• Fréttir NS
  • Neytendablaðið
    • Neytendablaðið
    • Gæðakannanir
  • Aðstoð
    • Verðskrá
      •  

        Árgjald 2022 er 6.500 kr.

        Gerast félagsmaður
      Þjónusta
      • Neytendaaðstoðin
      • Evrópska Neytendaaðstoðin
      • Leigjendaaðstoðin
      Úrræði
      • Úrskurðanefndir
      • Skammarkrókur
      • ODR
  • Málaflokkar
    • Ferðamál
      • Flug
      • Hótel
      • Bílaleiga
      • Pakkaferðir
      Fjármál
      • Smálán
      • Neytendalán
      • Innheimta
      Matur
      • Aukefni í mat
      • Koffíndrykkir
      • Matarsóun
      • Jarðheilsufæði
      Umhverfi og siðræn neysla
      • Merkingar
      • Plast
      • Textíll
      Vöru- og þjónustukaup
      • Galli
      • Skilaréttur
      • Gjafabréf
      • Iðnaðarmenn
      • Kaup á netinu
      Fasteignir
      •  
      •  
      •  
      •  
  • Um Ns
    • Stefna
    • Starfsfólk
    • Stjórn
    • Ályktanir stjórnar
    • Lög
    • Skýrslur
    • Saga
    • Siðareglur
    • Skráning í samtökin
    • Persónuverndarstefna
  • EN
Leit
Sláðu inn leitarorð hér
  • Fréttir NS
  • Neytendablaðið
    • Neytendablaðið
    • Gæðakannanir
  • Aðstoð
    • Verðskrá
      •  
    • Þjónusta
      • Neytendaaðstoðin
      • Evrópska Neytendaaðstoðin
      • Leigjendaaðstoðin
    • Úrræði
      • Úrskurðanefndir
      • Skammarkrókur
      • ODR
  • Málaflokkar
    • Ferðamál
      • Flug
      • Hótel
      • Bílaleiga
      • Pakkaferðir
    • Fjármál
      • Smálán
      • Neytendalán
      • Innheimta
    • Matur
      • Aukefni í mat
      • Koffíndrykkir
      • Matarsóun
      • Jarðheilsufæði
    • Umhverfi og siðræn neysla
      • Merkingar
      • Plast
      • Textíll
    • Vöru- og þjónustukaup
      • Galli
      • Skilaréttur
      • Gjafabréf
      • Iðnaðarmenn
      • Kaup á netinu
    • Fasteignir
      •  
      •  
      •  
      •  
  • Um Ns
    • Stefna
    • Starfsfólk
    • Stjórn
    • Ályktanir stjórnar
    • Lög
    • Skýrslur
    • Saga
    • Siðareglur
    • Skráning í samtökin
    • Persónuverndarstefna
  • EN
Leit

Vörumst kórónusvindl, snákaolíu og óréttmæta viðskiptahætti

23/03/2020

Óprúttnir aðilar hafa því miður nýtt sér óvissuástand í kjölfar Kórónuveirufaraldursins og mörg dæmi eru um rangar fullyrðingar um að ákveðin vara eða þjónusta eigi að koma í veg fyrir smit eða jafnvel lækna CoViD-19. Neytendasamtök víða um Evrópu glíma við slíka starfsemi og hafa tekið saman höndum um að taka hart á slíku. Evrópusamtök neytenda (BEUC) hafa sérstaklega varað við tvennskonar svindli á neytendum. Annars vegar er um að ræða órökstuddar staðhæfingar um vörur sem eiga að hindra eða lækna COVID-19 og hins vegar ranga upplýsingagjöf um væntanlegan vöruskort og hækkað verð í því skyni að þrýsta á neytendur að versla. Neytendasamtökin eru á varðbergi og hvetja fólk að hafa augun hjá sér nú sem endranær.

Félagsmenn Neytendasamtakanna geta haft samband við samtökin og fengið frekari upplýsingar og aðstoð, sé þess óskað. Álag á símkerfið er mikið um þessar mundir og eru félagsmenn hvattir til að senda tölvpóst (ns@ns.is) með nafni, símanúmeri og hvað málið varðar. Sértu félagsmaður, verður haft samband við þig eins fljótt og auðið er. Hægt er að skrá sig hér.

Borið hefur á því að framleiðendur haldi því fram, beint eða óbeint, að vara hindri smit eða hjálpi til við bata án þess að það sé stutt vísindalegum gögnum. Í sumum tilfellum er jafnvel gengið gegn ráðleggingum sérfræðinga um hvernig koma eigi í veg fyrir smit eða ná bata. Jafnvel þó fullyrðingarnar séu settar fram í góðri trú, er óheimilt að fullyrða nokkuð um virkni nema að hægt sé að sýna fram á hana með vísindalegum gögnum. Þá hafa seljendur gerst uppvísir af því að afvegaleiða neytendur með því að gefa í skyn að vöruskortur sé yfirvofandi. Jafnframt erum dæmi um að seljendur nýti sér ástandið og hækki vöruverð.

Verði neytendur þess áskynja að seljendur eða framleiðendur setji fram órökstuddar staðhæfingar eða rangar upplýsingar skal tilkynna Neytendastofu um það hér.

Þá hvetja Neytendasamtökin neytendur að gera Samkeppniseftirlitinu viðvart um allar vísbendingar um óeðlilegar verðhækkanir eða okur á vörum og þjónustu hér.

Deila

Fréttir í sama dúr

26/07/2021

Réttur til að afpanta pakkaferðir


Lesa
04/11/2020

Hertar samkomutakmarkanir – Réttindi neytenda


Lesa
02/09/2020

Skaðabætur vegna aflýsts flugs


Lesa

NEYTENDASAMTÖKIN

NS eru frjáls félagasamtök stofnuð árið 1953. Samtökin eru aðeins eins öflug og fjöldi félagsmanna segir til um. Skráðu þig í samtökin og hjálpaðu okkur að hjálpa þér.

 

 

HAFÐU SAMBAND

Sendu okkur póst

ns[hja]ns.is

Sími: (+354) 545 1200

Heimilisfang:
Guðrúnartúni 1,
105 Reykjavík

OPNUNARTÍMAR

Félagsmenn:
Mánud. – fimmtud.:
10.00 – 12.00 og 12.30 – 15.00
Föstudagar:
10.00-12.00

Utanfélagsmenn:
Fimmtudagar:
10.00 – 12.00 og 12.30 – 15.00

Leigjendaaðstoð:
Þriðjud. og fimmtud.:
12:30 – 15.00

ÖNNUR ÞJÓNUSTA

ECC net aðstoð

Leigjendaadstodin-merki

© 2023. Neytendasamtökin. Öll réttindi áskilin.