• Fréttir NS
  • Neytendablaðið
    • Neytendablaðið
    • Gæðakannanir
  • Aðstoð
    • Verðskrá
      •  

        Árgjald 2022 er 6.500 kr.

        Gerast félagsmaður
      Þjónusta
      • Neytendaaðstoðin
      • Evrópska Neytendaaðstoðin
      • Leigjendaaðstoðin
      Úrræði
      • Úrskurðanefndir
      • Skammarkrókur
      • ODR
  • Málaflokkar
    • Ferðamál
      • Flug
      • Hótel
      • Bílaleiga
      • Pakkaferðir
      Fjármál
      • Smálán
      • Neytendalán
      • Innheimta
      Matur
      • Aukefni í mat
      • Koffíndrykkir
      • Matarsóun
      • Jarðheilsufæði
      Umhverfi og siðræn neysla
      • Merkingar
      • Plast
      • Textíll
      Vöru- og þjónustukaup
      • Galli
      • Skilaréttur
      • Gjafabréf
      • Iðnaðarmenn
      • Kaup á netinu
      Fasteignir
      •  
      •  
      •  
      •  
  • Um Ns
    • Stefna
    • Starfsfólk
    • Stjórn
    • Ályktanir stjórnar
    • Lög
    • Skýrslur
    • Saga
    • Siðareglur
    • Skráning í samtökin
    • Persónuverndarstefna
  • EN
Leit
Sláðu inn leitarorð hér
  • Fréttir NS
  • Neytendablaðið
    • Neytendablaðið
    • Gæðakannanir
  • Aðstoð
    • Verðskrá
      •  
    • Þjónusta
      • Neytendaaðstoðin
      • Evrópska Neytendaaðstoðin
      • Leigjendaaðstoðin
    • Úrræði
      • Úrskurðanefndir
      • Skammarkrókur
      • ODR
  • Málaflokkar
    • Ferðamál
      • Flug
      • Hótel
      • Bílaleiga
      • Pakkaferðir
    • Fjármál
      • Smálán
      • Neytendalán
      • Innheimta
    • Matur
      • Aukefni í mat
      • Koffíndrykkir
      • Matarsóun
      • Jarðheilsufæði
    • Umhverfi og siðræn neysla
      • Merkingar
      • Plast
      • Textíll
    • Vöru- og þjónustukaup
      • Galli
      • Skilaréttur
      • Gjafabréf
      • Iðnaðarmenn
      • Kaup á netinu
    • Fasteignir
      •  
      •  
      •  
      •  
  • Um Ns
    • Stefna
    • Starfsfólk
    • Stjórn
    • Ályktanir stjórnar
    • Lög
    • Skýrslur
    • Saga
    • Siðareglur
    • Skráning í samtökin
    • Persónuverndarstefna
  • EN
Leit

Neytandi leggur ferjuflutningafélag

26/11/2021

Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa úrskurðaði nýlega að Smyril line þyrfti að endurgreiða neytenda 40.000 kr. vegna oftekinna gjalda við gerð farmbréfs. Vildi félagið innheimta 50.000 krónur, en við það sætti kvartandi sig ekki og fór því með málið fyrir kærunefndina, sem taldi 10.000 krónur vera sanngjarna upphæð og gerði félaginu að endurgreiða mismuninn.

Fram kemur í úrskurðinum, sem sjá má hér, að neytandinn hafi siglt með Smyril line frá Danmörku til Íslands fyrir um ári. Ferðin var liður í búferlaflutningum neytandans til Íslands. Með í ferð var bifreið hans, skráð í því landi hvar hann áður bjó. Eftir komuna til landsins sendi Smyril line neytandanum kröfu að upphæð 50.000 krónur vegna farmskrárgerðar sem hann greiddi til að forðast innheimtukostnað, með fyrirvara um endurgreiðslu að heild eða hluta. Eins og áður segir mat kærunefndin hæfilegt endurgjald fyrir þjónustuna 10.000 krónur. Bar því Smyril line að endurgreiða neytandanum 40.000 krónur.

Gerð farmbréfa krefst ekki mikillar vinnu, enda eru þau frekar einfaldar skýrslur og flest flutningafyrirtæki innheimta um eða undir 10.000 kr. fyrir slíka vinnslu. Það vissi neytandinn og sætti sig því ekki við fimmfaldan kostnað.

Mál þetta sýnir svo ekki verður um villst mikilvægi þess að neytendur standi á rétti sínum. En einnig sýnir þetta hversu mikilvægt er að neytendur hafi skjóta og tiltölulega einfalda leið til að fá úrlausn mála sinna. Þá gerði neytandinn rétt í að greiða gjaldið með fyrirvara.

Eftir að úrskurðurinn var kveðinn upp hafa Neytendasamtökin haft spurnir af fleirum sem hafa verið ofrukkaðir á sama hátt og hafa fengið endurgreitt 40.000 kr. eftir að hafa vitnað í úrskurð kærunefndarinnar. Neytendasamtökin hvetja aðra sem kunna að hafa verið ofrukkaðir af Smyril line að fara fram á endurgreiðslu.

Deila

Fréttir í sama dúr

30/11/2022

Ferðaskrifstofa Íslands dæmd til endurgreiðslu pakkaferðar


Lesa
Peningaseðill
06/05/2022

Ályktun stjórnar Neytendasamtakanna um yfirstandandi dýrtíð


Lesa
Gjallarhorn

Gjallarhorn

25/04/2022

Varist Tryggingar og ráðgjöf ehf.


Lesa

NEYTENDASAMTÖKIN

NS eru frjáls félagasamtök stofnuð árið 1953. Samtökin eru aðeins eins öflug og fjöldi félagsmanna segir til um. Skráðu þig í samtökin og hjálpaðu okkur að hjálpa þér.

 

 

HAFÐU SAMBAND

Sendu okkur póst

ns[hja]ns.is

Sími: (+354) 545 1200

Heimilisfang:
Guðrúnartúni 1,
105 Reykjavík

OPNUNARTÍMAR

Félagsmenn:
Mánud. – fimmtud.:
10.00 – 12.00 og 12.30 – 15.00
Föstudagar:
10.00-12.00

Utanfélagsmenn:
Fimmtudagar:
10.00 – 12.00 og 12.30 – 15.00

Leigjendaaðstoð:
Þriðjud. og fimmtud.:
10:00-12:00 & 12:30 – 15.00

ÖNNUR ÞJÓNUSTA

ECC net aðstoð

Leigjendaadstodin-merki

© 2022. Neytendasamtökin. Öll réttindi áskilin.