Neytendasamtökin hafa í 70 ár barist fyrir auknum rétti neytenda og spornað við yfirburðastöðu valdhafa, sérhagsmunahópa og fyrirtækja. Neytendasamtökin eru frjáls félagasamtök sem reiða sig á árgjöld félagsmanna. Nú er hægt að styðja enn frekar við samtökin með því að gerast hollvinur Neytendasamtakanna.
Til að fá skattaafslátt þarf styrkurinn að vera að lágmarki 10.000 kr. á ári. Lægri styrkir eru að sjáfsögðu vel þegnir. Hægt er að velja um að greiða í eitt skipti eða árlega og er framlagið frjálst. Allar upplýsingar eru trúnaðarmál og verða ekki afhentar þriðja aðila (með þeirri undantekningu að við sendum Skattinum upplýsingar um kennitölu og upphæð til að gera skattafrádrátt mögulegan). Þú skráir þig og við sjáum um rest!
Með því að gerast hollvinur Neytendasamtakanna er hægt að fá skattafslátt í formi lækkunnar á útsvars- og tekjuskattstofni allt að 350.000 kr. hjá einstaklingi og 700.000 kr. hjá hjónum og sambúðarfólki. Neytendasamtökin sjá um að koma upplýsingum til Skattsins og þær birtast sjálfkrafa á rafrænu framtali hvers árs. Sjá nánar á vefsíðu Skattsins, hér.
Fyrirtæki (og rekstraraðilar) geta líka gerst hollvinir og nemur frádráttur þeirra allt að 1,5% af rekstrartekjum. Sjá nánar á vefsíðu Skattsins, hér.
Einstaklingur eða hjón í miðskattþrepi, sem styrkja Neytendasamtökin um 100.000 kr. fá skattaafslátt sem nemur 37.950 kr.
Fyrirtæki sem styrkir Neytendasamtökin um 500.000 kr. fá skattaafslátt sem nemur 100.000 kr. miðað við 20% almennt skattþrep.
Þetta vefsvæði er kostað af árgjöldum félaga í Neytendasamtökunum.
Ef þú ert ekki þegar í samtökunum biðjum við þig að íhuga að ganga í þau. Árgjaldið er 7.900 kr.