• Fréttir
  • Neytendablaðið
  • Aðstoð
    • Verðskrá
      • Árgjald 2020 er 6.500 kr.

        Gerast félagsmaður
      Þjónusta
      • Neytendaaðstoðin
      • Evrópska Neytendaaðstoðin
      • Leigjendaaðstoðin
      Úrræði
      • ODR
      • Úrskurðir nefnda
  • Málaflokkar
    • Ferðamál
      • Flug
      • Hótel
      • Bílaleiga
      • Pakkaferðir
      Fjármál og tryggingar
      • Smálán
      • Neytendalán
      • Tryggingar
      • Innheimta
      Umhverfi & Matvæli
      • Aukefni í mat
      • Koffíndrykkir
      • Matarsóun
      • Merkingar
      • Jarðheilsufæði
      • Plast
      • Textíll
      Vöru- og þjónustukaup
      • Galli
      • Skilaréttur
      • Gjafabréf
      • Iðnaðarmenn
      • Kaup á netinu
  • Um Ns
    • Stefna
    • Starfsfólk
    • Stjórn
    • Ályktanir stjórnar
    • Lög
    • Skýrslur
    • Saga
    • Siðareglur
    • Skráning í samtökin
  • EN
Leit
Sláðu inn leitarorð hér
  • Fréttir
  • Neytendablaðið
  • Aðstoð
    • Verðskrá
    • Þjónusta
      • Neytendaaðstoðin
      • Evrópska Neytendaaðstoðin
      • Leigjendaaðstoðin
    • Úrræði
      • ODR
      • Úrskurðir nefnda
  • Málaflokkar
    • Ferðamál
      • Flug
      • Hótel
      • Bílaleiga
      • Pakkaferðir
    • Fjármál og tryggingar
      • Smálán
      • Neytendalán
      • Tryggingar
      • Innheimta
    • Umhverfi & Matvæli
      • Aukefni í mat
      • Koffíndrykkir
      • Matarsóun
      • Merkingar
      • Jarðheilsufæði
      • Plast
      • Textíll
    • Vöru- og þjónustukaup
      • Galli
      • Skilaréttur
      • Gjafabréf
      • Iðnaðarmenn
      • Kaup á netinu
  • Um Ns
    • Stefna
    • Starfsfólk
    • Stjórn
    • Ályktanir stjórnar
    • Lög
    • Skýrslur
    • Saga
    • Siðareglur
    • Skráning í samtökin
  • EN
Leit

Hefur þú tekið smálán?

20/06/2019

-Þrjú skref til að vernda hagsmuni þína

Hafir þú tekið smálán hjá Kredia, Múla, 1909, Hraðpeningum eða Smálánum gætirðu hafa greitt of mikið til baka og átt inni hjá þeim peninga. (Ekki eru öll smálán ólögleg. Vextir og annar kostnaður má vera allt að 54% um þessar mundir. En það er ólöglegt að krefjast hærri vaxta.)

1. Ertu búin að greiða of mikið til baka?

Almenn innheimta sér um innheimtu lánanna ef þau eru komin í innheimtu. Þú getur sent eftirfarandi póst á almenn@almenn.is:

Til þess er málið varðar,
Vinsamlega sendið mér upplýsingar um öll lán sem ég hef tekið hjá fyrirtækinu, dagsetningar þeirra, lánstíma, lánsfjárupphæðir, vexti og annan kostnað sem ég hef greitt hingað til. Ég greiði ekki frekar inn á lánið fyrr en þessar upplýsingar liggja fyrir. Ég fer jafnframt fram á að þið hættið öllum innheimtuaðgerðum þar til ég fæ upplýsingarnar í hendur og hef haft tækifæri til að fara yfir þær.
Virðingarfyllst,
Nafn: Xxxxx Xxxxx
Kennitala: xxxxxx-xxxx

Ef lán er ekki komið í innheimtu og þú telur þig hafa greitt lánsupphæðina til baka getur þú sent samsvarandi bréf beint til smálánafyrirtækja sem þú hefur átt í viðskiptum við:
Kredia: samband@kredia.dk
Múla: samband@mula.dk
1909: samband@1909.is
Hraðpeningar: samband@hradpeningar.is
Smálán: samband@smalan.is

2. Láttu loka skuldfærsluheimildum strax

Brögð eru að því að verið sé að skuldfæra af bankareikningum eða kreditkortum fólks háar upphæðir vegna smálánaskulda. Lántakar hafa gefið upp reikningsnúmer eða kortanúmer og einnig samþykkt skilmála með mjög óljósri skuldfærsluheimild sem ekki fær staðist lög.
Þeir sem tekið hafa smálán ættu að hafa strax samband við bankann sinn og kortafyrirtæki og athuga hvort slíkt heimild er til staðar. Ef svo er þá ætti að loka henni strax. Athugið að hafa þessi samskipti skrifleg, þ.e í tölvupósti.

