Neytendasamtökin hafa ítrekað bent sparisjóðsstjóra Sparisjóðs Strandamanna á að ólögleg smálánafyrirtæki þrífist í skjóli sjóðsins, en sparisjóðurinn veitir innheimtufyrirtækinu Almennri innheimtu ehf. aðgang að greiðslumiðlunarkerfi bankanna. Þrátt fyrir það berast skjólstæðingum samtakanna ennþá innheimtukröfur vegna ólöglegra lána í gegnum sparisjóðinn.
Almenn innheimta ehf. virðist hafa þann eina starfa að innheimta ólögleg smálán í gegnum reikning Sparisjóðs Strandamanna (bankanúmer 1161). Hefur Almenn innheimta, eigandi þess og lögmaður ítrekað hlotið ítrekaðar aðfinnslur og áminningar lögmannafélagsins (sjá t.d. hér ) vegna þessarar innheimtustarfsemi. Eftir ábendingar Neytendasamtakanna hafa stærri fjármálafyrirtæki úthýst innheimtufyrirtækinu og vita samtökin ekki til þess að nokkurt íslenskt fyrirtæki eigi í dag viðskipti hin alræmdu smálánafyrirtæki eða innheimtufyrirtæki þeirra.
Neytendasamtökin hafa nú kallað eftir svörum frá nýrri stjórn Sparisjóðs Strandamanna um það hvort stjórnin muni sýna samfélagslega ábyrgð í verki eða hvort Sparisjóður Strandamanna muni áfram leggja sitt að mörkum til að tryggja að skipulögð brotastarfsemi smálánafyrirtækja fái viðgengist hér á landi.
Necessary cookies are absolutely essential for the website to function properly. This category only includes cookies that ensures basic functionalities and security features of the website. These cookies do not store any personal information.