Fréttir

Evrópsk samstaða um lyf á viðráðanlegu verði

Neytendasamtök, sjúklingasamtök og önnur samtök sem láta sig heilbrigðismál varða hafa myndað samstöðuhóp sem kallar eftir  nýju kerfi ábyrgra rannsókna og þróunar á lyfjum og því að lyf séu á viðráðanlegu verði. Þetta á ekki síst við um ný lyf og þegar önnur meðferð er ekki í boði. Þar má nefna lyf vegna alnæmis, krabbameins og lifrarbólgu C. Í yfirlýsingu hópsins er bent á að verð nýrra lyfja sem háð eru einkaleyfum hækki ár frá ári, sem sé þungbært fjárhagslega, bæði fyrir einstaklinga og heilbrigðiskerfi einstakra ríkja. Neytendasamtökin eiga aðild að samstöðuhópnum. Með því að smella hér má sjá áskorunina í heild sinni á ensku.

Fréttir í sama dúr

Bílastæðamál fyrir Hæstarétt

Baráttan um bílastæðin

Neytendablaðið er komið út

Aðalfundur 22. október

Staðan í Vaxtamálinu

Smálánabaráttan

Takk fyrir áhugann!

 Þetta vefsvæði er kostað af árgjöldum félaga í Neytendasamtökunum.

Ef þú ert ekki þegar í samtökunum biðjum við þig að íhuga að ganga í þau. Árgjaldið er 7.900 kr.