Í desember 2021 var bönkunum þremur stefnt fyrir dóm. Valin voru fimm mál úr á sjötta þúsund mála sem samtökunum voru send, með það fyrir augum að fá fordæmi á sem víðtækasta sviði. Þau mál sem hafa víðustu skírskotun og áhrif eru líklega mál E-5932/2021 gegn Landsbankanum og mál E-2539/2021 gegn Íslandsbanka, þar sem flestir lántakar eru með slík lán, tekin eftir að Evróputilskipun (2014/17/ESB) voru leidd í lög (118/2016). Ekki hefur reynt á lögin fyrir dómi og því leituðu Héraðsdómar Reykjavíkur (í máli Landsbankans) og Reykjaness (í máli Íslandsbanka) eftir ráðgefandi áliti EFTA dómstólsins um hvernig túlka bæri nokkur atriði þeirra. Í hálfsársuppgjörum sínum árið 2024 mátu bankarnir líklegan kostnað sinn, tapi þeir málunum, á samtals 43,5 milljarða króna, Arion banki á 12 ma.kr., Íslandsbanki á 14 ma.kr. og Landsbankinn á 17,5 ma.kr. Að auki er gæti töluverð vaxtaáhætta fylgt dómsniðurstöðunni. Í árslok 2024 mátu bankarnir kostnaðinn 52,6 ma.kr. til 56,6 ma.kr. (Arion banki 15-19 ma.kr., Íslandsbanki 20,6 ma.kr. og Landsbankinn 17 ma.kr.).
Bankarnir vinna hörðum höndum að því að tefja málin eins og þeir geta, líklega til að sem stærstur hluti fyrnist verði þeir dæmdir til að endurgreiða oftöku sína. Því er afar mikilvægt að lántakar slíti fyrningu (sjá upplýsingar hér). Það er ekki of seint að bregðast við.
–Mál E-5932/2021 gegn Landsbankanum vegna fasteignaláns að fjárhæð 6,5 mkr. tekið 2019 og greitt upp 2021.
-Héraðsdómur óskaði eftir ráðgefandi áliti EFTA-dómstólsins, sem var birt 23. maí 2024.
-Málsmeðferð var í Héraðsdómi Reykjavíkur 21. febrúar 2025.
-Bankinn var sýknaður með dómi 20. mars 2025.
-Málsmeðferð var í Hæstarétti (mál 35/2025) þann 8. desember (án viðkomu í Landsrétti).
Þann 22. desember 2025 kvað kvað Hæstiréttur upp dóm og voru skilmálar dæmdir ógildir, en þar sem rétturinn taldi lántaka ekki hafa orðið fyrir tjóni var bankanum ekki gert að endurgreiða neitt.
–Mál E-5933/2021 gegn Landsbankanum vegna tveggja skuldabréfalána að fjárhæð 2,3 mkr. tekin 2006 og greidd upp 2021.
-Bankinn hlaut sektardóm í héraði 7. feb 2023. Málinu var áfrýjað til Landsréttar.
-Málsmeðferð í Landsrétti (mál 429/2023) var 16. janúar 2025. Bankinn var sýknaður með dómi 13. febrúar 2025.
-Málsmeðferð var í Hæstarétti (mál 32/2025) 3. desember 2025.
-Þann 22. desember 2025 kvað kvað Hæstiréttur upp dóm og voru skilmálar dæmdir ógildir (nema þar sem vísað er til vaxta Seðlabankans) líkt og í Íslandsbankamálinu. Þrátt fyrir það var bankinn var sýknaður af fjárkröfum þar sem hinir ólöglegu skilmálar hefðu skapað löglegar væntingar um vaxtabreytingar.
–Mál E-5931/2021 gegn Arion banka vegna verðtryggðs fasteignaláns að fjárhæð 5,4 mkr. tekið 2017 og greitt upp 2021.
-Bankinn hlaut sýknudóm í héraði 7. feb 2023. Málinu var áfrýjað til Landsréttar.
-Málsmeðferð í Landsrétti (mál 333/2023) var 16. janúar 2025. Bankinn var sýknaður með dómi 13. febrúar 2025.
-Málsmeðferð í Hæstarétti (mál 15/2025) var 17. nóvember 2025. Dómur Landsréttar var staðfestur í Hæstarétti þann 10. desember 2025.
–Mál E-2539/2021 gegn Íslandsbanka vegna fasteignaláns að fjárhæð 57 mkr. tekið í janúar 2021.
-Héraðsdómur óskaði eftir ráðgefandi áliti EFTA-dómstólsins, sem var birt 23. maí 2024.
-Málsmeðferð í Héraðsdómi Reykjaness var 15. október 2024. Dómur féll 12. nóvember 2024 og bankinn var sýknaður.
-Hæstiréttur samþykkti áfrýjunarbeiðni og fór málið beint til Hæstaréttar án viðkomu í Landsrétti.
-Málsmeðferð var í Hæstarétti 7. maí 2025.
-Þann 27. maí 2025 tók Hæstiréttur ákvörðun að málið skyldi endurflutt í heild sinni þann 16. september 2025 í því skyni að fá afstöðu málsaðila til fjögurra atriða.
-Þann 14. október 2025 kvað Hæstiréttur upp dóm (mál nr. 55/2024) og ógilti alla huglæga þætti sem höfðu áhrif á vaxtabreytingar lánsins og tók þannig að öllu leyti undir kröfur Neytendasamtakanna.
–Mál E-2537/2021 gegn Íslandsbanka vegna skilmála sem Hæstiréttur hefur þegar lýst ólögmætan með dómi í máli nr. 623/2016. Neytendasamtökin telja bankann hafa brugðist rangt við dóminum og haldið áfram að innheimta upphaflega vexti lánsins, þrátt fyrir að vaxtaskilmáli veðskuldabréfsins hafi verið dæmdur ólögmætur. Lánið var tekið 2007 og greitt upp 2021. Stefnufjárhæðin er 5,9 mkr.
-Málið var dómtekið í Héraðsdómi Reykjaness 27. apríl 2023
-Bankinn var sýknaður með dómi 25. maí 2023. Málinu var áfrýjað til Landsréttar.
-Málsmeðferð í Landsrétti (mál 462/2023) var 16. janúar 2024. Bankinn var sýknaður með dómi 13. febrúar 2025.
-Hæstiréttur hefur samþykkt áfrýjunarbeiðni. Málsmeðferð hefur verið frestað þar til nuðurstaða fæst í öðrum Vaxtamálum. Ekki hefur verið tekin ákvörðun framhald málsins.
Málsmeðferð „systurmálsins“, Neytendastofu gegn Íslandsbanka (mál nr. 99/2022), sem einnig var vísað til EFTA-dómstólsins og hlaut sömu dómsorð, var á dagskrá Landsréttar 16. janúar 2025. Í dómi réttarins 13. febrúar 2025 var Neytendastofa sýknuð af kröfum bankans og úrskurður Neytendastofu um að ákvæði í samningum bankans stangist á við lög stendur. Hæstiréttur hefur samþykkt áfrýjunarbeiðni. Íslandsbanki féll frá árýjun sinni og unir dómi Landsréttar sem dæmdi skilmálana ólöglega og þar með ógilda. .
(Ofangreint var uppfært 12. janúar 2026 miðað við stöðu mála)
Þetta vefsvæði er kostað af árgjöldum félaga í Neytendasamtökunum.
Ef þú ert ekki þegar í samtökunum biðjum við þig að íhuga að ganga í þau. Árgjaldið er 7.900 kr.