Fréttir

Varúð! Nýtt smálánaútspil

Neytendasamtökin vara við nýju útspili smálánafyrirtækis tengdu Kredia og Ecommerce 2020. Þannig býður fyrirtækið nú lántökum uppá að fresta afborgun á láni um 30 daga. Sá hængur er á að frestunin kostar lántaka 6.000 kr. Sé greitt fyrir frestun á láni að upphæð 20.000 kr. (eins og samtökin hafa dæmi um) þýðir það árlega hlutfallstölu kostnaðar uppá 360%, en það er ríflega tífaldur leyfilegur hámarkskostnaður. Neytendasamtökin telja þetta gjald falla undir lántökukostnað og minna á að samkvæmt lögum er neytanda ekki skylt að greiða lántökukostnað vegna lána sem bera hærri kostnað en heimilt er.

Neytendasamtökin hafa vart tölu yfir allar þær aðferðir sem smálánafyrirtækin og innheimtufyrirtæki á þeirra vegum hafa beitt til að komast fram hjá lögum á undanförnum árum. Um er að ræða samfélagsmein sem hefur reynst samfélaginu dýrkeypt og fjöldi lántakenda á kröfur á hendur fyrirtækjanna. Þá er undarleg þjónkun sumra fyrirtækja, sem vilja telja sig heiðvirð, en starfa með og í þágu þessara smálánafyrirtækja.

Neytendasamtökin hafa tilkynnt þessa starfsemi til Neytendastofu, sem hefur eftirlit með smálánastarfsemi, í þeirri von að málið verði skoðað hið fyrsta og gripið verði til aðgerða tafarlaust.

Fréttir í sama dúr

Breytingar á búvörulögum gegn stjórnarskrá

Aðalfundur Neytendasamtakanna 2024

Ályktanir aðalfundar

Bílastæðamál fyrir Hæstarétt

Baráttan um bílastæðin

Neytendablaðið er komið út

Takk fyrir áhugann!

 Þetta vefsvæði er kostað af árgjöldum félaga í Neytendasamtökunum.

Ef þú ert ekki þegar í samtökunum biðjum við þig að íhuga að ganga í þau. Árgjaldið er 7.900 kr.