Fréttir

Fyrirmyndarviðbrögð ferðaskrifstofa

Neytendasamtökunum bárust í síðustu viku tilkynningar frá félagsmönnum um að Ferðaskrifstofa Íslands, Úrval Útsýn og Plúsferðir hefðu haft samband og farið fram á að þeir greiddu hærra verð fyrir pakkaferðir en áður hafði verið samið um. En vegna kerfisvillu var uppgefið verð á bókunarsíðu fyrirtækjanna lægra en þær höfðu ætlað sér.

Neytendasamtökin höfðu samband við skrifstofurnar sem um ræðir og bentu á að samkvæmt lögum um pakkaferðir beri seljandi ábyrgð á hvers konar skekkjum eða tæknilegum vanköntum í bókunarkerfi. Fulltrúar ferðaskrifstofanna funduðu með Neytendasamtökunum og varð niðurstaðan sú að þeir staðfestu að þeir myndu taka fulla ábyrgð á bókunarkerfisvillunum og draga kröfur um hærra verð til baka.

Neytendasamtökin fagna því að Ferðaskrifstofa Íslands, Úrval Útsýn og Plúsferðir fari í einu og öllu eftir lögum um pakkaferðir og hrósa félögunum jafnframt fyrir að hafa leitað ráða hjá samtökunum. Mega önnur fyrirtæki taka vinnubrögð stjórnenda Ferðaskrifstofu Íslands, Úrvals Útsýnar og Plúsferða sér til fyrirmyndar.  

Fréttir í sama dúr

Bílastæðamál fyrir Hæstarétt

Baráttan um bílastæðin

Neytendablaðið er komið út

Aðalfundur 22. október

Staðan í Vaxtamálinu

Smálánabaráttan

Takk fyrir áhugann!

 Þetta vefsvæði er kostað af árgjöldum félaga í Neytendasamtökunum.

Ef þú ert ekki þegar í samtökunum biðjum við þig að íhuga að ganga í þau. Árgjaldið er 7.900 kr.