Fréttir

Réttlát græn umskipti – alþjóðadagur neytendaréttar

Þann 15. mars 1962 varð John F. Kennedy Bandaríkjaforseti fyrstur þjóðarleiðtoga til að lýsa því formlega yfir að neytendur hefðu grundvallarréttindi. Í áratugi hafa Alþjóðasamtök neytenda – Consumer International –  haldið daginn hátíðlegan og nýtt hann til að beina sjónum að tilteknu málefni.

Í ár er dagurinn helgaður baráttunni fyrir réttlátum umskiptum. Síðasti áratugur var sá heitasti sem mælst hefur á jörðinni og öfgakennt veðurfar hefur færst í aukana með tilheyrandi hörmungum. Mönnum og dýrum stafar víða ógn af mengun og hnignun lífræðilegs fjölbreytileika og engum dylst lengur að afleiðingarloftslagsbreytinga eru ekki einungis umhverfislegar heldur einnig efnahagslegar og félagslegar.

Ljóst er að án umfangsmikilla aðgerða munu margar af þeim áskorunum sem við stöndum frammi fyrir stigmagnast. Hækkandi matarverð má ekki síst rekja til álags á fæðukerfi heimsins og því hversu háð við erum jarðefnaeldsneyti. Þá er mengun, hvort sem er loft-, plast-, eða efnamengun, ábyrg fyrir ótímabærum dauðsföllum níu milljón jarðarbúa árlega.

Sjálfbærnimarkmið Sameinuðu þjóðanna nást ekki nema með grundvallarbreytingum á neysluvenjum okkar, samgöngum og kauphegðun. Neytendur leika lykilhlutverk í því að stuðla að breytingum en því miður er sjálfbært val ekki alltaf nærtækasti kosturinn. Það er því mikilvægt að tryggja gott aðgengi að sjálfbærum vörum og þjónustu á hagstæðu verði.

Græn umskipti mega ekki vera á kostnað grunnréttinda og þarfa fólks. Þvert á móti felast í þessum umskiptum tækifæri til framfara sem geta stuðlað að sjálfbærum lífsháttum plánetunni okkar til heilla.  

Grunnkröfur neytenda

„Við erum öll neytendur,“ sagði Kennedy í frægri ræðu sem hann hélt 15. mars fyrir 63 árum. „Neytendur er sá hópur sem hefur hvað víðtækustu áhrif á nánast allar efnahagsstærðir og nánast allar ákvarðanir í opinbera og einkageiranum hafa áhrif á neytendur. Samt sem áður eru þeir oft og tíðum sá hópur sem minnst er hlustað á.“

Þessi yfirlýsing Kennedys leiddi til þess að árið 1985 samþykkti allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna sérstakar leiðbeiningar um neytendavernd. Þar segir meðal annars að allur almenningur, án tillits til tekna eða félagslegrar stöðu, hafi ákveðin lágmarksréttindi sem neytendur.

Hér að neðan má sjá grunnkröfur neytenda en þær eru leiðarvísir og grunnur að öllu starfi Neytendasamtakanna:

1. Réttur til að fá grunnþörfum mætt
Að hafa aðgang að nauðsynjavörum og þjónustu, en þar falla undir t.d. matvæli, fatnaður, húsnæði, heilbrigðisþjónusta, menntun, vatn og hreinlæti.

2. Réttur til öryggis
Að njóta verndar gagnvart vörum, framleiðsluháttum og þjónustu sem ógna öryggi og lífi neytenda.

3. Réttur til upplýsinga
Að fá nauðsynlegar upplýsingar til að geta tekið upplýsta ákvörðun og njóta verndar gegn misvísandi og röngum upplýsingum.

4. Réttur til að velja
Að geta valið milli fjölbreytts varnings og þjónustu á samkeppnishæfu verði og af fullnægjandi gæðum.

5. Réttur til áheyrnar
Að hagsmuna neytenda sé gætt við ákvarðanatöku hjá stjórnvöldum og við þróun á vörum og þjónustu.

6. Réttur til úrlausnar
Að eiga rétt á sanngjarnri úrlausn á réttmætum kröfum, sem og bótakröfum í tengslum við kaup á ófullnægjandi vörum og þjónustu.

7. Réttur til neytendafræðslu
Að eiga rétt á þekkingu og færni til að geta tekið upplýstar ákvarðanir um val á vörum og þjónustu auk þess að hafa þekkingu á grundvallarréttindum og skyldum neytenda.

8. Réttur til heilbrigðs umhverfis
Að lifa og starfa í umhverfi sem ógnar ekki velferð núlifandi né komandi kynslóða.

Þá bæta Neytendasamtökin við níundu grunnkröfunni í samræmi við kröfur norrænna systursamtaka:

9. Réttur til stafrænnar neytendaverndar
Að jafnt aðgengi allra sé tryggt, að öryggi og heiðarleiki ráði ferð í stafrænum vörum og þjónustu, og að neytendur geti gert sér fulla grein fyrir öllum skilmálum.

Fréttir í sama dúr

Aðalfundur 10. apríl

Bætur vegna „þjálfunarflugs”

Flug flugvélarvængur

Málaskrá vor 2025

Framboð til stjórnar

Fast lágt raforkuverð í Noregi

Leynast mikilvægt skilaboð á island.is?

Takk fyrir áhugann!

 Þetta vefsvæði er kostað af árgjöldum félaga í Neytendasamtökunum.

Ef þú ert ekki þegar í samtökunum biðjum við þig að íhuga að ganga í þau. Árgjaldið er 7.900 kr.