Fréttir

Óátalið mælasvindl

Neytendasamtökin furða sig á niðurstöðu Samgöngustofu í málefni Procar sem birt var á vef Samgöngustofu í dag. Þar kemur fram að Samgöngustofa ætli ekkert að aðhafast, þrátt fyrir að fyrir liggi játning forsvarsmanna Procar um stórfellt svindl á neytendum yfir langan tíma.

Nú eru liðnar rúmar 16 vikur síðan RÚV birti fréttir af kílómetramælasvindli Procar og enn hefur ekkert verið gert. Tjónið sem svindlið veldur er tvíþætt, annars vegar fjárhagslegt þar sem neytendur greiða hærra verð fyrir bifreiðar en ella, en hins  vegar er stórlega vegið að umferðaröryggi þar sem nýr eigandi gerir sér ekki grein fyrir viðhaldsþörf keypts ökutækis. Samgöngustofa vísar til lögreglu með fyrra atriðið, en lætur umferðaröryggisþáttinn óátalinn.

Af yfirlýsingu Samgöngustofu að dæma er ekki að sjá að gerð hafi verið nokkur tilraun til að girða fyrir að sviksemi endurtaki sig, né heldur er aðgerðaleysið til þess fallið að letja aðra söluaðila notaðra bíla til beita neytendur bellibrögðum.

Neytendasamtökin minna á að talið sé að átt hafi verið við kílómetramæla 8-12% allra notaðra bíla í Evrópu. Engin gögn bendi til að öðruvísi sé farið hér á landi. Á meðan þetta sé liðið á Íslandi, geta neytendur ekki treyst því að ekki hafi verið átt við kílómetramæla notaðra bíla.

Neytendasamtökin hvetja yfirvöld til að tryggja að stórfellt svindl endurtaki sig ekki.

Fréttir í sama dúr

Opnunartími yfir hátíðirnar

Droppshipping – ekki er allt sem sýnist

Afstaða stjórnmálaflokkanna til neytendamála

Breytingar á búvörulögum gegn stjórnarskrá

Aðalfundur Neytendasamtakanna 2024

Ályktanir aðalfundar

Takk fyrir áhugann!

 Þetta vefsvæði er kostað af árgjöldum félaga í Neytendasamtökunum.

Ef þú ert ekki þegar í samtökunum biðjum við þig að íhuga að ganga í þau. Árgjaldið er 7.900 kr.