Fréttir

Endurgreiðsla æfingagjalda vegna Covid-19

Neytendasamtökin eru ekki að öllu leyti sammála því sem fram kemur í tilmælum frá ÍSÍ og UMFÍ, að íþróttaiðkendur geti ekki krafist endurgreiðslu æfingagjalda vegna æfinga sem ekki fara fram með þeim hætti sem til stóð. Því vilja samtökin varpa ljósi á rétt neytenda í þessum og sambærilegum málum.

Félagsmenn Neytendasamtakanna geta haft samband við samtökin og fengið frekari upplýsingar og aðstoð, sé þess óskað. Álag á símkerfið er mikið um þessar mundir og eru félagsmenn hvattir til að senda tölvpóst (ns@ns.is) með nafni, símanúmeri og hvað málið varðar. Sértu félagsmaður, verður haft samband við þig eins fljótt og auðið er. Hægt er að skrá sig hér.

Á þessum eindæma tímum hafa mörg, ef ekki flest öll, námskeið fallið niður eða verið frestað. Hafa skólar og félög reynt að koma til móts við sína viðskiptavini með því að bjóða upp á fjarkennslu. Fjarkennslan er með ýmsu móti; iðkendur fá sent myndband, verkefni eða æfingum og námskeiðum er streymt til neytenda. Fagna samtökin þessum lausnum og telja þau prýðileg fyrir þá sem þær vilja og geta þegið.

Þetta hentar þó ekki öllum. Sum námskeið eru einfaldlega þannig að neytandi telur sig ekki vera að fá það sem hann samdi um og greiddi fyrir. Þegar þannig háttar eiga neytendur í mörgum tilfellum rétt á því að fá hlutfallslega endurgreiðslu þ.e. fyrir þá tíma er námskeiðshaldari getur ekki efnt. Að gefnu tilefni skal tekið fram að krafa um hlutfallslega endurgreiðslu er ekki krafa um skaðabætur.

Það er öllum í hag að ná saman um niðurstöðu sem gagnast bæði iðkendum og íþróttahreyfingunni. Ef boð hreyfingarinnar um framlengingu æfingatímabils og fjarkennslu hentar iðkendum, er bæði rétt og skynsamlegt að þiggja slíkt boð. Vilji eða geti iðkandi af einhverjum ástæðum ekki þegið boðið á hann í flestum tilfellum rétt á endurgreiðslu, amk þess hluta sem ekki var unnt að sinna vegna samkomubanns, nema að annað sé skýrt tekið fram í samningum milli iðkanda og íþrótta- eða ungmennafélags.

Neytendasamtökin hvetja aðila til að ná saman, og annast samtökin meðal annars milligöngu fyrir félagsmenn sína með það fyrir augum. En ef af einhverjum ástæðum það er ekki unnt, benda samtökin á að hægt er að fara með mál fyrir kærunefnd vöru og þjónustukaupa sem úrskurðar í ágreiningsmálum milli neytenda og seljenda um flestar gerðir samninga vegna kaupa á vöru eða þjónustu.

Fréttir í sama dúr

Opnunartími yfir hátíðirnar

Droppshipping – ekki er allt sem sýnist

Afstaða stjórnmálaflokkanna til neytendamála

Breytingar á búvörulögum gegn stjórnarskrá

Aðalfundur Neytendasamtakanna 2024

Ályktanir aðalfundar

Takk fyrir áhugann!

 Þetta vefsvæði er kostað af árgjöldum félaga í Neytendasamtökunum.

Ef þú ert ekki þegar í samtökunum biðjum við þig að íhuga að ganga í þau. Árgjaldið er 7.900 kr.