og kaupa hana seinna þegar þú þarft á henni að halda og nota peningana sem þú hefðir annars lagt í vörukaupin til að vinna fyrir þig á meðan. En þá gildir líka að athuga vel hvernig á að gera það. Í því tilviki gildir að mesta ávöxtunin sem þér er kynnt þarf ekki að vera örugg. Ef þú ert að leggja til hliðar peninga í skamman tíma og þarft að nota þá fljótlega, þá skalt þú setja þá þar sem þú hefur örugga ávöxtun og getur tekið þá út þegar þú þarft á þeim að halda.

Varastu sérstaklega tilboð þar sem þér er lofað óvenjulega eða óeðlilega hárri ávöxtun. Kannaðu öll slík tilboð vel og þá aðila sem á bak við þau standa. Ekki hætta peningunum þínum fyrr en þú hefur gengið úr skugga um að þú sért að eiga viðskipti við trausta aðila.

1.2 Hvernig á að gæta réttar síns?

Þú átt hiklaust að krefjast réttar þíns. Ef varan eða þjónustan er ekki eins góð og þú ætlaðist til og telur þig eiga rétt á, hikaðu þá ekki við að gera athugasemdir og halda fram rétti þínum og gera seljandanum grein fyrir því að þú munir ekki sætta þig við annað en að varan eða þjónustan sé í lagi. Þú skalt gera seljandanum grein fyrir, að þú munir leita til Neytendasamtakanna eða annarra sambærilegra aðila til að kanna rétt þinn reynist ástæða til.

Með því að gæta réttar þíns gætir þú ekki aðeins þinna hagsmuna heldur má reikna með að hlutirnir verði þá auðveldari fyrir aðra sem versla síðar við sama söluaðila.

Það er hvorki dónalegt né asnalegt að gera athugasemdir þegar það sem þú keyptir er ekki í samræmi við það sem samið var um eða þú máttir ætla að þú fengir fyrir peningana þína. Það er miklu frekar asnalegt að gera ekki athugasemdir heldur sætta sig við eitthvað sem er ekki í lagi.

Fæstir þeirra sem selja vörur eða þjónustu ætla sér að hafa rangt við eða svindla á þér. Það getur því líka komið seljandanum vel, að þú kvartir. Seljandinn fær þá upplýsingar um hluti, sem hann veit ekki um og reynir þá að lagfæra. Séu athugasemdir settar fram á hógværan og málefnalegan hátt í fullri kurteisi er líklegt að heiðarlegur seljandi leitist við að gera þér til hæfis, láti þig hafa nýja ógallaða vöru eða lagfæra þann hluta þjónustunnar sem ekki var í lagi.

Seljandi sem bregst illa við eðlilegum athugasemdum hefur eitthvað að fela eða kann ekki eðlilegar hegðunarvenjur.

Ef ekki semst við seljandann hafðu þá samband:

Neytendasamtökin
Hverfisgötu 105,
101 Reykjavík

Sími: 545 1200
Tölvupóstur:
ns@ns.is

1.3 Ef eitthvað er að vörunni hvernig næ ég rétti mínum?

Neytendasamtakanna veita öllum upplýsingar og aðstoð á auglýstum tímum, sjá heimasíðu www.ns.is.

Kærunefnd lausafjár- og þjónustukaupa var skipuð af viðskiptaráðherra árið 2006 skv. lögum nr. 87/2006. Til kærunefndarinnar er hægt að skjóta ágreiningi um réttindi og skyldur sem rís með aðilum sem eiga kaup saman samkvæmt lögum um lausafjárkaup, þjónustukaup og neytendakaup. Kærunefndin er skipuð þrem nefndarmönnum og er einn skipaður skv. tilnefningu Neytendasamtakanna og annar skv. tilnefningu Samtaka atvinnulífsins.

Aðilar að lausafjár-, þjónustu- og neytendakaupum geta óskað eftir áliti kærunefndar á ágreiningi um réttindi og skyldur samkvæmt lögum nr. 50/2000 um lausafjárkaup, lögum nr. 42/2000 um þjónustukaup og lögum nr. 48/2003 um neytendakaup.

Niðurstöðum kærunefndar verður ekki skotið til annarra stjórnvalda en aðilar geta lagt ágreining sinn fyrir dómstóla með venjulegum hætti. Kærunefndin er vistuð hjá Neytendastofu, Borgartúni 21, 105 Reykjavík og tekur hún við kvörtunum til nefndarinnar á þar til gerðum eyðublöðum.

Eyðublað - Beiðni um álitsgerð kærunefndar lausafjár- og þjónustukaupa

Hér er að finna eyðublað sem er ætlað að auðvelda almenningi að koma erindi á framfæri við nefndina ásamt leiðbeiningum um útfyllingu eyðublaðsins. Þá er einnig í skjalinu að finna upplýsingar um hlutverk og störf kærunefndar.

Sé ekki hægt að leysa málið fyrir kærunefndinni geta aðilar skotið málinu til dómstóla. Þá leið geta neytendur alltaf farið og þurfa ekki að leita til kærunefnda eða úrskurðanefnda. Kæru- og úrskurðanefndirnar eru starfandi til að auðvelda neytendum að ná fram rétti sínum með ódýrum og skjótvirkum hætti. Komi upp ágreiningur við kaup sem ekki verða leyst við seljanda eiga neytendur að nýta sér kærunefndina.

