Neytendasamtökin hafa í rúm 70 ár barist fyrir auknum rétti neytenda og spornað við yfirburðastöðu valdhafa, sérhagsmunahópa og fyrirtækja. Neytendasamtökin eru frjáls félagasamtök sem reiða sig á árgjöld félagsmanna. Hagsmunagæsla samtakanna kemur öllum neytendum til góða.
Aðild
Einstaklingar sem orðnir eru 18 ára geta gerst félagar í Neytendasamtökunum. Félagsaðild er til eins árs í senn og endurnýjast sjálfkrafa nema viðkomandi skrái sig úr samtökunum. Árgjaldið er 7.900 kr.
Félagsmenn njóta liðsinni samtakanna lendi þeir í deilum við seljendur. Félagar hafa greiðan aðgang að sérfræðingum samtakanna og geta leitað til þeirra alla virka daga á opnunartíma.
Neytendablaðið kemur út tvisvar á ári sneisafullt af áhugaverðum neytendafréttum. Það er félögum að kostnaðarlausu. Blaðið er bæði gefið út á pappírsformi og rafrænt. Óski félagar eftir rafrænni útgáfu má senda póst á ns [@]ns.is
Félagar geta boðið sig fram til trúnaðarstarfa fyrir samtökin. Þeir hafa atkvæðisrétt á aðalfundi og geta þannig haft bein áhrif á starf samtakanna.
Úrsögn
Úrsögn úr samtökunum þarf að vera með sannanlegum hætti. Einfaldast er að senda tölvupóst til okkar, gefa upp fullt nafn og kennitölu og óska eftir að vera tekin af félagaskrá.