Forsíða Hafa samband Aðild að NS
miðvikudagur | 8. september
Verðkannanir
Neytendasamtökin
Félagsmenn
Fréttir
EFNISYFIRLIT
Finna

INNSKRÁNING FÉLAGSMANNA
lykilorð er á bls.2 í  nýja Neytendablaðinu
Lykilorð:

 

Lög um Neytendastofu og talsmann neytenda, nr. 62/2005 

Lög um Neytendastofu og talsmann neytenda

Lögin fela í sér að ný stofnun, Neytendastofa, taki við þeim verkefnum Samkeppnisstofnunar sem snúa að eftirliti með óréttmætum viðskiptaháttum og gagnsæi markaðarins og þeim verkefnum sem hafa verið hjá Löggildingarstofu.  Samkeppnisstofnun og Löggildingarstofa verða lagðar niður.  Lögin fela það einnig í sér að sett verður á stofn embætti talsmanns neytenda.

Neytendastofa
Neytendastofa skal annast framkvæmd laga um eftirlit með óréttmætum viðskiptaháttum og gagnsæi markaðarins, laga um öryggi vöru og opinbera markaðsgæslu auk fleiri laga.  Neytendastofa á að vinna að stefnumótun á sviði neytendamála auk þess að beita sér fyrir því að gerðar verði rannsóknir á sviðinu.  Þá á Neytendastofa einnig að annast útgáfu upplýsinga á sviði neytendamála.  Stofnunin annast dagleg störf og undirbúning mála fyrir talsmann neytenda.

Ráðherra skipar forstjóra Neytendastofu til fimm ára í senn.  Ráðherra skipar einnig áfrýjunarnefnd neytendamála, sem í sitja þrír menn til fjögurra ára í senn.  Til áfrýjunarnefndar er hægt að skjóta þeim ákvörðunum Neytendastofu sem eru teknar á grundvelli laga um eftirlit með óréttmætum viðskiptaháttum og gagnsæi markaðarins auk ákvarðana sem teknar eru á grundvelli annarra laga sem heyra undir Neytendastofu ef heimild til slíks er að finna í viðkomandi lögum.  Í öðru lagi er hægt að skjóta til nefndarinnar ákvörðunum sem teknar eru á grundvelli laga um öryggi vöru og opinbera markaðsgæslu. 

Talsmaður neytenda
Talsmaður neytenda er skipaður af viðskiptaráðherra til fimm ára í senn.  Gert er ráð fyrir að talsmaður neytenda sé sjálfstætt embætti en jafnframt að talsmaðurinn hafi aðsetur hjá Neytendastofu og nýti sér starfsmenn og sérfræðinga stofnunarinnar við störf fyrir embætti talsmanns.

Talsmaður neytenda á að standa vörð um hagsmuni og réttindi neytenda og stuðla að aukinni neytendavernd.  Hlutverk talsmanns neytenda felst m.a. í að taka við erindum neytenda, bregðast við þegar hann telur brotið gegn réttindum og hagsmunum neytenda, gefa út rökstuddar álitsgerðir ásamt tillögum um úrbætur, setja fram tillögur um úrbætur á lögum og stjórnvaldsfyrirmælum sem varða neytendur sérstaklega og kynna löggjöf og aðrar réttarreglur er varða neytendamál. 

Talsmaður neytenda getur tekið mál til meðferðar eftir kvörtun eða að eigin frumkvæði.  Öllum neytendum er heimilt að leita til talsmanns neytenda með erindi sín, en hann ákveður sjálfur hvort ábending gefur tilefni til meðferðar af hans hálfu.  Talsmaður neytenda tekur ekki til meðferðar ágreining milli neytenda og seljenda, en honum ber að leiðbeina þeim sem til hans leita með slík mál um hvaða leiðir eru færar, m.a. innan stjórnsýslunnar og hjá dómstólum.



Neytendasamtökin   |  Hverfisgötu 105  |  101 Reykjavík  |  sími 545 1200  |  fax 545 1212  |  netfang: ns @ns.is  |  Opið virka daga kl. 9-15
Allur réttur áskilinn Neytendasamtökunum. Tæknileg vandamál og ábendingar, hafið samband við vefstjórn: th @ns.is