Neytandinn greiðir ekki neitt fyrir að skjóta máli til kærunefndar lausfjár- og þjónustukaupa nema fyrir eigin gagnaöflun en meðferð málsins fyrir kærunefndinni er neytandanum að kostnaðarlausu. Það er því ástæða til að hvetja neytendur til að nýta sér þann kost sem að kærunefndin er. Með því að fá niðurstöðu nefndarinnar liggur þá alla vega fyrir hlutlægt álit einstaklinga sem hafa fagþekkingu á ágreiningsefninu. 

Kostnaður við málaferli getur verið svo hár að jafnvel þó að neytandinn nái sínu fram þá kann fyrirhöfnin að vera slík að ekki svari kostnaði.

Allar nánari upplýsingar má fá hjá Neytendasamtökunum eða Neytendastofu.

1.4 Hvernig verðum við virkir neytendur?

Það er mikilvægt að sem flestir séu virkir neytendur. Virkur neytandi er sá sem m.a. gætir vel að því sem hann kaupir og gerir athugasemdir þegar það á við. Það að vera virkur neytandi getur líka falist í því að taka þátt í starfi Neytendasamtakanna eða annarra sambærilegra samtaka. Hjá Neytendasamtökunum færð þú upplýsingar sem auðvelda þér að velja besta og ódýrasta kostinn. Það borgar sig alltaf að taka upplýsta ákvörðun um hvað og hvort eigi að kaupa vöru eða þjónustu.Neytendasamtökin hjálpa þér ef þú lendir í vandræðum með lögfræðilegum ráðleggingum og benda þér á leiðir til að ná fram rétti þínum.

Mundu að það þarf ekki að vera ódýrt að kaupa vöru á útsölu og það er ekki nauðsynlegt að kaupa vöru vegna þess, að verðið er lægra í dag en í gær. Aðalatriðið er að gera sér grein fyrir hvað maður þarf og kaupa það, en ekki annað. Þessvegna er mikilvægt og til mikils sparnaðar að fara nákvæmlega yfir það sem vantar áður en farið er í búðina, búa til innkaupalista og kaupa í samræmi við hann og ekkert annað. Þegar fólk gerir þetta ekki og fer illa fyrirkallað eða svangt út í búð verða freistingarnar fleiri og innkaupin dýrari. Með skipulagi verða innkaupin ódýrari.

Þetta á líka við um jólainnkaupin. Settu á lista alla sem þú ætlar að gefa jólagjöf. Hugleiddu og taktu ákvörðun um hvað þú ætlar að gefa hverjum fyrir sig og finndu út hvar það fæst áður en þú leggur á stað til að kaupa jólagjafir. Með því að fara þannig að sparar þú mikinn tíma og jólainnkaupin verða bæði ódýrari og skemmtilegri. Líkurnar fyrir því að þú veljir gjafir, sem koma sér vel verða einnig meiri auk þess sem þú getur kannað heima áður en þú leggur af stað hvar þessi vara er seld ódýrust.

Ef þú kaupir erlendis mundu þá að leita eftir búðum þar sem að þú getur fengið endurgreiðslu á virðisaukaskatti og athugaðu hvað þú þarft að kaupa fyrir háa fjárhæð til að þú eigir rétt á endurgreiðslu virðisaukaskatts.

Gættu þess alltaf sérstaklega bæði heima og erlendis, að varan þarf ekki endilega að kosta það, sem stendur á verðmiðanum. Það sakar aldrei að leita eftir hagstæðara verði. Það er mikill misskilningur, að það sé bara á Spáni eða Ítalíu sem hægt er að prútta um verð. Það er líka hægt hér heima. Athugaðu t.d., að það getur verið hagstætt að kaupa skíðin á vorin og sumarfötin á haustin. Kaupmenn vilja frekar slá af verði en liggja lengi með vöruna óselda.

Mundu líka að gera athugasemdir ef vara eða þjónusta er ekki afgreidd á þeim tíma, sem samið var um. Verði tafir þá getur þú átt rétt á afslætti eða skaðabótum.

Þegar þú semur um afgreiðslu á ákveðnum tíma hvort heldur það er um afhendingu vöru til þín eða flutning á vöru eða flutning á þér sem farþega þá átt þú rétt á efndum í samræmi við samninginn. Ef tafir verða og seljandanum verður um kennt þá á seljandi að bæta þér það tjón sem þú verður fyrir vegna tafanna. Í sumum tilvikum ef tafir eru miklar eða varða þig miklu þá getur þú rift samningum.

Senda grein

 Handbók neytenda - útgáfa 3.0  (pdf)

Neytendasamtökin   |  Hverfisgötu 105  |  101 Reykjavík  |  sími 545 1200  |  fax 545 1212  |  netfang: ns @ns.is  |  Opið virka daga kl. 9-15
Allur réttur áskilinn Neytendasamtökunum. Tæknileg vandamál og ábendingar, hafið samband við vefstjórn: th @ns.is