Aðalfundur Neytendasamtakanna verður haldinn þriðjudaginn 21. apríl að Guðrúnartúni 1. Fundurinn hefst kl.17:30. 

Allir skuldlausir félagsmenn hafa rétt til setu á fundinum.

Félagsmenn eru hvattir til að skrá mætingu með tölvupósti á ns@ns.is eða í síma 545 1200.

Á dagskrá verða hefðbundin aðalfundarstörf skv. 6. grein samþykkta.

Ekki liggja fyrir lagabreytingar og sjálfkjörið er í stjórn.

 Dagskrá fundarins:
 1. Kjör fundarstjóra og   fundarritara.
 2. Skýrsla stjórnar um   starfsemi samtakanna og   rekstur þeirra á liðnu   starfsári.
 3. Endurskoðaður   ársreikningur 2025 lagður   fram.
 4.  Rekstraráætlun til næstu   áramóta lögð fram.
 5.  Kynning og umræða um   stefnu samtakanna og   ályktanir sem liggja fyrir   fundinum.
 6. Kjöri stjórnar lýst.
 7. Kjör tveggja   skoðunarmanna reikninga   og þriggja manna   kjörnefndar til eins árs.
 8. Önnur mál.
 9. Fundi slitið.

 Fundargögn:

Ársreikningur 2025

 Tillaga að kjörnefnd

 Tillaga að skoðunarmönnum

Takk fyrir áhugann!

 Þetta vefsvæði er kostað af árgjöldum félaga í Neytendasamtökunum.

Ef þú ert ekki þegar í samtökunum biðjum við þig að íhuga að ganga í þau. Árgjaldið er 7.900 kr.