Arion banki: arionbanki@arionbanki.is
Íslandsbanki: islandsbanki@islandsbanki.is
Landsbanki: landsbankinn@landsbankinn.is

Til þess er málið varðar,
Vinsamlega lokið nú þegar sjálfvirkum skuldfærsluheimildum á öllum reikningum og kortum í mínu nafni, sem kunna að vera í gildi við Ecommerce 2020 og fyrirtæki tengd því, svo sem Múla, 1909, Hraðpeninga, Smálán og/eða Kredia, eða eru í samstarfi við ofantalin fyrirtæki um greiðslumiðlun svo sem QuickPay APS.

Geti bankinn ekki orðið við ósk minni um að loka skuldfærsluheimildinni, óska ég eftir að láta loka kortinu mínu.
Virðingarfyllst,
Nafn: Xxxxx Xxxxx
Kennitala: xxxxxx-xxxx

3. Ertu á vanskilaskrá vegna smálána?

Innheimtufyrirtækið hræðir fólk með hótunum um að skrá það á vanskilaskrá, greiði það ekki hina ólöglegu skuld. En það er auðvitað ekki heimilt að setja fólk á vanskilaskrá vegna ólögmætra lána. Creditinfo hefur staðfest að ekki verði skráð frekari vanskil á fólk vegna smálánaskulda nema höfuðstóll kröfunnar sé í vanskilum. Ef þú ert á vanskilaskrá vegna smálánaskuldar sendu þá póst á Almenna innheimtu og Creditinfo og farðu fram á að vera tekin af skrá.

creditinfo@creditinfo.is, almenn@almenn.is

Til þess er málið varðar,
Ég ber hérmeð upp andmæli vegna skulda minna við Krediagroup, og fyrirtæki tengd því, svo sem Ecommerce 2020, Múla, 1909, Hraðpeninga, Smálán og/eða Kredia, eða eru í samstarfi við ofantalin fyrirtæki eins og Almenna Innheimtu ehf.
Ég lenti á vanskilaskrá vegna ólöglegra smálána. Vinsamlega takið mig af vanskilaskránni tafarlaust og afmáið öll ummerki um veru mína þar.
Vinsamlega verðið við beiðni minni sem fyrst og eigi síðar en að 10 dögum liðnum og sendið mér staðfestingu þegar afskráning hefur átt sér stað.
Virðingarfyllst,
Nafn. Xxxxx Xxxxx
Kennitala: xxxxxx-xxxx

Deila

Fréttir í sama dúr

13/10/2020

Greiðsluseðlar hverfa úr bankakerfinu – varað við annarskonar innheimtu


Lesa
06/10/2020

Smálánafyrirtæki stefnir Neytendasamtökunum


Lesa
24/09/2020

Villandi „eingreiðslutilboð“ Almennrar innheimtu


Lesa

NEYTENDASAMTÖKIN

NS eru frjáls félagasamtök stofnuð árið 1953. Samtökin eru aðeins eins öflug og fjöldi félagsmanna segir til um. Skráðu þig í samtökin og hjálpaðu okkur að hjálpa þér.

 

 

HAFÐU SAMBAND

Sendu okkur póst

ns[hja]ns.is

Sími: (+354) 545 1200

Heimilisfang:
Hverfisgötu 105,
101 Reykjavík

OPNUNARTÍMAR

Félagsmenn:
Mánud. – fimmtud.:
10.00 – 12.00 og 12.30 – 15.00
Föstudagar:
10.00-12.00

Utanfélagsmenn:
Fimmtudagar:
10.00 – 12.00 og 12.30 – 15.00

Leigjendaaðstoð:
Þriðjud. og fimmtud.:
12:30 – 15.00

ÖNNUR ÞJÓNUSTA

ECC net aðstoð

Leigjendaadstodin-merki

© 2020. Neytendasamtökin. Öll réttindi áskilin.
Þessi vefsíða notar vafrakökur. Samþykkja Hafna Um friðhelgisstefnu NS

Privacy Overview

This website uses cookies to improve your experience while you navigate through the website. Out of these cookies, the cookies that are categorized as necessary are stored on your browser as they are as essential for the working of basic functionalities of the website. We also use third-party cookies that help us analyze and understand how you use this website. These cookies will be stored in your browser only with your consent. You also have the option to opt-out of these cookies. But opting out of some of these cookies may have an effect on your browsing experience.
Nauðsynlegt
Alltaf virk

Necessary cookies are absolutely essential for the website to function properly. This category only includes cookies that ensures basic functionalities and security features of the website. These cookies do not store any personal information.