Fréttir

Mun verð á fötum lækka?

Neytendasamtökin vilja vekja athygli neytenda á ýmsum tollabreytingum sem áttu sér stað um áramótin. Með breytingunum hafa tollar á fatnaði og skófatnaði verið afnumdir. Einnig hafa verið felldir niður tollar af vara- og aukahlutum fyrir reiðhjól, bleium o.fl. Um er að ræða alls 324 breytingar í 12 flokkum. Tilgangur breytinganna er að styrkja stöðu innlendrar verslunar í samkeppni við erlenda en hafa ber í huga að breytingar munu einnig nýtast þeim sem versla umræddar vörur af erlendum netverslunum. Samkvæmt lauslegum útreikningum ættu þessar breytingar að skila sér í 7,8% lægra verði á fatnaði og skóm til neytenda. Samtökin hvetja því neytendur til þess að vera vakandi fyrir verðlagningu í kjölfar breytinganna, enda eiga breytingar sem þessar ávallt að skila sér beint til neytenda.

Neytendasamtökin munu vera fylgjast með  þessu á komandi misserum og einnig hefur Alþýðusamband Íslands gefið það út að sambandið muni vakta það sérstaklega  í verðlagseftirliti sínu hvort þær vörur sem tollabreytingarnar eiga við komi til með að lækka í verði til neytenda. Þar sem breytingarnar áttu sér stað 1. janúar sl.  ætti verð að hafa lækkað nú þegar, en raunar getur það skekkt stöðuna að útsölur eru víðast hvar í gangi. Neytendasamtökin hvetja neytendur til þess að fylgjast vel með verðbreytingum og senda ábendingar til samtakanna.

Fréttir í sama dúr

Bílastæðamál fyrir Hæstarétt

Baráttan um bílastæðin

Neytendablaðið er komið út

Aðalfundur 22. október

Staðan í Vaxtamálinu

Smálánabaráttan

Takk fyrir áhugann!

 Þetta vefsvæði er kostað af árgjöldum félaga í Neytendasamtökunum.

Ef þú ert ekki þegar í samtökunum biðjum við þig að íhuga að ganga í þau. Árgjaldið er 7.900 kr.