• Fréttir NS
  • Neytendablaðið
    • Neytendablaðið
    • Gæðakannanir
  • Aðstoð
    • Verðskrá
      •  

        Árgjald 2022 er 6.500 kr.

        Gerast félagsmaður
      Þjónusta
      • Neytendaaðstoðin
      • Evrópska Neytendaaðstoðin
      • Leigjendaaðstoðin
      Úrræði
      • Úrskurðanefndir
      • Skammarkrókur
      • ODR
  • Málaflokkar
    • Ferðamál
      • Flug
      • Hótel
      • Bílaleiga
      • Pakkaferðir
      Fjármál
      • Smálán
      • Neytendalán
      • Innheimta
      Matur
      • Aukefni í mat
      • Koffíndrykkir
      • Matarsóun
      • Jarðheilsufæði
      Umhverfi og siðræn neysla
      • Merkingar
      • Plast
      • Textíll
      Vöru- og þjónustukaup
      • Galli
      • Skilaréttur
      • Gjafabréf
      • Iðnaðarmenn
      • Kaup á netinu
      Fasteignir
      •  
      •  
      •  
      •  
  • Um Ns
    • Stefna
    • Starfsfólk
    • Stjórn
    • Ályktanir stjórnar
    • Lög
    • Skýrslur
    • Saga
    • Siðareglur
    • Skráning í samtökin
    • Persónuverndarstefna
  • EN
Leit
Sláðu inn leitarorð hér
  • Fréttir NS
  • Neytendablaðið
    • Neytendablaðið
    • Gæðakannanir
  • Aðstoð
    • Verðskrá
      •  
    • Þjónusta
      • Neytendaaðstoðin
      • Evrópska Neytendaaðstoðin
      • Leigjendaaðstoðin
    • Úrræði
      • Úrskurðanefndir
      • Skammarkrókur
      • ODR
  • Málaflokkar
    • Ferðamál
      • Flug
      • Hótel
      • Bílaleiga
      • Pakkaferðir
    • Fjármál
      • Smálán
      • Neytendalán
      • Innheimta
    • Matur
      • Aukefni í mat
      • Koffíndrykkir
      • Matarsóun
      • Jarðheilsufæði
    • Umhverfi og siðræn neysla
      • Merkingar
      • Plast
      • Textíll
    • Vöru- og þjónustukaup
      • Galli
      • Skilaréttur
      • Gjafabréf
      • Iðnaðarmenn
      • Kaup á netinu
    • Fasteignir
      •  
      •  
      •  
      •  
  • Um Ns
    • Stefna
    • Starfsfólk
    • Stjórn
    • Ályktanir stjórnar
    • Lög
    • Skýrslur
    • Saga
    • Siðareglur
    • Skráning í samtökin
    • Persónuverndarstefna
  • EN
Leit

Villandi fullyrðingar á matvælum

20/03/2018
Merkingar-2

Algengt er að matvælaframleiðendur skreyti vörur sínar með ýmsum fullyrðingum um jákvæð áhrif þeirra á heilsu og vellíðan. Það er þó ekki allt leyfilegt í þessum efnum og mörg dæmi eru um að verið sé að nota óleyfilegar fullyrðingar á matvörum. Matvælastofnun ásamt heilbrigðiseftirliti sveitarfélaga gerði úttekt á stöðunni hér á landi og er niðurstaðan sú að í meira en helmingi tilfella er verið að nota fullyrðingar sem ekki eru leyfðar og eru þar af leiðandi villandi fyrir neytendur. Fæðubótarefni skera sig sérstaklega úr en af 19 fullyrðingum voru einungis 3 í lagi.

Neytendasamtökin fagna þessari úttekt sem er mjög mikilvæg til að kortleggja vandann en hún sýnir jafnframt að frekari aðgerða er þörf. Ástæðan fyrir því að settar hafa verið reglur um fullyrðingar á matvörum og fæðubótaefnum er til að tryggja að ekki sé verið að villa um fyrir neytendum. Neytendur eiga að geta treyst því að fullyrðingar á matvælum og fæðubótarefnum byggi á rökstuddum grunni og séu þar af leiðandi marktækar. Úttektin sýnir hins vegar að neytendur eru ítrekað blekktir og það er að mati Neytendasamtakanna algerlega ólíðandi.

Dæmi um villandi fullyrðingar sem sjá má í úttektinni:

Losnaði við verki og bólgur af vefjagigt
Um er að ræða svokallaða sjúkdómsfullyrðingu en þær eru aldrei leyfðar.

Á sýrðri mjólkurafurð segir Ríkt af hágæðapróteinum
þessi fullyrðing er ekki á lista yfir leyfðar næringarfullyrðingar.

Á grófu brauði segir Gott fyrir uppbyggingu vöðva
Þessi fullyrðing er ekki á lista yfir leyfðar heilsufullyrðingar.

Á sýrðri mjólkurafurð stendur Létt
Ekki er útskýrt hvað það er sem geri þessa afurð létta og er fullyrðingin þar af leiðandi ekki heimil.

Deila

Fréttir í sama dúr

Sláturhús

Skrokkar í kæligeymslu sláturhúss

13/12/2022

Samkeppni leidd til slátrunar


Lesa
09/09/2021

Ályktun stjórnar um tilbúinn vöruskort


Lesa
Merkingar_2
17/12/2020

Ætla alþingismenn að hækka matvöruverð?


Lesa

NEYTENDASAMTÖKIN

NS eru frjáls félagasamtök stofnuð árið 1953. Samtökin eru aðeins eins öflug og fjöldi félagsmanna segir til um. Skráðu þig í samtökin og hjálpaðu okkur að hjálpa þér.

 

 

HAFÐU SAMBAND

Sendu okkur póst

ns[hja]ns.is

Sími: (+354) 545 1200

Heimilisfang:
Guðrúnartúni 1,
105 Reykjavík

OPNUNARTÍMAR

Félagsmenn:
Mánud. – fimmtud.:
10.00 – 12.00 og 12.30 – 15.00
Föstudagar:
10.00-12.00

Utanfélagsmenn:
Fimmtudagar:
10.00 – 12.00 og 12.30 – 15.00

Leigjendaaðstoð:
Þriðjud. og fimmtud.:
12:30 – 15.00

ÖNNUR ÞJÓNUSTA

ECC net aðstoð

Leigjendaadstodin-merki

© 2023. Neytendasamtökin. Öll réttindi áskilin.