• Fréttir NS
  • Neytendablaðið
    • Neytendablaðið
    • Gæðakannanir
  • Aðstoð
    • Verðskrá
      •  

        Árgjald 2022 er 6.500 kr.

        Gerast félagsmaður
      Þjónusta
      • Neytendaaðstoðin
      • Evrópska Neytendaaðstoðin
      • Leigjendaaðstoðin
      Úrræði
      • Úrskurðanefndir
      • Skammarkrókur
      • ODR
  • Málaflokkar
    • Ferðamál
      • Flug
      • Hótel
      • Bílaleiga
      • Pakkaferðir
      Fjármál
      • Smálán
      • Neytendalán
      • Innheimta
      Matur
      • Aukefni í mat
      • Koffíndrykkir
      • Matarsóun
      • Jarðheilsufæði
      Umhverfi og siðræn neysla
      • Merkingar
      • Plast
      • Textíll
      Vöru- og þjónustukaup
      • Galli
      • Skilaréttur
      • Gjafabréf
      • Iðnaðarmenn
      • Kaup á netinu
      Fasteignir
      •  
      •  
      •  
      •  
  • Um Ns
    • Stefna
    • Starfsfólk
    • Stjórn
    • Ályktanir stjórnar
    • Lög
    • Skýrslur
    • Saga
    • Siðareglur
    • Skráning í samtökin
    • Persónuverndarstefna
  • EN
Leit
Sláðu inn leitarorð hér
  • Fréttir NS
  • Neytendablaðið
    • Neytendablaðið
    • Gæðakannanir
  • Aðstoð
    • Verðskrá
      •  
    • Þjónusta
      • Neytendaaðstoðin
      • Evrópska Neytendaaðstoðin
      • Leigjendaaðstoðin
    • Úrræði
      • Úrskurðanefndir
      • Skammarkrókur
      • ODR
  • Málaflokkar
    • Ferðamál
      • Flug
      • Hótel
      • Bílaleiga
      • Pakkaferðir
    • Fjármál
      • Smálán
      • Neytendalán
      • Innheimta
    • Matur
      • Aukefni í mat
      • Koffíndrykkir
      • Matarsóun
      • Jarðheilsufæði
    • Umhverfi og siðræn neysla
      • Merkingar
      • Plast
      • Textíll
    • Vöru- og þjónustukaup
      • Galli
      • Skilaréttur
      • Gjafabréf
      • Iðnaðarmenn
      • Kaup á netinu
    • Fasteignir
      •  
      •  
      •  
      •  
  • Um Ns
    • Stefna
    • Starfsfólk
    • Stjórn
    • Ályktanir stjórnar
    • Lög
    • Skýrslur
    • Saga
    • Siðareglur
    • Skráning í samtökin
    • Persónuverndarstefna
  • EN
Leit

15/06/2017

Frá og með 15. júní heyra reikigjöld vegna fjarskiptanotkunar innan EES sögunni til. Framvegis geta Evrópubúar notað símann sinn í öllum löndum EES, hvort sem um er að ræða mínútur, SMS eða gagnamagn, á nákvæmlega sömu kjörum og í sínu heimalandi. Engu máli skiptir fyrir íslenskan viðskiptavin Símans, Vodafone, Nova eða annarra fjarskiptafyrirtækja hvar í Evrópu hann notar snjallsímann sinn. Pakkinn hans á Íslandi gildir líka í öðrum Evrópulöndum. Þetta eru mikil tímamót fyrir neytendur, en Samtök evrópskra neytendasamtaka, BEUC, hafa lengi barist fyrir þessum mikilvægu hagsmunum og nú er málið í höfn og meginreglan innan Evrópu er framvegis að fólk getur reikað eins og það sé heima hjá sér. Á ensku er notuð fyrir þetta skammstöfunin RLAH, sem stendur fyrir: Roaming like at home.

Neytendur verða að vera vakandi og fylgjast með að fjarskiptafyrirtæki fari eftir hinum nýju reglum. Allir neytendur eiga skilyrðislausan rétt á þessu. Hafa ber þó í huga að fjarskiptafyrirtækjum er heimilt að bjóða viðskiptavinum sínum önnur kjör en enginn viðskiptavinur þarf að samþykkja slíkt.

Ákveðnar undanþágur eru frá hinni nýju meginreglu en þær miða m.a. að því að koma í veg fyrir að viðskiptavinur, sem býr í einu landi, geti keypt sína fjarskiptaþjónustu í öðru landi og reikað án aukagjalds. Einnig getur í vissum tilfellum verið leyfilegt fyrir fjarskiptafyrirtæki að innheimta aukagjald fyrir gagnamagn umfram tiltekið hámark ef heildsöluverð gagnamagns í Evrópu er hærra en það gjald sem fyrirtækið býður viðskiptavinum sínum í áskriftarsamningi. Þetta viðbótargjald getur hins vegar aldrei orðið hærra en svo að það brúi bilið milli áskriftarverðsins og heildsöluverðsins.

Nú ríður á að hver einstakur neytandi sé á varðbergi og fylgist vel með hvort fjarskiptafyrirtækið hans virðir hina nýju meginreglu. Mikilvægt er að hafa í huga að fjarskiptafyrirtækjum er óheimilt að víkja frá meginreglunni nema að fengnu upplýstu samþykki viðskiptavinar. Neytendasamtökin munu fylgjast með framkvæmd þessara nýju reglna af hálfu fjarskiptafyrirtækja og ég hvet neytendur til að hafa samband við okkur í ns@ns.is ef þeir verða varir við að misbrestur sé á að réttum reglum sé framfylgt.

Höfundur er formaður Neytendasamtakanna. Grein þessi birtist í fréttablaðinu 14. júní 2017.

Deila

NEYTENDASAMTÖKIN

NS eru frjáls félagasamtök stofnuð árið 1953. Samtökin eru aðeins eins öflug og fjöldi félagsmanna segir til um. Skráðu þig í samtökin og hjálpaðu okkur að hjálpa þér.

 

 

HAFÐU SAMBAND

Sendu okkur póst

ns[hja]ns.is

Sími: (+354) 545 1200

Heimilisfang:
Guðrúnartúni 1,
105 Reykjavík

OPNUNARTÍMAR

Félagsmenn:
Mánud. – fimmtud.:
10.00 – 12.00 og 12.30 – 15.00
Föstudagar:
10.00-12.00

Utanfélagsmenn:
Fimmtudagar:
10.00 – 12.00 og 12.30 – 15.00

Leigjendaaðstoð:
Þriðjud. og fimmtud.:
10:00-12:00 & 12:30 – 15.00

ÖNNUR ÞJÓNUSTA

ECC net aðstoð

Leigjendaadstodin-merki

© 2022. Neytendasamtökin. Öll réttindi áskilin.