I KAFLI – Almenn ákvæði
1. gr. Heiti
Nafn samtakanna er Neytendasamtökin. Heimili þeirra og varnarþing er í Reykjavík.
Neytendasamtökin eru hagsmunasamtök neytenda á Íslandi.
2. gr. Tilgangur, fjármögnun og ráðstöfun fjármuna
Tilgangur Neytendasamtakanna er að standa vörð um réttindi neytenda og efla hag þeirra í
samræmi við stefnu samtakanna.
Samtökin eru sjálfstæð og óháð einstaklingum, félögum, fyrirtækjum, samtökum,
stjórnmálaflokkum og opinberum aðilum.
Rekstur og verkefni Neytendasamtakanna eru fjármögnuð með félagsgjöldum,
þjónustusamningum, styrkjum frá opinberum aðilum, stéttarfélögum, fyrirtækjum og
einstaklingum. Fjármagni sem samtökunum áskotnast skal að öllu leyti varið til reksturs
samtakanna eða til verkefna sem samræmast tilgangi þeirra.
Reikningstímabil Neytendasamtakanna er almanaksárið.
Samtökin starfa samkvæmt lögum nr. 110/2021 um félög til almannaheilla og gilda lögin um
atriði sem ákvæði samþykkta Neytendasamtakanna ná ekki til eða til atriða sem eru
ófrávíkjanleg samkvæmt lögunum.
3. gr. Aðild
Einstaklingar sem orðnir eru 18 ára geta orðið félagar í Neytendasamtökunum. Félagsaðild er til
eins árs í senn og endurnýjast sjálfkrafa nema viðkomandi hafi sagt sig úr samtökunum með
sannanlegum hætti, t.d. í tölvupósti á aðalnetfang samtakanna. Félagar njóta fullra réttinda og
þjónustu samtakanna í eitt ár frá því að greiðsla félagsgjalds berst og hafa kjörgengi og
kosningarétt í kosningum til trúnaðarstarfa fyrir samtökin.
II KAFLI – Aðalfundur Neytendasamtakanna
4. gr. Aðalfundur
Aðalfundur Neytendasamtakanna er æðsta vald í málefnum þeirra. Aðalfundur skal haldinn
árlega í apríl. Til aðalfundar skal boðað með a.m.k. mánaðar fyrirvara. Það skal gert með
auglýsingu í a.m.k. einum fjölmiðli, og með tilkynningu á vefsetri samtakanna.
Stjórn er heimilt að halda aðalfund með rafrænum hætti að hluta eða öllu leyti og skal þá tryggja
að gætt sé jafnræðis meðal fundarfólks hvort sem það sækir fundinn á staðnum eða rafrænt.
Aðalfundur Neytendasamtakanna er lögmætur ef löglega er til hans boðað.
5. gr. Atkvæðisréttur
Allir félagar Neytendasamtakanna eiga rétt til setu á aðalfundi samtakanna og hafa atkvæðisrétt,
enda hafa þeir greitt félagsgjald og eru í skilum við samtökin tíu dögum fyrir aðalfund. Afl atkvæða
ræður úrslitum mála á aðalfundum og félagsfundum, nema þar sem annað er ákveðið í
samþykktum þessum.
6. gr. Dagskrá aðalfundar
Dagskrá aðalfundar:
- Kjör fundarstjóra og annarra embættismanna fundarins.
- Skýrsla stjórnar um starfsemi samtakanna og rekstur þeirra á liðnu starfsári.
- Endurskoðaður ársreikningur lagður fram.
- Rekstraráætlun til næstu áramóta lögð fram.
- Kynning og umræða um stefnu samtakanna.
- Breytingar á samþykktum.
- Kjör formanns. Að jafnaði annað hvert ár.
- Kjör annarra stjórnarmanna.
- Kjör tveggja skoðunarmanna reikninga og þriggja manna kjörnefndar til eins árs.
- Önnur mál.
III KAFLI – Stjórnar- og formannskjör Neytendasamtakanna
7. gr. Framboð
Stjórn Neytendasamtakanna skal auglýsa eftir framboðum til stjórnar, þar á meðal formennsku
þegar við á, fyrir 15. febrúar ár hvert með auglýsingu í a.m.k. einum fjölmiðli og með tilkynningu
á vefsetri samtakanna. Framboð skulu berast eigi síðar en 1. mars. Kjörnefnd og
framkvæmdastjóri ganga úr skugga um að frambjóðendur njóti kjörgengis, sbr. 3. gr. og 11. gr.
