• Fréttir NS
  • Neytendablaðið
    • Neytendablaðið
    • Gæðakannanir
  • Aðstoð
    • Verðskrá
      •  

        Árgjald 2022 er 6.500 kr.

        Gerast félagsmaður
      Þjónusta
      • Neytendaaðstoðin
      • Evrópska Neytendaaðstoðin
      • Leigjendaaðstoðin
      Úrræði
      • Úrskurðanefndir
      • Skammarkrókur
      • ODR
  • Málaflokkar
    • Ferðamál
      • Flug
      • Hótel
      • Bílaleiga
      • Pakkaferðir
      Fjármál
      • Smálán
      • Neytendalán
      • Innheimta
      Matur
      • Aukefni í mat
      • Koffíndrykkir
      • Matarsóun
      • Jarðheilsufæði
      Umhverfi og siðræn neysla
      • Merkingar
      • Plast
      • Textíll
      Vöru- og þjónustukaup
      • Galli
      • Skilaréttur
      • Gjafabréf
      • Iðnaðarmenn
      • Kaup á netinu
      Fasteignir
      •  
      •  
      •  
      •  
  • Um Ns
    • Stefna
    • Starfsfólk
    • Stjórn
    • Ályktanir stjórnar
    • Lög
    • Skýrslur
    • Saga
    • Siðareglur
    • Skráning í samtökin
    • Persónuverndarstefna
  • EN
Leit
Sláðu inn leitarorð hér
  • Fréttir NS
  • Neytendablaðið
    • Neytendablaðið
    • Gæðakannanir
  • Aðstoð
    • Verðskrá
      •  
    • Þjónusta
      • Neytendaaðstoðin
      • Evrópska Neytendaaðstoðin
      • Leigjendaaðstoðin
    • Úrræði
      • Úrskurðanefndir
      • Skammarkrókur
      • ODR
  • Málaflokkar
    • Ferðamál
      • Flug
      • Hótel
      • Bílaleiga
      • Pakkaferðir
    • Fjármál
      • Smálán
      • Neytendalán
      • Innheimta
    • Matur
      • Aukefni í mat
      • Koffíndrykkir
      • Matarsóun
      • Jarðheilsufæði
    • Umhverfi og siðræn neysla
      • Merkingar
      • Plast
      • Textíll
    • Vöru- og þjónustukaup
      • Galli
      • Skilaréttur
      • Gjafabréf
      • Iðnaðarmenn
      • Kaup á netinu
    • Fasteignir
      •  
      •  
      •  
      •  
  • Um Ns
    • Stefna
    • Starfsfólk
    • Stjórn
    • Ályktanir stjórnar
    • Lög
    • Skýrslur
    • Saga
    • Siðareglur
    • Skráning í samtökin
    • Persónuverndarstefna
  • EN
Leit

Svik á leigumarkaði

05/01/2023

Leigjendaaðstoð Neytendasamtakanna barst ábending um að íbúðir væru auglýstar til leigu á samfélagsmiðlum á óvenju lágu verði. Virðist sem óprúttnir þrjótar reyni að nýta sér neyð húsnæðisleitenda.

Til að eiga kost á því að sækja um íbúðirnar þarf að greiða sérstakt umsóknargjald sem er á bilinu 4.900 kr. til 14.000 kr. Neytendasamtökin telja slíkt gjald fáránlegt og vara fólk við að greiða slík gjöld. Neytendasamtökin hafa spurnir af því að fólk hafi í góðri trú greitt gjaldið og hafa boðið fram aðstoð sína við að fá það endurgreitt.

Við snögga leit kom í ljós að myndir sem eiga að vera af leiguíbúðum í Reykjavík, eru fengnar frá hinum ýmsu stöðum, eins og  á Facebook síðu fyrir innanhúsarkitektúr í  Eistlandi og frá hóteli í Ósló. Leikur enginn vafi á að umræddar myndir eru ekki af íbúðum í Reykjavík. Þá er nafn meints fyrirtækis ekki að finna í fyrirtækjaskrá.

Leigjendaaðstoð Neytendasamtakanna hvetur húsnæðisleitendur til þess að hafa varann á, og skoða vel þá sem bjóða húsnæði til leigu. Það er meðal annars hægt með því að fletta fyrirtækjum upp í fyrirtækjaskrá Skattsins (https://www.skatturinn.is/fyrirtaekjaskra/).

Húsnæðisleitendur eru hvattir til að hafa samband við Leigjendaaðstoð Neytendasamtakanna, séu þeir í vafa, eða hafa spurningar um rétt sinn og stöðu. Þjónusta Leigjendaaðstoðarinnar er leigjendum að kostnaðarlausu.

Hægt er að hafa senda tölvupóst: postur@leigjendur.is eða hringja á símatíma Leigjendaaðstoðarinnar á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 10:00-12:00 og 12:30-15:00, í síma  545 1200. Upplýsingar um réttindi og skyldur leigutaka og leigusala á íslensku, ensku og pólsku er að finna á www.leigjendur.is.

Neytendasamtökin reka Leigjendaaðstoð fyrir leigjendur íbúðarhúsnæðis samkvæmt samningi við innviðaráðuneytið (og áður félagsmálaráðuneytið).

Deila

Fréttir í sama dúr

Netsvik
16/01/2023

Netsvik – Hver ber ábyrgðina?


Lesa
Smálánagildra
15/11/2022

Netsvik – staðfesting með SMS ótæk


Lesa
22/02/2019

Ársskýrsla Leigjendaaðstoðarinnar


Lesa

NEYTENDASAMTÖKIN

NS eru frjáls félagasamtök stofnuð árið 1953. Samtökin eru aðeins eins öflug og fjöldi félagsmanna segir til um. Skráðu þig í samtökin og hjálpaðu okkur að hjálpa þér.

 

 

HAFÐU SAMBAND

Sendu okkur póst

ns[hja]ns.is

Sími: (+354) 545 1200

Heimilisfang:
Guðrúnartúni 1,
105 Reykjavík

OPNUNARTÍMAR

Félagsmenn:
Mánud. – fimmtud.:
10.00 – 12.00 og 12.30 – 15.00
Föstudagar:
10.00-12.00

Utanfélagsmenn:
Fimmtudagar:
10.00 – 12.00 og 12.30 – 15.00

Leigjendaaðstoð:
Þriðjud. og fimmtud.:
10:00-12:00 & 12:30 – 15.00

ÖNNUR ÞJÓNUSTA

ECC net aðstoð

Leigjendaadstodin-merki

© 2022. Neytendasamtökin. Öll réttindi áskilin.