Uppfylli frambjóðendur ekki skilyrði 3. gr. skal þeim gefinn vikufrestur til að bæta úr því.
8. gr. Kosningar
Kosning formanns og annarra stjórnarmanna er leynileg og fer fram í tengslum við aðalfund
samtakanna. Séu frambjóðendur jafnmargir og kjósa skal í tiltekin embætti skoðast
frambjóðendur sjálfkjörnir.
Kosningar skulu vera rafrænar, nema því verði ekki við komið. Rafrænar kosningar skulu standa í
að minnsta kosti þrjá sólarhringa. Kosningar skulu hefjast að hámarki 10 dögum fyrir aðalfund og
skal lokið að lágmarki daginn fyrir aðalfund.
Kjöri stjórnar skal lýst á aðalfundi.
9. gr. Kjörnefnd
Kjörnefnd skal sjá um framkvæmd og eftirlit með kosningum til stjórnar, þar á meðal
formannskjöri. Kjörnefnd skal:
- Hafa eftirlit með því að rétt sé boðað til kosninga til trúnaðarstarfa samtakanna.
- Ganga úr skugga um að frambjóðendur njóti kjörgengis í samræmi við ákvæði samþykktanna.
- Tryggja að nógu mörg framboð komi fram í þau embætti sem kosið er um.
- Hafa eftirlit með kjöri til stjórnar og framkvæmd kosninga.
IV KAFLI – Stjórn, framkvæmdastjóri og önnur trúnaðarstörf
10. gr. Hæfisskilyrði
Almennt hæfi er að viðkomandi sé lögráða, hafi óflekkað mannorð og hafi ekki á síðustu þremur
árum hlotið dóm fyrir refsiverðan verknað í tengslum við atvinnurekstur.
Þau sem sitja í stjórn, nefndum eða starfa fyrir samtökin og eru vanhæf til meðferðar máls mega
ekki taka þátt í undirbúningi þess, meðferð eða úrlausn. Þeim sem kunnugt er um eða telja að
vanhæfi eigi við skulu upplýsa um það eins skjótt og unnt er að eigin frumkvæði. Starfsfólk skal
upplýsa næsta yfirmann um mögulegt vanhæfi og stjórnarfólk upplýsa formann. Stjórn úrskurðar
um hæfi. Hin vanhæfu skulu yfirgefa fundarsal við afgreiðslu þess.
Við val einstaklinga til setu í trúnaðarstörfum á vegum samtakanna skal sem unnt er gæta
jafnræðis milli kynja og félagslegs fjölbreytileika í samtökunum.
11. gr. Skipan stjórnar
Stjórn samtakanna er skipuð 12 einstaklingum auk formanns, samtals 13. Formaður skal kjörinn
til tveggja ára í senn.
Á hverju ári skal kjósa sex stjórnarmenn í tengslum við aðalfund samtakanna til tveggja ára í senn.
Láti stjórnarmaður af embætti áður en tveggja ára tímabili lýkur er heimilt að kjósa nýjan í hans stað á næsta aðalfundi og situr sá út kjörtímabil þess sem lætur af störfum. Um framboð í slíkum
tilvikum fer eftir ákvæðum 7. gr.
Láti formaður af stjórnarstörfum, eða er ekki unnt að sinna skyldum sínum, skal varaformaður
sinna hlutverki formanns fram að næsta aðalfundi. Skal þá kosinn formaður til tveggja ára.
12. gr. Verkefni stjórnar
Stjórn Neytendasamtakanna er æðsta vald í málefnum samtakanna milli aðalfunda, ber ábyrgð á
starfsemi þeirra og gætir hagsmuna þeirra á grundvelli þessara samþykkta og ákvarðana sem teknar eru
á aðalfundi. Stjórn tekur ákvarðanir í málum sem snerta rekstur samtakanna og skipulag, fylgir
eftir stefnu samtakanna í samræmi við ákvörðun aðalfundar og tekur afstöðu til stefnumarkandi
mála sem upp koma. Meirihluta stjórnar þarf til að skuldbinda félagið.
Stjórn markar stefnu samtakanna út frá tilgangi þeirra og ákvörðunum aðalfundar.
Stjórn samtakanna ber ábyrgð á fjárreiðum þeirra. Stjórnin skal sjá til þess að nægjanlegt eftirlit
sé með bókhaldi samtakanna. Stjórn ber ábyrgð á gerð ársreiknings.
Stjórn ræður framkvæmdastjóra sem heyrir beint undir stjórn samtakanna. Stjórnarfólki er
óheimilt að gegna stöðu framkvæmdastjóra. Framkvæmdastjóri sér um daglegan rekstur
skrifstofu og ber ábyrgð á honum.
Stjórn ákveður launakjör og starfsskyldur formanns og framkvæmdastjóra.
Stjórn Neytendasamtakanna ákveður fjárhæð árgjalds.
Stjórn skal setja starfs- og siðareglur um starfshætti og ábyrgð stjórnar- og starfsfólks, þar sem
m.a. er kveðið á um hlutverk varaformanns, ritara og gjaldkera.
Gjaldkeri stjórnar hefur eftirlit með fjármálum samtakanna og hefur skoðunaraðgang að
reikningum félagsins.
13. gr. Stjórnarfundir
Á fyrsta fundi nýrrar stjórnar að loknum aðalfundi skiptir stjórnin með sér verkum og kýs úr sínum
hópi varaformann, ritara og gjaldkera. Sé gerð tillaga um tvo eða fleiri til hvers embættis skal
atkvæðagreiðsla vera skrifleg og leynileg.
Stjórnarfundi skal halda svo oft sem þurfa þykir. Formaður boðar til funda með minnst þriggja
daga fyrirvara. Beri brýna nauðsyn til getur formaður boðað fund með skemmri fyrirvara, þó
aldrei skemmri en eins sólarhrings. Heimilt er að stjórnarmaður taki þátt í stjórnarfundi með hjálp
fjarfundabúnaðar.
Krefjist tveir stjórnarmenn þess að stjórnarfundur sé haldinn skal halda hann sem allra fyrst og
eigi síðar en tíu dögum frá því að krafa um stjórnarfund berst.
Stjórnarfundir eru lögmætir sé löglega til þeirra boðað.
Stjórnarfundur er ályktunarbær ef meirihluti stjórnarmanna sækir fund. Afl atkvæða ræður
úrslitum á stjórnarfundum. Falli atkvæði jafnt ræður atkvæði formanns úrslitum.
Ritari stjórnar skal skrá fundargerðir. Fundargerð skal samþykkt eigi síðar en í upphafi næsta
stjórnarfundar, nema sérstaklega standi á. Samþykktar fundargerðir skulu birtar opinberlega á
vefsetri samtakanna.
V KAFLI – Breytingar samþykkta og slit samtakanna
14. gr. Breytingar
Samþykktum þessum má einungis breyta á aðalfundi og þarf 2/3 hluta greiddra atkvæða til að
breytingin nái fram að ganga. Breytingartillögur skulu lagðar fram á skrifstofu samtakanna eða
með tölvuskeyti til þeirra eigi síðar en 1. mars. Í fundarboði skal þess getið sérstaklega að
breytingartillaga verði tekin til meðferðar á fundinum og skulu breytingartillögur birtar á vefsetri
samtakanna ásamt greinargerð eigi síðar en 2 vikum fyrir aðalfund.
15. gr. Slit
Nú kemur fram tillaga um að samtökunum skuli slitið eða þau sameinuð öðrum samtökum og
skal hún þá sæta sömu meðferð sem tillaga til breytinga á samþykktum þessum. Við slit skulu
eignir samtakanna renna til félagasamtaka innan Almannaheilla – samtaka þriðja geirans eða til
samtaka sem starfa að neytendamálum. Geta skal sérstaklega áforms um félagsslit í fundarboði.
16. gr. Ákvæði til bráðabirgða
Kjörtímabil þeirra sem hafa hlotið hafa kosningu í stjórn Neytendasamtakanna í október 2023 og
október 2024 styttist sem nemur því sem aðalfundi er flýtt. Ákvæði þetta fellur úr gildi eftir
aðalfund ársins 2026.
Samþykktir þessar voru samþykktar á aðalfundi Neytendasamtakanna 22. október 2024.